Fréttablaðið - 03.05.2007, Síða 54

Fréttablaðið - 03.05.2007, Síða 54
Johnny Weissmuller mesta hetjan Græna ljósið tekur til sýning- ar um helgina þýsku myndina Líf hinna eða Das Leben der Ander- en en hún hlaut Óskarsverðlaun sem besta erlenda myndin fyrr á árinu. Að venju býður Græna ljós- ið félögum í kvikmyndaklúbbnum sínum frítt á myndina um opnun- arhelgina en þeir fá sendan miða- kvóta á föstudaginn sem þeir geta notað á midi.is. Líf hinna gerist á árunum 1984 til 1991 í Austur-Berlín. Stjórnvöld Austur-Þýskalands finna fyrir ein- hverjum losarabrag í alþýðulýð- veldinu og ákveða að hefja stóra njósnaherferð á hendur borgur- um landsins. Tilgangurinn er að vita allt um líf hinna. Öryggislög- reglunni illræmdu Stasi er falið að sjá um verkefnið og er talið að yfir njósnað hafi verið um 200 þús- und borgara með einum eða öðrum hætti á þessum tíma. Hershöfðingjanum Gerd Wies- ler er falið að fylgjast með leik- ritaskáldinu Georg Dreyman og eiginkonu hans, leikkonunni Christa-Maria Sieland. Í fyrstu virðist leikritaskáldið vera föður- landsvinur en það breytist fljótt þegar hann kemst á snoðir um að eiginkonu hans hafi verið þröngv- að í kynlífssamband við ráðherra í ríkisstjórninni. Og ekki batn- ar ástandið þegar góðvinur hans fremur sjálfsmorð eftir að hafa verið á „svörtum lista“ stjórn- valda. Dreyman ákveður því að skrifa grein í Der Spiegel þar sem hann hyggst svipta hulunni af því ömurlega lífi sem þegnarnir búa við austan megin múrsins. Ulrich Muhe, Sebastian Koch og Martina Gedeck sem leika aðal- hlutverkin í myndinni en henni er leikstýrt af Florian Henckel von Donnersmarck. Þegar múrinn féll Sam Raimi mætir til leiks nú um helgina með þriðju myndina um Köngulóar- manninn Peter Parker en kvikmyndahúsagestir hafa bundist þessum veggja- klifrara og ofurhuga mikl- um tryggðarböndum. Að þessu sinni þarf Parker að fást við hvorki meira né minna en þrjá óvini; Hinn unga Green Goblin, Sandmanninn og Venom. Ólíkt annarri myndinni – þar sem Parker fannst hann fá óverðskuld- aða gagnrýni og engar þakki frá íbúum New York – er Köngulóar- maðurinn nú elskaður og dáður af öllum. Og virðist kunna því ansi vel. Parker gengst upp í því að fá athygli og virðist gleyma þeim sem þykir vænst um hann. Þar að auki berjast nú tvær stúlkur um hylli hans, þær Mary Jane Watson og Gwyn Stacy. Og Parker virðist ekkert una því neitt sérstaklega illa. Það sem helst hefur hrifið fólk með myndunum um Könguló- armanninn er hversu mannleg- ur hann er. Þrátt fyrir ofurkrafta sína þarf Parker engu að síður að kljást við siðferðilegar spurningar milli þess sem hann frelsar sam- borgara sína frá óþjóðalýð. Þannig vakti það gríðarlega mikla athygli þegar myndir af svörtum Köngu- lóarmanni fóru eins og eldur í sinu um netið. Svarti búningurinn er táknmynd nýs afls sem bærir á sér í hjarta Parkers og er keyrt áfram af hatri og hefnd. Þetta fyll- ir Parker mun meiri krafti, en sviptir hann sýn á hvað er rétt og hvað er rangt í baráttunni gegn illum öflum. Sam Raimi hefur hingað til hald- ið sig við eitt illmenni í hverri mynd; fyrst var það Willem Dafoe í líki Green Goblin og svo kom Al- fred Molina sem Dr. Oktavius. Raimi fer hins vegar þá leið að láta Köngulóarmanninn kljást við þrjá óvini í einu og segir þá hugmynd hafa komið frá samstarfsmanni sínum, Avi Arad. „Ég var búinn að skrifa söguna að þriðju mynd- inni með Sandmanninum í aðal- hlutverki. Þá kom Arad að máli við mig og sagði að ég sæi ekki heild- armyndina,“ sagði Raimi í samtali við kvikmyndavefinn Movieweb. „Hann taldi að ég væri að gleyma aðdáendum Köngulóarmannsins og einblína of mikið á mitt áhuga- svið og mína eftirlætisþrjóta,“ bætir Raimi við. „Arad bað mig um að setja Venom í myndina enda væri hann það illmenni sem væri í mestu uppáhaldi hjá aðdáend- um Köngulóarmannsins,“ útskýrir Raimi en leikstjórinn taldi sig ekki vera undir mikilli pressu frá aðdá- endum hverju sinni. „Það er alltaf ég sem tek ákvarðanirnar og það er alltaf ég sem stend og fell með þeim.“ Að venju er Tobey Maguire í hlutverki Peter Parker og hann er dyggilega studdur af Kirsten Dunst sem Mary Jane Watson. Þar að auki er James Franco á sínum stað sem Harry Osbourne. Meðal nýrra andlita má nefna Thomas Haden Church í hlutverki Sandmanns- ins, Topher Grace sem Venom og Bryce Dallas Howard sem hjóna- djöfullinn Gwen Stacy. - SMSLEIKUR NÝ R S ING STA R LEN DIR 3. MA Í SENDU SMS BTC STF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK! AÐALVINNINGUR ER PS2 + ALLIR SINGSTAR LEIKIR + SINGSTAR KIT AUKAVINNINGAR ERU SINGSTAR POP HITS OG AÐRIR SINGSTARLEIKIR, DVD, PEPSI OG MARGT FLEIRA V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 1 49 k r/ sk ey ti ð . 10

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.