Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 65
Íslenska landsliðið skip-
að leikmönnum sautján ára og
yngri mætti í gær liði Englands í
úrslitakeppni Evrópumótsins sem
hófst í Belgíu í gær. England hafði
betur í gær og vann leikinn, 2-0,
með tveimur mörkum snemma í
leiknum.
Lúkas Kostic, þjálfari íslenska
landsliðsins, sagði að sínir menn
hefðu lagt sig vel fram en að úr-
slitin í leiknum hafi verið sann-
gjörn.
„England var sterkari aðilinn
í leiknum. Liðið er skipað mjög
sterkum leikmönnum sem spiluðu
mjög vel. Það var verst við leik-
inn hvað við fengum fyrra mark-
ið snemma á okkur. Það er mjög
erfitt fyrir stráka sem eru að
taka þátt í sínu fyrsta stórmóti að
lenda í slíku.“
Hann segir að Englendingar
hafi mætt gífurlega grimmir til
leiks og ekki gefið nein færi á sér.
Íslenska liðið fékk aðeins eitt færi
í leiknum er Viktor Illugason gaf
góða sendingu á Aaron Palomares
sem náði ágætu skoti á marki sem
var varið.
Lúkas segir að sóknarleikur ís-
lenska liðsins hafi einfaldlega ekki
verið nógu góður. „Englendingar
sköpuðu sér ekki eitt einasta færi
í síðari hálfleik en það gerðum
við ekki heldur. Í undankeppninni
höfum við skorað mikið af mörk-
um og skorað reglulega. Í leikn-
um í dag gerðum við vel í vörn og
reyndum að pressa þá eins hátt og
hægt var en þeir gáfu afar fá færi
á sér,“ sagði Lúkas. „Strákarnir
lögðu sig fram en sóknarleikurinn
var ekki nógu sterkur.“
Íslenska liðið lék í gær án Kol-
beins Sigþórssonar sem hefur
verið einn sterkasti leikmaður
liðsins í undankeppni og helsti
markaskorari þess. Hann á við
meiðsli að stríða.
„Það er rétt að Kolbeinn var
ekki með en það má ekki setja
allt á herðar eins manns. Sóknar-
leikurinn var ekki nógu góður, þá
verðum við bara að laga það og
sýna meiri metnað í næsta leik,“
sagði Lúkas.
Hann reiknar þó með að Kolbeinn
verði með gegn Hollendingum
á morgun. „Það voru mikil bata-
merki hjá honum í dag og sjálf-
ur segir hann að honum líði mjög
vel. Hann hefur bæði æft með
okkur og einnig æft sjálfur. Ég
reikna því með honum gegn Hol-
landi og vona að hann verði klár í
slaginn þótt maður viti aldrei hvað
verður.“
Hann segir að hollenska liðið sé
gífurlega sterkt eins og reyndar
öll lið á mótinu. „Þetta eru stórir
og sterkir strákar í hollenska lið-
inu en Belgarnir eru líka með mjög
hættulegt lið,“ sagði Lúkas. Ísland
mætir heimamönnum á mánudag-
inn kemur. „Allir leikir á mótinu
virðast vera mjög svipaðir og hef
ég trú á að við gætum bætt okkur
og veit að strákarnir gera það. Það
býr meira í liðinu og það getur náð
betri úrslitum í næstu leikjum.“
Íslenskt landslið er nú í fyrsta
sinn með í úrslitakeppni stórmóts
í knattspyrnu og segir Lúkas að
þetta sé vitanlega mikið ævintýri
fyrir liðið allt. „Það er mikill heið-
ur að taka þátt í mótinu með þeim
bestu í Evrópu. Allt skipulag er
líka til fyrirmyndar og hafa Belg-
arnir reynst afar hjálpsamir og
vilja allt fyrir okkur gera. Þetta er
yndislegt fólk.“
En hann bætir við að menn þurfi
að vera með báða fætur á jörðinni
í slíkum stórmótum. „Við búum
ekki að neinni reynslu af slíkum
mótum og hef ég því enga trú á
öðru en að við lærum hratt af mis-
tökum okkar og bætum okkur í
hverjum leik. Það voru fínir kafl-
ar í leiknum gegn Englandi en allt
of fáir.“
Leikurinn gegn Hollandi á
morgun hefst klukkan 18.15 að
íslenskum tíma.
Íslenska U-17 landsliðið hóf í gær keppni á Evrópumótinu í Belgíu er liðið mætti Englendingum. Ísland tap-
aði, 2-0, en Lúkas Kostic þjálfari segir að meira búi í liðinu sem mætir Hollendingum annað kvöld.
Markvörður íslenska
landsliðsins, Trausti Sigurbjörns-
son, lenti í þeirri óskemmtilegu
reynslu að rotast strax í upphafi
leiks Íslands og Englands í gær.
Hann fékk spark í höfuðið og
missti meðvitund í tvær mínútur.
„Trausti rotaðist á níundu mín-
útu leiksins og var tekinn út af
um leið. Hann var fluttur á spít-
ala þar sem hann fékk aðhlynn-
ingu,“ sagði Lúkas Kostic í gær.
Trausti fékk svo að koma aftur
upp á hótel liðsins síðar um dag-
inn. Læknir íslenska liðsins,
Einar Jónsson, sagði síðar við
Fréttablaðið að Trausti yrði að
taka því rólega næstu vikurnar.
Hann verður því ekki meira með
liðinu á mótinu í Belgíu.
„Honum líður eftir atvikum
vel. Hann fékk spark í höfuðið og
rotaðist. Eftir slíkt höfuðhögg er
ekki skynsamlegt að reyna mikið
á sig næstu vikurnar. Það væri
alls ekki ráðlegt,“ sagði Einar.
Enn fremur sagði hann það afar
skiljanlegt að Trausti skuli vera
sár og svekktur vegna þessa. „Það
er auðvitað afar fúlt að fá ekki að
spila nema í nokkrar mínútur á
mótinu. En þetta eru skynsam-
ir strákar og vita um hvað þetta
snýst,“ sagði Einar.
Missti meðvitund og var fluttur á sjúkrahús
Þónokkrir Íslendingar
voru meðal áhorfenda á leik Ís-
lands og Englands á Evrópumóti
U-17 landsliða sem fer fram í
Belgíu þessa dagana. Einn þeirra,
Sigþór Sigurjónsson bakarameist-
ari, sagði að stemningin á leikn-
um hefði verið mjög góð þó svo
að leikurinn hefði tapast.
„Ég er ekki frá því að flestir
áhorfendanna hafi verið Íslend-
ingar,“ sagði Sigþór. „Það er góð
stemning í kringum liðið,“ bætti
hann við.
Hann er faðir Kolbeins Sigþórs-
sonar sem gat ekki leikið með Ís-
landi í gær vegna meiðsla. „Það
er auðvitað svekkjandi en ég tel
að það hafi verið rétt ákvörðun
hjá þjálfaranum að skipta honum
ekki inn á. Hann þarf að jafna sig
að fullu og hann sagði mér í kvöld
að hann væri orðinn miklu betri.“
Íslendingar fjöl-
menna á leiki
Alls taka átta lið þátt
í úrslitakeppni EM U-17 liða í
Belgíu og öll léku þau í gær. Í
hinum leiknum í riðli Íslands
gerðu Belgar jafntefli við Hol-
lendinga, 2-2, en Ísland mætir
þeim síðarnefndu á morgun.
Í hinum riðlunum unnu Þjóð-
verjar 2-0 sigur á Úkraínu og
Spánn vann Frakkland, einnig 2-0.
Belgía og Hol-
land skildu jöfn