Fréttablaðið - 01.07.2007, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sunnudagar
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
46%
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
71%
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
1. júlí 2007 — 176. tölublað — 7. árgangur
Dellur fyrr og nú
20 EFTIRMINNILEGUSTU ÆÐIN
SEM HELTEKIÐ HAFA ÞJÓÐINA
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, beitti
sér með ýmsu móti fyrir myndun vinstri stjórn-
ar í aðdraganda og í kjölfar alþingiskosninganna
12. maí.
Hann skynjaði áhugaleysi meðal framsóknar-
manna á slíku stjórnarsamstarfi fyrir kosningar
og eftir þær lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, efasemdum.
Steingrímur og Ingibjörg Sólrún áttu nokkur
trúnaðarsamtöl um pólitísku stöðuna nokkrum
vikum fyrir kosningar.
Þau hittust meðal annars í tvígang á heimili
Ingibjargar.
Á þeim fundum sagðist Steingrímur vilja að
bönd þeirra yrðu styrkt. Auk samkomulags um
að stjórnarandstaðan talaði saman ef ríkisstjórn-
in félli myndu þau bindast fastmælum um að
ræða ekki ríkisstjórnarsamstarf við aðra flokka
án samráðs hvort við annað.
„Þessu eyddi Ingibjörg en ræddi í staðinn
möguleikann á að kanna hvort framsóknarmenn
hefðu einhvern hug á samstarfi við okkur ef
útkoman yrði slík að nauðsynlegt væri að horfa
til þeirra,“ segir Steingrímur í viðtali við Frétta-
blaðið í dag.
Steingrímur tók að sér að kanna afstöðu Fram-
sóknar og varð þess áskynja að þar á bæ væri
lítill áhugi á samstarfi við vinstri flokkana.
Áður hafði Steingrímur fullvissað Ingibjörgu
Sólrúnu um að hann hefði ekkert á móti því að
Samfylkingin gerði kröfu um forsætisráðherra-
embættið í hugsanlegri ríkisstjórn flokkanna,
með eða án þátttöku annarra. Sú krafa væri full-
komlega eðlileg.
Eftir kosningar lýsti Steingrímur áhuga á
myndun minnihlutastjórnar VG og Samfylking-
ar – jafnvel með þátttöku Frjálslynda flokksins
– sem nyti stuðnings Framsóknarflokksins.
Ingibjörg Sólrún tók hugmyndinni með fyrir-
vörum.
Hún taldi slíka stjórn of veika og hafði áhyggj-
ur af því að Framsóknarflokkurinn gæti haldið
henni í gíslingu. „En þetta varð nú ekki, því
miður, og þarna held ég að hafi kulnað síðustu
möguleikarnir á að til yrði öðruvísi ríkisstjórn
en sú sem varð,“ segir Steingrímur.
- bþs / sjá síður 12 og 13
Steingrímur bauð Ingibjörgu
að verða forsætisráðherra
Steingrímur J. Sigfússon taldi eðlilegt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yrði forsætisráðherra í hugsanlegri
vinstri stjórn að loknum kosningunum í maí. Hann kannaði afstöðu Framsóknarmanna til þátttöku í
slíkri stjórn fyrir kosningar og reifaði síðar hugmyndir um minnihlutastjórn með stuðningi Framsóknar.
Trabant á Glastonbury
Strákarnir í hljómsveitinni
Trabant fóru ekki var-
hluta af drullunni sem
var á Glastonbury-tón-
leikahátíðinni fyrir
skömmu.
FÓLK 20
Laxinn mun koma
Ingvi Hrafn Jónsson segir það
aðeins tímaspursmál
hvenær laxinn láti
sjá sig. Júnímánuð-
ur er sá versti sem
hann hefur
upplifað.
