Fréttablaðið - 20.05.2007, Blaðsíða 80
Rafræn innritun nýnema í
Menntaskólann í Kópavogi hefst
15. maí og stendur til 12. júní.
Nýnemum og forráðamönnum
þeirra gefst kostur á að nýta tölvu-
kost skólans og fá leiðbeiningu við
innritun.
Skólameistari
Þýska úrvalsdeildin
Ítalska úrvalsdeildin
Þýska úrvalsdeildin
„Þrjú stig á móti KR,“
sagði glaðbeittur Ólafur Helgi
Kristjánsson spurður um hvað
hann vildi í afmælisgjöf í dag.
Breiðablik og KR leiða saman
hesta sína í Vesturbænum í kvöld
en félögin verma fyrir leikinn
botnsætin tvö eftir fyrstu umferð
Landsbankadeildarinnar. Bæði lið
töpuðu á heimavelli í fyrstu um-
ferðinni, KR fyrir Keflavík en
Blikar fyrir Fylkismönnum.
„Við þurfum að halda sömu tökt-
um og í síðasta leik á móti Fylki
og ná því spili og stemningu sem
var til staðar þá en skerpa á því að
klára færin. Þetta var góður leik-
ur en það dugar ekki alltaf í góð
úrslit,“ sagði Ólafur sem hefur
nýtt vikuna vel.
„Við erum búnir að vinna mikið
í því í vikunni að bæta okkur á síð-
asta þriðjungi vallarins, til dæmis
að bæta fyrirgjafirnar, lykilsend-
ingarnar til að skapa færin og
að sjálfsögðu að klára þau. Við
höfum einnig verið að herða varn-
arleikinn og skoða taktísk atriði,
til dæmis með því að skoða hvað
við getum notfært okkur í KR lið-
inu og hvað við þurfum að stoppa
hjá þeim. Við teljum okkur hafa
ákveðna þætti umfram þá,“ sagði
þjálfarinn sem skoðaði KR í leikn-
um gegn Keflavík síðastliðinn
mánudag.
„KR var miklu meira með bolt-
ann og var sterkari aðilinn lengst
af í leiknum en þeir nýttu ekki
færin sín. Þeir fengu þrjú góð
færi í fyrri hálfleik sem þeir áttu
að nýta. Við vitum að þeir eru með
gríðarlega sterkt lið og pressan er
á þeim á heimavelli, við þurfum að
nýta okkur það,“ sagði Ólafur og
bætti við að staðan á leikmanna-
hópi sínum væri góð.
Hlutskipti FH og Keflavíkur
voru þau sömu í fyrstu umferð-
inni, þrjú góð stig á erfiðum úti-
völlum. Liðin mætast í Keflavík í
kvöld og Heimir Guðjónsson, að-
stoðarþjálfari FH, segir að liðið
þurfi svo sannarlega að vera á
tánum gegn spræku liði Suður-
nesjamanna. „Það er ljóst að við
þurfum að spila vel, Keflvíking-
ar sýndu það gegn KR að þeir eru
til alls líklegir. Eins og alltaf þegar
við spilum á útivöllum komum
við til með að pressa og reyna að
sækja þessi þrjú stig, það er að
sjálfsögðu alltaf markmiðið þegar
við spilum,“ sagði Heimir.
„Keflavík er með sterka liðs-
heild og góða miðjumenn, fljóta
vængmenn og það er það sem við
þurfum helst að hafa í huga í varn-
arleik okkar,“ sagði Heimir.
Ólafur Kristjánsson vonast eftir því að fá þrjú stig á 39. afmælisdegi sínum í dag þegar Breiðablik
heimsækir KR. „Þurfum að vera á tánum,“ segir Heimir Guðjónsson um leik FH gegn Keflavík í kvöld.
Stuttgart varð meistari í
Þýskalandi í gær í fimmta skipti
eftir 2-1 sigur á Energie Cottbus.
Stuttgart komst í fyrsta skipti í
toppsætið í síðustu viku en Amrin
Veh, stjóra liðsins, tókst loks
það sem forverum hans, Felix
Magath, Giovanni Trapattoni og
Joachim Loew landsliðsþjálfara
Þjóðverja tókst ekki, að hirða tit-
ilinn á sínu fyrsta tímabili.
„Þessi titill er verðlaun fyrir
stöðugleika okkar. Við höfum allt-
af reynt að spila aðlaðandi fót-
bolta og tekið nokkra áhættu
í leiðinni,“ sagði Veh, alsæll í
leikslok. Fernando Meira, fyrir-
liði liðsins. var einnig í skýjun-
um. „Enginn taldi að við ættum
möguleika á titlinum en þetta er
verðskuldað eftir alla þá gríðar-
legu vinnu sem við höfum lagt á
okkur.“
Meistari í
Þýskalandi