Fréttablaðið - 20.05.2007, Síða 2
Formenn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar skunduðu á
Þingvöll á hádegi í gær ásamt föru-
neyti sínu til að halda stjórnar-
myndunarviðræðum áfram, og sátu
enn þegar Fréttablaðið fór í prent-
un í gærkvöldi.
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, ræddi stuttlega
við fréttamenn í gær utan við
bústað forsætisráðherra á Þing-
völlum, og sagði verið að fara yfir
einstök málefni á fundinum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, kom
út ásamt Geir á tíunda tímanum í
gærkvöldi. Hún vildi ekki tjá sig
um viðræðurnar, en sagði Þing-
velli fallegan stað sem gott væri
að vera á. Geir sagði að búast
mætti við því að fundarhöld héldu
áfram á Þingvöllum í dag.
Gríðarleg leynd hefur hvílt yfir
viðræðunum, og aðrir sem sátu
fundinn á Þingvöllum í gær höfn-
uðu því alfarið að ræða við fjöl-
miðla. Til marks um leyndina
herma heimildir Fréttablaðsins að
fulltrúar Samfylkingarinnar hafi
komið allir saman í einum bíla-
leigubíl til að leyna því hverjir
væru þar á ferð.
Auk Geirs sátu fundinn sjálf-
stæðisfólkið Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, Árni Mathiesen,
Illugi Gunnarsson og Andri Ótt-
arsson. Auk Ingibjargar Sólrúnar
sátu Össur Skarphéðinsson, Ágúst
Ólafur Ágústsson, Margrét
Björnsdóttir og Skúli Helgason
fundinn fyrir hönd Samfylkingar.
Einar Mar Þórðarson, stjórn-
málafræðingur hjá Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands,
segir að ákvörðunin um að funda
á Þingvöllum sé greinilega
úthugsuð af spunameisturum
flokkanna. Þeim sé mikið í mun
að Baugsstjórnin, nafnið sem
framsóknarmenn gáfu stjórninni,
festist ekki í sessi. Þingvalla-
stjórnin sé fallegt nafn sem allir
geti sætt sig við.
Einhverjir hafa rætt um að
stjórnin gæti fengið nafnið Maí-
stjórnin, en Einar segir það nafn
ekki líklegt til að festast. Ekki ein-
asta séu flestar ríkisstjórnir
myndaðar í maí, heldur hafi það
einnig skírskotun í lagið Maís-
tjörnuna og verkalýðsbaráttu, sem
sjálfstæðismenn hefðu sennilega
lítinn áhuga á.
Einar segir að á þessu stigi sé
nokkuð öruggt að stjórnarmynd-
unarviðræðurnar eigi eftir að
ganga upp, enda ekki mörg mál-
efni sem verði erfið. Hugsanlega
verði erfitt að ná saman um
umhverfismálin, þó það verði ekki
óyfirstíganlegt. Einnig sé spurn-
ing hversu langt Samfylkingin
vilji ganga varðandi Írak og lista
yfir hinar viljugu þjóðir.
Nicolas Sarkozy,
nýr forseti Frakklands, sýndi
hvað sér væri umhugað um að
flugvélasmiður Airbus kæmust
sem fyrst út úr þeim örðugleikum
sem þær eiga við að stríða um
þessar mundir, með því að
heimsækja þær á milli þess sem
hann skipaði nýja ríkisstjórn.
Sarkozy hét því í heimsókninni
að franska ríkisstjórnin myndi
leita nýrra fjárfesta að Airbus og
hún væri reiðubúin að leggja
fram meira fé til móðurfyrirtæk-
isins EADS.
Heitir Airbus
aukinni aðstoð
Stærstur hluti atvinnu-
færra manna á Flateyri missti
vinnuna þegar 120 manns var sagt
upp hjá Kambi á Flateyri á föstu-
dag. Finnbogi Sveinbjörnsson, for-
maður Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga segir að um viðvarandi ástand
sé að ræða og stjórnvöld hafi ekki
brugðist við þeirri þróun sem orðið
hafi á undanförnum árum á Vest-
fjörðum.
„Þarna er verið að slökkva á
lífæð samfélgsins á Flateyri,“ segir
Finnbogi. „Stjórnvöld eru búin að
tala um að þau ætli að koma að
málum hér á Vestfjörðum, en það
gerist lítið, nema í orði virðist
vera.“
Finnbogi segir að vandi Vestfjarða
hafi verið að vefja upp á sig um all-
nokkurn tíma, og ljóst að um viðvar-
andi ástand sé að ræða. „Menn geta
ekki skýlt sér á bak við það lengur
að þetta sé tímabundið ástand, það
er alveg deginum ljósara.“
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Ísafjarðaabæjar, benti á það í
Fréttablaðinu í gær að þótt upp-
sagnirnar hafi skelfilegar afleið-
ingar séu afleiðingarnar tíma-
bundnar, þó erfiðleikar séu í
fiskvinnslu vanti fólk í ýmis önnur
störf á Vestfjörðum.
Finnbogi segir það ef til vill rétt,
en þegar fólk setjist að á ákveðn-
um stað með fjölskyldum sínum og
vilji vera þar áfram sé erfitt að
segja því að flytja annað til að fá
vinnu.
Þorvaldur, hafa hrossin ekki
andvara á sér við heimsenda?
Varðskip
Landhelgisgæslunnar, Ægir, hefur
haft það aukaverkefni að leggja
út fimm hlustunardufl sem ætluð
eru til að hlusta eftir jarðskjálft-
um og hvalaferðum. Verkefnið er
unnið fyrir Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands og bandarísku
haffræði- og veðurstofnunina.
Verkefnið er leitt af bandarísk-
um líffræðingi sem hefur sérhæft
sig í að greina hljóð hvala eftir
tegundum og jafnvel einstakling-
um innan sömu tegundar.
Jarðvísindastofnun Háskóla
Íslands nýtir hins vegar upplýs-
ingarnar sem hlustunarduflin
safna til að staðsetja jarðskjálfta
betur en áður. Hafrannsókna-
stofnun Íslands er einnig aðili að
verkefninu.
Hlustað eftir
jarðskjálftum
Um hálfur milljarð-
ur áhorfenda fylgdist með þegar
myndband með bresku stúlkunni
Madeleine McCann
var sýnt í beinni
útsendingu á
úrslitaleik ensku
bikarkeppninnar í
knattspyrnu í gær.
Rúmar tvær vikur
eru síðan Madel-
eine, sem er
fjögurra ára, hvarf úr íbúð sem
foreldrar hennar höfðu á leigu í
Portúgal.
Foreldrar hennar vonuðust til
að sýning myndbandsins yrði til
þess að fólk sem hefur einhverja
vitneskju um hvarf Madeleine
gefi sig fram við lögreglu. Þau
hafa ítrekað lýst því yfir að þau
trúi að Madeleine sé á lífi.
Myndband sýnt
á úrslitaleik
Tony Blair kom til Íraks í gærmorgun í sjö-
undu og síðustu heimsókn sinni til landsins sem for-
sætisráðherra Breta. Þrjár sprengjur sprungu innan
græna svæðisins í Bagdad á meðan á dvöl Blairs stóð.
Ein sprengja féll á breska sendiráðið, en ekki er vitað
hvort Blair var í húsinu þegar árásin var gerð.
Í Bagdad hitti Blair forseta Íraks, Jalal Talabani,
og Nouri al-Maliki forsætisráðherra. Á blaðamanna-
fundi eftir fundinn sagðist Blair hafa tilkynnt ráða-
mönnum að Bretland myndi halda áfram að styðja þá
eftir að hann lætur af embætti. Blair lagði mikla
áherslu á að þrátt fyrir að ofbeldi og sprengjuárásir í
landinu væru tíðar hefðu breytingar til hins betra
líka átt sér stað. Hann sagði jafnframt að hann iðrað-
ist ekki ákvörðunarinnar um að koma Saddam Huss-
ein frá völdum í landinu.
Blair hélt því næst til Basra, suðaustan við Bagdad,
þar sem meirihluti breska heraflans er staðsettur.
Þar þakkaði hann breskum hermönnum fyrir starf
sitt, og sagði það hafa verið framúrskarandi vel fram-
kvæmt.
Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti,
gagnrýndi Blair fyrir „blindan“ stuðning við stríðið í
Írak í gærmorgun. Blair lætur af embætti forsætis-
ráðherra Bretlands í lok júní.
Iðrast ekki aðgerða í Írak
Tilkynnt var um
stofnun Fjölsmiðju á Akureyri á
aðalfundi Rauða kross Íslands í
gær. Fjölsmiðja er atvinnutengt
úrræði. Þar gefst ungu fólki sem
flosnað hefur upp úr námi eða
vinnu tækifæri til að þjálfa sig
fyrir almennan vinnumarkað eða
nám. Byggt verður á reynslu
Fjölsmiðjunnar í Kópavogi.
Rauði krossinn leggur til 15
milljónir króna í stofnkostnað
Fjölsmiðjunnar, Akureyrarbær
veitir 10 milljónir, Vinnumála-
stofnun fimm milljónir og
menntamálaráðuneytið tvær.
Fjölsmiðjan verður fyrir
Eyjafjarðarsvæðið.
Úrræði fyrir
ungt fólk
Mikil leynd yfir við-
ræðum á Þingvöllum
Forystumenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ræddu myndun ríkisstjórnar
á fundi á Þingvöllum í gær og sátu fram eftir kvöldi. Spunameistarar flokkana
velja nafnið Þingvallastjórn frekar en Baugsstjórn segir stjórnmálafræðingur.
Tæplega tvö
hundruð umsóknir bárust um
starfsþjálfun á vegum Þróunar-
samvinnustofnunar Íslands, en
umsóknarfrestur um fimm
mánaða þjálfun rann út um
síðustu mánaðamót.
Umsækjendur þurftu að hafa
lokið háskólanámi og vera yngri
en 32 ára. Þjálfun þeirra mun fara
fram í Malaví, Mósambík, Namib-
íu, Níkaragva og Úganda.
Viðfangsefni nemanna verður
ýmiss konar aðstoð við verkefni
stofnunarinnar, bæði á vettvangi
og á umdæmisskrifstofum.
Mikill áhugi á
starfsþjálfun
Djúpsjávarkönn-
uðir greindu í gær frá fundi
fjársjóðsskips sem inniheldur
sautján tonn af fjögur hundruð
ára silfur- og gullmynt á ótil-
greindum stað í Atlantshafinu.
Könnuðirnir telja að þetta sé
stærsti fjársjóður sem fundist
hefur í skipsflaki og áætla að
verðmætið sé meira en 31,5
milljarður króna.
Verðmætasti fjársjóðsfundur í
skipsflaki hingað til var árið 1985
þegar spænskt skip fannst við
strendur Flórída. Skipið, sem sökk
árið 1662, var með mynt innan-
borðs að verðmæti yfir 22,4
milljarða króna.
Fundu fjársjóð í
skipi á hafsbotni