FÓLK 30
Mögnuð Miðja
Blaðamaður Fréttablaðsins skellti
sér í KR-búninginn á dögunum
og upplifði frá fyrstu hendi
hvernig það er að vera
hluti af Miðjunni, hinni
rómuðu stuðnings-
mannasveit KR.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
VIÐSKIPTI Marel hefur aukið við
hlut sinn í hollensku samstæð-
unni Stork og situr nú á tæpum
sautján prósentum.
Fyrir átti Marel, sem hefur
sóst eftir því að kaupa matvæla-
vinnsluvélahluta Stork, tæp
ellefu prósent.
Fjárfestingafélagið Candover
hefur lýst yfir áhuga á að gera
1,5 milljarða evra yfirtökutilboð
í Stork. Það jafngildir 127
milljörðum króna.
Stuðningur er við tilboðið hjá
stórum hópi hluthafa Stork en
samþykki 80 prósent þeirra þarf
til eigi það að ganga í gegn.
Með eignarhlut Marels nú,
sem er mótfallið tilboði Candov-
er, virðist sá stuðningur ekki til
staðar. - jab
Andstaða við yfirtöku eykst:
Marel eykur við
hlut sinn í Stork
samstæðunni
HÆGVIÐRI Í dag verður hægviðri
eða hafgola. Yfirleitt bjartviðri
norðan til og á Vestfjörðum annars
skýjað með köflum. Hætt við
síðdegisskúrum og sums staðar
þokulofti með ströndum. Hiti víðast
10-17 stig, hlýjast til landsins.
VEÐUR 4
Reykvískur
„sundurleitismi“
„það er engum vafa undirorpið að
fólk dregst að miðbænum meðal
annars vegna gömlu húsanna,“
segir Oddný Sturludóttir.
Í DAG 8
BYGGÐAMÁL Fimm sveitarfélög af
sjö sem seldu eignarhlut sinn í
Hitaveitu Suðurnesja geta greitt
upp allar skuldir og skuldbind-
ingar sínar. Sveitarfélögin eiga
þrátt fyrir það milljarða í sjóði.
Sveitarfélögin sem eiga í hlut eru
Grindavík, Vestmannaeyjar,
Sandgerði, Garður og Vogar.
Eignarhlutur sveitarfélaganna í
Hitaveitunni hefur rúmlega sjö-
faldast á einum og hálfum mán-
uði. Til dæmis hefur eignarhlut-
ur Grindavíkurbæjar vaxið úr
634 milljónum í 4,5 milljarða.
Skuldir sveitarfélagsins voru við
árslok 2006 rúmlega milljarður
króna.
„Ekkert hefur verið ákveðið
ennþá en ljóst er að þetta eru áður
óþekktar stærðir. Það sér það
hver maður að þessar fjárhæðir
breyta öllu fyrir sveitarfélögin
sem eiga í hlut,“ segir Jóna Krist-
ín Þorvaldsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Grindavíkurbæjar.
„Þetta gefur gríðarleg tæki-
færi til framtíðar, það er ekki
hægt að neita því. Þetta breytir
stöðunni fyrir samfélagið hér
algjörlega,“ segir Óskar Gunn-
arsson, forseti bæjarstjórnar
Sandgerðisbæjar. Óskar segir að
öll sveitarfélögin sem í hlut eiga
hafi hátt þjónustustig. „Það er
mikill metnaður á Suðurnesjum
en ég er viss um að þau sveitar-
félög sem hafa fengið þessa fjár-
muni munu draga að sér fólk. - sh
Sala eignarhluta í Hitaveitu Suðurnesja veldur straumhvörfum í rekstri:
Fimm sveitarfélög skuldlaus
PYNTINGAR Á AUSTURVELLI Fólk sem átti leið um Austurvöll í gær rak upp stór augu þegar það varð vart við hrottalegar pyntingar
sem þar áttu sér stað. Þegar betur var að gáð kom í ljós að þarna voru á ferð fulltrúar Amnesty International sem vildu með
uppátækinu vekja athygli á þeim pyntingaraðferðum sem notaðar eru í „stríðinu gegn hryðjuverkum“. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON