Fréttablaðið - 20.05.2007, Qupperneq 4
Górillan Bokito gekk
berserksgang í dýragarði í
Rotterdam eftir að hún slapp á
undraverðan
hátt úr búri sínu.
Skelfing greip
um sig meðal
dýragarðsgesta
þegar hin 180
kílóa górilla
réðst á konu, beit
hana og dró á
eftir sér.
Lögreglu og
starfsmönnum dýragarðsins tókst
að króa górilluna af inni á
veitingastað á svæðinu þar sem
hún var yfirbuguð með deyfilyfj-
um. Að minnsta kosti tveir
slösuðust að sögn talskonu
lögreglunnar.
Vitni sagðist hafa séð górilluna,
blóðuga í framan, draga konuna á
með sér um þrjátíu metra leið.
Górilla réðst á
dýragarðsgesti
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Neytendastofa er nú að
meta hvort rétt sé að setja skýrari
reglur um verðmerkingar og tilboð
í verslunum og veitingahúsum,
með fyrirfram ákveðnum viðurlög-
um fyrir þær verslanir sem brjóta
gegn reglunum. Von er á fyrstu nið-
urstöðum í júní.
Neytendastofa hefur eftirlit með
því að reglum um verðmerkingar
sé fylgt og að til-
boðsvörur séu
sannarlega á til-
boði og rétt
merktar sem
slíkar. Neyt-
endastofa hefur
jafnframt víð-
tækar heimildir
til að beita sekt-
um séu reglurn-
ar brotnar, en
upphæð sekta á að meta í hvert
skipti.
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neyt-
endastofu, segir að ábendingum frá
neytendum um að ekki sé rétt stað-
ið að verðmerkingum, einkum í
tengslum við tilboð í verslunum,
hafi farið fjölgandi undanfarið.
„Ef fjöldi ábendinga og athuga-
semda fer að verða meiri samfella
hlýtur eftirlitsstofnun eins og Neyt-
endastofa, sem fer með þessi mál,
að skoða hvort ekki þurfi nánari
reglur, leiðbeiningar eða tilmæli
um þessa hluti, þannig að það sé
alveg skýrt til hvers er ætlast á
grundvelli laganna,“ segir Tryggvi.
Hann segir að sérfræðingar
Neytendastofu séu nú að vinna í
athugun á þessum reglum, og lík-
lega muni þeir skila fyrstu niður-
stöðum sínum í næsta mánuði. Þeir
muni einnig kanna hvernig aðrar
þjóðir hafi breytt sínum reglum á
undanförnum árum.
Neytendastofa hefur heimildir
til að beita sektum sé brotið gegn
reglum um verðmerkingar, en
Tryggvi segir að sektarákvæðum
hafi aldrei verið beitt frá því þau
voru sett í kringum aldamótin.
Því segir Tryggvi að verði það
niðurstaða Neytendastofu að herða
þurfi reglur um verðmerkingar, sé
vel hugsanlegt að sektarákvæðum
verði einnig breytt. Þá komi til
greina að setja upp fyrirfram
ákveðinn sektarramma fyrir brot á
reglunum í stað þess að ákveða
þurfi sektirnar sjálfstætt í hverju
tilviki.
Reglurnar gætu þannig verið
settar upp eins og umferðarregl-
urnar, þar sem sektarákvæðin eru
skýr og ákveðin fyrir hverja tegund
brots, hvort sem það er hraðakstur
eða akstur gegn rauðu ljósi, segir
Tryggvi.
Í skoðun að herða
reglur og viðurlög
Neytendastofa kannar nú hvort endurskoða þurfi reglur um verðmerkingar í
verslunum og viðurlög við brotum á þeim. Forstjóri Neytendastofu segir að ef
til vill þurfi að setja nokkurs konar umferðarreglur fyrir þennan málaflokk.
