Fréttablaðið - 20.05.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 20.05.2007, Blaðsíða 78
Gætum samið við þá alla ef svo ber undir KR gerði samning við Dalibor Pauletic um að hann semdi ekki við annað lið á Íslandi. KR taldi sig ekki hafa not fyrir Pauletic og sagði að hann væri einfaldlega of dýr til að vera á bekknum og því hefur hann yfir- gefið félagið. „Það er ekkert leyndarmál að við höfðum áhuga á því að fá hann til okkar,“ sagði Gísli Gísla- son, formaður rekstrarstjórnar meistaraflokks ÍA, við Fréttablað- ið í gær. „Við töluðum nokkrum sinn- um við KR en það voru mál sem mér eru ekki kunn innan KR sem þýddi að hann var orðinn leiður á lífinu hérna. Mér skilst einnig að þeir hafi gert samkomulag við hann um að hann semdi ekki við annað lið á Íslandi. Að okkar mati var Dalibor góður kostur, ég held að KR hafi þarna misst frábæran leikmann,“ sagði Gísli. Meinað að semja við ÍA Theodór Elmar Bjarna- son verður í byrjunarliði Celt- ic sem mætir Hibernian á útivelli í lokaumferð deildarkeppninn- ar í Skotlandi í dag. Þetta verður fyrsti leikur Theodórs með aðal- liði félagsins en hann hefur farið mikinn með varaliði Celtic að undanförnu. Theodór sagði við Fréttablað- ið nýverið að hann væri enn í samningaviðræðum við Celtic um nýjan samning en möguleik- ar væru fyrir hendi að hann færi til Skandinavíu, Hollands eða Belgíu, yfirgæfi hann herbúðir skosku meistaranna. Í byrjunarliði Celtic í dag Kjartan Henry Finnboga- son er nú staddur heima á Íslandi þar sem hann ætlar að fara vand- lega yfir sín mál áður en hann ákveður hvað hann gerir næst. Kjartan er samningsbundinn Celt- ic sem hefur boðið honum tveggja ára framlengingu en Kjartan segir að 90 prósent líkur séu á því að hann fari frá félaginu. „Ég veit ekki hvað er framund- an hjá mér. Ég ætla að slappa af og setjast svo niður með fjöl- skyldu minni og tala við nokkra góða menn sem geta leiðbeint mér og sagt mér hvað er best að gera. Ég vonast til að komast til Eng- lands í sumar þegar undirbúnings- tímabilið byrjar en það er auðvit- að ekkert öruggt,“ sagði Kjart- an við Fréttablaðið í gær en hann staðfesti að hans gamla félag KR hefði þegar talað við sig þar sem enn kemur til greina að hann spili á Íslandi í sumar. „Ég gæti spilað hérna heima líka, KR er búið að hafa samband við mig og ég get varla hugsað mér að fara í aðra treyju en KR-treyj- una á Íslandi. Það er alltaf þetta „en“, ég yrði auðvitað ekki kom- inn heim til að sitja á bekknum,“ sagði Kjartan en í það minnsta þrjú ensk lið hafa verið að fylgj- ast með kappanum undanfarið. „Wolves, Southampton og Bris- tol City hafa verið að fylgjast með mér og lið frá Norðurlönd- unum líka en ég stefni á að vera á Englandi. Ég á líka eftir að tala almennilega við Ólaf Garðarson [umboðsmaður hans]. En ef ég skrifa undir hjá Celtic myndi ég setja ákvæði að ég gæti farið að láni hvert sem ég vil, hvenær sem ég vil,“ sagði Kjartan sem hefur spilað vel undanfarið með vara- liði Celtic. „Varaliðið er sterkt og ég er búinn að skora næstum því mark í hverjum einasta leik. Það er búið að vera frábær og ég var kominn á svolítið lágan punkt eftir að hafa verið meiddur lengi en ég myndi taka mikla áhættu með því að segja nei við Celtic. Það eru ekki margir 21 árs gamlir strákar sem myndu segja nei við tveggja ára samningi hjá Celtic eftir að hafa verið að æfa með aðalliðinu og hafa Gordon Strachan sem þjálf- ara. Þetta er ekki auðveld ákvörð- un sem bíður mín og ég stend á hálfgerðum krossgötum. Ég verð að fara að spila aðalliðsfótbolta fyrir framan áhorfendur og upp- lifa þennan laugardagsfótbolta. Ég er í toppformi og mér líður mjög vel og ég hef engar áhyggj- ur af því að komast ekki út,“ sagði hinn geðþekki Kjartan Henry Finnbogason að lokum. Þrjú ensk lið á eftir Kjartani Henry Rúnar Kristinsson fékk höfðinglega kveðjustund eftir leik Lokeren og Lierse í belgísku knatt- spyrnunni í gær. Rúnar kom til Lokeren árið 2000 og hefur verið einn allra besti leikmaður liðs- ins og er í miklum metum meðal áhangenda belgíska liðsins. Rúnar hefur verið fyrirliði Lokeren um árabil en hann lék sinn síðasta leik sem atvinnumaður á meginlandi Evrópu í gær. „Við töpðum leiknum að vísu 4-1 og það er auðvitað hundleiðinlegt að tapa. En ég fékk frábærar mót- tökur hjá áhorfendum og virki- lega gaman að fá að kveðja allt þetta góða fólk sem ég hef kynnst á mínum árum í Belgíu. Þetta var virkilega skemmtilegt kvöld,“ sagði Rúnar í samtali við Frétta- blaðið í gær. Hann segir að það sex og hálfa ár sem hann var hjá félaginu hafi verið afar góður tími. „Ég hef spilað með góðum og aðeins minna góðum liðum hér í Loker- en en þetta hefur alltaf verið jafn skemmtilegt.“ Rúnar neitar því ekki að kveðju- stundin hafi verið tilfinningarík. „Já, hún var mjög tilfinningarík og það var erfitt að kveðja alla. Hér höfum við fjölskyldan eignast mikið af góðum vinum og hér er margt fólk sem okkur þykir vænt um,“ sagði Rúnar. Hann snýr nú heim til Íslands eftir rúmlega tólf ára veru erlendis. „Þetta er langur tími og ríkir tilhlökkun fyrir heimferðinni en einnig smá kvíði. Það verður mikil breyting fyrir fjölskylduna og sér- staklega börnin mín. Þau hafa alla tíð búið erlendis og við munum öll þurfa smá tíma til að aðlagast líf- inu á Íslandi. Við hlökkum til að takast á við það.“ Rúnar hóf feril sinn með Leikni í Breiðholti áður en hann gekk í raðir KR. Eftir góða frammistöðu þar hélt hann út á vit ævintýranna og byrjaði atvinnumannsferil sinn hjá Örgryte í Svíþjóð árið 1997. Þaðan lá leiðin yfir landamærin til Noregs þar sem hann lék með Lill- eström þar sem hann naut mikill- ar velgengni. Árið 2000 flutti hann sig síðan um set til Lokeren. Rúnar tók fyrir nokkru þá ákvörðun um að halda heim á leið og lá beinast við að hann færi aftur í KR. Sú varð og raunin og mun hann skrifa undir samning við Vestur- bæjarfélagið í vikunni og hugsan- lega leika með því á fimmtudag- inn þegar KR mætir Val í þriðju umferð Landsbankadeildarinnar. Rúnar lék 106 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim þrjú mörk. Hann var fyrirliði í ell- efu landsleikjum. Rúnar Kristinsson lék í gær sinn síðasta leik fyrir Lokeren. Hann var í sjö ár hjá belgíska félaginu og er þeg- ar kominn í guðatölu þar á bæ en hann heldur nú heim til Íslands þar sem hann mun spila með KR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.