Fréttablaðið - 03.05.2007, Qupperneq 66
Spænski markvörður-
inn Pepe Reina var hetja Liver-
pool þegar liðið sló Chelsea út úr
Meistaradeildinni í fyrrakvöld og
tryggði þar öðrum fremur liði sínu
sæti í úrslitaleiknum í Aþenu.
Reina hélt marki sínu hreinu
og varði síðan tvær spyrnur Chel-
sea-manna í vítakeppninni. Þetta
var þó langt frá því að vera full-
kominn dagur fyrir þennan 24 ára
gamla markvörð því þegar hann
kom heim til sín blasti við ljót
sjón.
Óprúttnir ræningjar höfðu nefni-
lega nýtt sér tækifærið á meðan
Reina var upptekinn við að loka á
sóknarmenn Chelsea, brotist inn á
heimili hans og látið greipar sópa
um íbúð hans. Meðal þess sem
var tekið var Porche-jeppi kapp-
ans, sem seinna fannst brunninn,
skartgripir, persónuleg gögn og
glæsilegar hljómflutningsgræjur
af Bang og Olufsen gerð.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
knattspyrnumenn á Liverpool-
svæðinu eru rændir á meðan þeir
eru að spila með liðum sínum. Fé-
lagar Reina hjá Liverpool: Jerzy
Dudek, Daniel Agger, Peter Crouch
og Florent Sinama-Pongolle, lentu
allir í þessu auk þess sem Andy
Van der Meyde hjá Everton varð
tvisvar sinnum fyrir því að brotist
var inn hjá honum.
Besta sagan er þó af Everton-
tröllinu Duncan Ferguson sem
var heima þegar ræningjar komu
í heimsókn árið 2001. Ferguson tók
vel á móti þjófunum og sendi þá á
sjúkrahús.
Reina var rændur á meðan hann kom
Liverpool í úrslit Meistaradeildarinnar
Stjarnan og HK leika
í kvöld fyrsta leik sinn í úrslita-
einvíginu um deildarbikar karla
og hefst leikurinn klukkan 19.30 í
Digranesi.
Stjarnan vann tvo sannfærandi
sigra á Íslandsmeisturum Vals-
manna í undanúrslitunum en HK
komst áfram eftir sigur á Fram í
oddaleik.
Liðin hafa mæst fjórum sinnum
í vetur, þrisvar í deildinni og einu
sinni í bikarkeppninni. Í öllum
þremur leikjunum hefur útilið-
ið unnið, HK vann báða deildar-
leikina í Ásgarði (23-28 og 25-26)
og Stjarnan vann bæði deildar-
leik (27-30) og bikarleik (25-26) í
Digranesinu.
Valdimar Þórsson skoraði mest
allra leikmanna í þessum fjór-
um leikjum eða alls 35 mörk sem
gera 8,8 mörk að meðaltali. Það er
þó greinilegt að framlög annarra
leikmanna skipta HK-liðið miklu
máli því Valdimar skoraði 11,5
mörk að meðaltali í tapleikjunum
á heimavelli í Digranesi en 6 mörk
að meðaltali í sigurleikjunum í
Garðabæ.
Með sigri getur Stjarnan unnið
báðar útsláttarkeppnir vetrarins
en liðið varð eins og kunnugt er
bikarmeistari eftir 27-17 stórsigur
á Fram í úrslitaleik. Haukar unnu
þessa keppni í fyrra þegar hún var
haldin í fyrsta sinn og HK-liðið er í
sömu stöðu og þeir. HK endaði í 2.
sæti á Íslandsmótinu, þurfti odda-
leik til þess að komast í úrslitin og
er með heimavallarrétt í úrslita-
einvíginu.
Allir leikirnir í vetur unnust á útivelli
Framtíðin er sannar-
lega björt hjá Íslandsmeisturum
Valsmanna í handboltanum því 2.
flokkur félagsins tryggði sér Ís-
landsmeistaratitilinn í 2. flokki
þriðja árið í röð á þriðjudaginn.
Valur vann öruggan 30-22 sigur
á Aftureldingu í úrslitaleiknum.
Þjálfari Valsliðsins er Heimir
Ríkarðsson sem hefur unnið tíu
titla hjá félaginu á þeim tveimur
árum sem hann hefur verið á
Hlíðarenda en 2. flokkurinn er
einnig Reykjavíkur- og bikar-
meistari.
Framtíðin er
björt hjá Val
Dirk Nowitzki bjarg-
aði sínum mönnum frá því að fara
í sumarfrí með því að skora 12
stig á síðustu 3 mínútunum í 118-
112 sigri Dallas á Golden State í
fimmta leik liðanna í fyrstu um-
ferð úrslitakeppni NBA-deildar-
innar. Dallas var 9 stigum undir
og á leið úr keppni þegar 3 mín-
útur og 7 sekúndur voru eftir.
Dallas skoraði hins vegar 15
síðustu stig leiksins og tryggði
sér annað líf en til þess að komast
í undanúrslitin þarf liðið að vinna
tvo næstu leiki líka. Nowitzki
skoraði fyrst tvær þriggja stiga
körfur og setti síðan niður 6 af
7 vítum á síðustu 48 sekúndum
leiksins.
„Liðið okkar hefur stórt hjarta
og býr yfir miklu stolti. Við börð-
umst alla leið í úrslitin í fyrra,
unnum nokkra erfiða útileiki og
þetta lið gefst aldrei upp. Við
vitum að þeir ætla ekki að gefa
okkur neitt en við vonumst til að
stela sigri hjá þeim og tryggja
okkur sjöunda leikinn á heima-
velli,“ sagði Nowitzki eftir
leikinn.
Dirk Nowitzki bjargaði
Dallas á elleftu stundu
Claudio Ranieri, fyrrum
stjóri Chelsea, efast um að Jose
Mourinho verði áfram með liðið
ef Chelsea mistekst að vinna ein-
hvern af stóru titlunum þremur
í vetur. „Roman Abramovich
vill vinna Meistaradeildina og
að Chelsea sé besta liðið í heimi.
Hann er ekki ánægður með að
vinna bara deildarbikarinn,“
sagði Ranieri en Mourinho er með
samning til ársins 2010.
Efast um fram-
tíð Mourinhos
Það hefur aldrei verið þægilegra að eignast Aygo. Núna þarftu ekki að hafa áhyggjur af neinu nema
að keyra bílinn – við sjáum um restina.
Aygo. Engar áhyggjur.
Ofkeyrðu þig.
www.aygo.is
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Kostar ekkert,
þannig séð
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
3
73
72
0
4/
07
*Sértilboð Elísabetar og AYGO. M.v. 84 mánuði. Innifalið er afborgun af láni, tryggingar
(ábyrgðar- og kaskótrygging) og bifreiðagjöld á fyrsta tímabili.
26.855 kr.* á mánuði:
Innifalið: Afborgun af láni - Tryggingar - Bifreiðagjald 1. tímabils - Engin útborgun.
engin útborgun