Fréttablaðið - 20.05.2007, Blaðsíða 15
uð plötur á Íslandi. Hvernig kom
meikharkið til?
,,Það byrjaði þegar samingurinn
okkar við Smekkleysu rann út.
Þá þurftum við að ákveða hvað
við vildum gera og ákváðum að
hella okkur út í alvöruna. Svo fóru
hlutirnir að rúlla. Það var eðli-
leg framþróun að flytja út eftir
nokkra túra því annars hefðum
við orðið gjaldþrota að eilífu. Þetta
var náttúrlega fyrir tíma Loftbrú-
arinnar. Við bjuggum í London í
tvö ár og spiluðum mjög mikið í
Bretlandi og Skandinavíu. Maður
hugsar oft til baka til þessa tíma
og spyr sjálfan sig hvort margt af
þessu hafi í alvöru gerst, eins og
til dæmis þegar við spiluðum í ein-
hverjum helli í Noregi fyrir 3000
manns.“
Hver voru bestu og verstu giggin?
,,Verstu giggin voru á einhverj-
um skítabúllum í plássum sem
maður hefur gleymt hvað heita. Það
voru kannski fjórir að horfa og einn
hundur. Oft snúast slík gigg þó upp
í innanbúðardjók og verða rosalega
fyndin eftir á. Besta giggið var lík-
lega á Reading-hátíðinni árið 2000
þegar við spiluðum á Carling-svið-
inu sem annað aðalnúmerið. Það
var geðveikt stuð og algjör snilld.
Ég hugsa að það hafi verið einn
af hápunktunum fyrir þetta litla
stelpuband frá Keflavík.“
Fannst þér einhvern tímann að
nú væri meikið alveg að bresta á?
,,Þegar maður horfir til baka eru
náttúrlega nokkur lykilaugnablik
á ferli Bellatrix þótt maður hafi
ekki fundið fyrir þeim á sínum
tíma. Eitt þeirra var til dæmis
þegar BBC1 setti lag með okkur í
dagsspilun. Þá vorum við að æfa
einhvers staðar og tíu hljómsveit-
ir hlupu inn til okkar til að segja
okkur að það væri verið að spila
okkur í útvarpinu. Við vorum bara:
,,So? Það er alltaf verið að spila
okkur á Rás 2.“ En þetta var mik-
ilvægt skref. Svo var gaman að
vinna með Fierce Panda-merkinu.
Það er bara svo ótrúlega margt
sem þarf að smella til að bönd
komist yfir þennan efri þröskuld
og komist í fyrstu deild, Bjarkar-
heiminn. Við vorum kannski ekki
alveg nógu sjóaðar í þessu.“
Ertu að meina að kannski hafið
þið gefist of snemma upp?
,,Já, veistu, ég er ekki frá því að
ef við hefðum haldið lengur áfram
þá hefði þetta getað gengið. Málið
er bara að við vorum ekki á heima-
slóðum og þegar hlutirnir fóru
úrskeiðis þá vorum við á flæði-
skeri. Það sem kippti grundvellin-
um undan þessu var að samstarfi
okkar við Fierce Panda-útgáfuna
lauk. Við kenndum sjálfum okkur
um það – að við værum ekki nógu
góð og ekki með nógu góð lög –
en í raun var þetta bara eitthvert
bransabull sem snerist um ein-
hverja bókhaldara einhvers stað-
ar sem vildu spara. Okkur var boð-
inn annar samningur en stemning-
in var ekki lengur til staðar. Við
vorum orðin þreytt og vorum öll
rosa ánægð með að fá frí frá hvert
öðru enda búin að vera saman í
rútum árum saman.“
Voruð þið ekki að spila með
Coldplay þegar þeir voru í start-
holunum?
,,Jú, það var svokallaður ,,co-
headline“-túr þar sem við og Cold-
play skiptumst á um að vera aðal-
númer kvöldsins. Þetta var fyndið
kombó því tónlist sveitanna er svo
ólík, en þetta virkaði vel. Þeir spil-
uðu efni af fyrstu plötunni sinni
og voru ekki orðnir eins fágaðir
og þeir urðu síðar.“
Kjaftasagan segir að þú hafir
verið í tygjum við Chris Martin.
,,Æi, ætlar þessi kjaftasaga aldrei
að deyja?! Við vorum bara ágæt-
is félagar og áttum okkar móment
en það er ekkert til að tala um.“
Þetta er heimsfræg poppstjarna
svo það er eðlilegt að fólki finnist
þetta merkilegt.
,,Ég sé hann ekki þannig heldur sé
ég bara klaufalegan nördagaur frá
Exeter. Hann er kannski breyttur
núna, er náttúrulega orðinn svaka
Hollywood-týpa sem mér finnst
geðveikt fyndið. Okkur fannst þeir
alltaf geðveikt miklir nördar en á
krúttlegan hátt.“
Svona er þetta: sumir verða
heimsfrægir en hinir sitja eftir
með minningarnar.
,,Einmitt. Margir kallaðir en fáir
útvaldir. Það var skemmtilegt upp-
lifelsi að fylgjast með þeim verða
vinsæl hljómsveit. Það var líka at-
hyglisvert að fylgjast með ,,The
secret rulers“: körlunum sem eru
á bak við tjöldin og opna réttar dyr
til að hlutirnir gangi alla leið.“
Nú ert þú hokin af reynslu, áttu
heilræði fyrir ung íslensk bönd?
,,Mér finnst vanta meiri metn-
að og þor hérna á Íslandi. Það eru
rosa miklir hæfileikar og það vella
út flottar hljómsveitir úti um allt,
en mér finnst að fólk mætti gera
meira af því að stökkva út í djúpu
laugina. Það er eins og fólk haldi
að það missi kúlið ef því tekst ekki
það sem stefnt var að. Mín heilræði
eru því að taka af skarið og prófa
eitthvert ævintýrarugl því það
gæti gengið upp. Og ef það geng-
ur ekki upp þá bara allt í lagi. Þú
hefur þá allavega reynsluna og er
það ekki það sem lífið snýst um, að
upplifa hluti? Ég vildi að minnsta
kosti ekki breyta neinu af því sem
ég gerði með Bellatrix. Við búum
að reynslu sem mjög fáir búa að á
Íslandi.“
Mín heilræði eru því að taka af skarið og prófa eitthvert
ævintýrarugl því það gæti gengið upp. Og ef það gengur
ekki upp þá bara allt í lagi. Þú hefur þá allavega reynsluna
og er það ekki það sem lífið snýst um, að upplifa hluti?
verndaður vinnustaður
O
D
D
I H
Ö
N
N
U
N
P
07
.0
4.
21
6
Bókarkápan 2006
Taktu þátt í netkosningu á
www.oddi.is/prentun
Auk netkosningar er valin besta bókarkápan að mati Félags starfsfólks bókaverslana,
bestu þrjár bókarkápurnar að mati dómnefndar ásamt sérstakri viðurkenningu fyrir
athyglisverða bókargerð. Verðlaunin verða afhent að Kjarvalsstöðum 23. maí nk.
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
Sími 515 5000
www.oddi.is