Mótmælaganga
stjórnarandstæðinga í Samara í
Rússlandi á föstudag var óvenju-
leg að því leyti að stjórnvöld höfðu
fyrirfram gefið
leyfi fyrir henni.
Þó fengu ekki allir
sem vildu að taka
þátt í henni.
Þannig urðu
bæði Garry
Kasparov
skákmeistari og
Eduard Limonov,
sem eins og
Kasparov er
þekktur andstæðingur Vladimírs
Pútíns forseta, fyrir löngum töfum
af völdum lögreglu á flugvellinum
í Moskvu, sem varð til þess að þeir
komust ekki um borð í flugvél
áleiðis til Samara í tæka tíð.
Leyfi fékkst en
með skilyrðum
Karlmaður á
þrítugsaldri hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald vegna
alvarlegrar líkamsárásar á
uppstigningardag.
Maðurinn er grunaður um að
hafa brotist inn á heimili við
Skólavörðustíg og ráðist þar á
húsráðanda sem lá sofandi í rúmi
sínu.
Nágranni mannsins kallaði til
lögreglu sem kom þegar í stað á
vettvang. Þá var árásarmaðurinn
á bak og burt en náðist síðar.
Fórnarlambið var flutt á slysa-
deild Landspítalans með opið
nefbrot, kjálkabrot og laskað
kinnbein.
Veittist að
sofandi manni
Árni Finnsson, for-
maður Náttúruverndarsamtaka
Íslands, hvetur Paul Watson, leið-
toga Sea Shepherd samtakanna, til
að hætta við fyrirhugaða ferð sína
til Íslands. Watson segist ætla að
hafa beiðnina að engu, og segir
félaga í Sea Shepherd tilbúna að
hætta lífi sínu eða fara í fangelsi til
að koma málstað sínum á framfæri.
Í bréfi sem Árni sendi Watson
fyrir hönd samtakanna nýverið
segir hann aðgerðir Sea Shepherd,
sem miða að því að koma í veg fyrir
hvalveiðar Íslendinga, í besta falli
tilgangslausar. Í versta falli muni
þær gera Íslendinga ákveðnari í að
veiða hvali.
„Ég vildi bara láta vita að við
teljum þessa heimsókn óþarfa og
jafnvel skaðlega,“ segir Árni. „Á
meðan ekki selst hvalkjöt í Japan
er engin leið til að halda þessum
veiðum áfram, og kannski best að
hætta þeim. Ég held að heimsókn
sem þessi sé málstaðnum engan
veginn til hagsbóta.“
Watson svaraði Árna bréflega í
gær. Í bréfi hans segir meðal ann-
ars: „Þú ættir að skammast þín
fyrir það að Íslendingar slátri hvöl-
um með ólögmætum hætti, og ættir
að beita kröftum þínum til að stöðva
hvalveiðarnar en ekki okkur.“
Watson segir áhöfn skips Sea
Shepherd tilbúna til að hætta lífi
sínu og fara í fangelsi til að verja
hvali við Íslandsstrendur. Það eti
orðið mikið uppistand sem muni
beina athygli umheimsins að ólög-
mætum hvaladrápum.
Watson hefur beiðnina að engu
Hundruð
ungmenna lentu í átökum við
lögreglu í Kaupmannahöfn
snemma í gærmorgun. Kveiktu
þau meðal annars í götuvígjum til
að mótmæla niðurrifi timburhúss
í Kristjaníu, sem kallað er
„Vindlakassinn“. Mótmælin
hófust í fyrradag. Köstuðu
mótmælendur þá flöskum og
steinum að lögreglu. Tæplega
þrjátíu voru handteknir, að sögn
lögreglu en 21 var leystur úr
haldi skömmu síðar.
Átök milli mótmælenda og
lögreglu brutust fyrst út á
mánudagsmorgun þegar niðurrif
hússins hófst. Mótmælendur eru
bæði úr röðum íbúa Kristjaníu og
utanaðkomandi.
29 handteknir
vegna óeirða