Fréttablaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 64
MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400 MotorMax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070 - MotorMax Akureyri - Sími 460-4350 www.motormax.is Nú er einstakt tækifæri til að ná afar góðum samningum við sölumenn okkar sem eru í sólskinsskapi og veita aldeilis frábær tilboð á síðstu Camplet tjaldvögnunum og Starcraft fellihýsunum. Fyrstur kemur fyrstur fær. Þetta er tækifæri ársins til að ná sér í kostagrip á frábæru verði! Draumavagninn þinn á frábæru sumartilboði! Á von á tilboði frá Brann og IFK Göteborg Brasilíumaðurinn Fel- ipe Massa keyrði manna hraðast á rauða Ferrari-bílnum sínum í tímatökunni fyrir franska kapp- aksturinn í gær. Hinn magnaði Lewis Hamilton á McLaren var með næstbesta tímann og félagi Massa, Kimi Raikkonen, varð þriðji í tímatök- unni. Heimsmeistarinn Fernando Alonso lenti í vandræðum með vélina og endaði í tíunda sæti. Fari svo að Alonso þurfi að skipta um vél fyrir keppnina fellur hann sjálfkrafa niður í tuttugasta sæti. „Það er ekki alltaf hægt að hafa hlutina fullkomna en liðið stóð sig frábærlega,“ sagði Hamilton sem getur aukið forskot á Alonso í dag. Robert Kubica á BMW er fjórði á ráslínunni og Fisichella á Ren- ault fimmti. Nico Rosberg á Willi- ams endaði með níunda besta tím- ann í Frakklandi í gær. Frábær akstur hjá Massa Flest bendir til þess að unglingalandsliðsmaður- inn Rúrik Gíslason muni semja við danska úrvalsdeildarfélag- ið Viborg í næstu viku. Félag- ið hefur boðið Rúrik álitlegan þriggja ára samning sem hann er að fara yfir þessa dagana. „Tilboðið hljómar mjög vel og það kom mér á óvart hversu gott það er. Það er betra en önnur til- boð sem ég hef fengið. Það er ekki að skemma fyrir og sýnir einnig að félagið hefur greinilega mikinn áhuga á að fá mig,“ sagði Rúrik við Fréttablaðið í gær en hann mun svara danska liðinu í næstu viku. „Þetta er áhugaverður klúbbur sem mér leist vel á. Ég æfði með liðinu í nokkra daga og líkaði það sem ég sá og þeim virðist einn- ig hafa líkað það sem þeir sáu af mér,“ sagði Rúrik en hann hefur undanfarin ár verið í herbúðum Charlton en tókst ekki að brjóta sér leið í aðallið félagsins. Hann segist ekki geta setið á bekknum mikið lengur. „Nú er kominn tími fyrir mig að fara að spila. Það er mjög mik- ilvægt ef ég ætla að taka skref- ið frá því að vera efnilegur yfir í að vera góður leikmaður. Það er ekki alltaf auðvelt skref að taka,“ sagði Rúrik en fjölmörg félög í Skandinavíu hafa sýnt honum áhuga síðustu vikur en Viborg virðist ætla að hafa vinninginn. Unglingalandsliðsmaðurinn Rúrík Gíslason er að öllum líkindum á leið til danska úrvalsdeildarfélagsins Viborg. Danska liðið hefur boðið honum góðan þriggja ára samning. Tilboðið er betra en Rúrik gerði ráð fyrir. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Fern- ando Torres væri á leið til Liver- pool og að enska félagið myndi greiða Atletico Madrid 26,5 milljónir punda fyrir kappann. Torres yrði þar með dýrasti leik- maður í sögu félagsins en Djibril Cisse er dýrasti leikmaðurinn en hann kostaði 14 milljónir punda. Það sem ýtir enn undir að þetta sé rétt er sú staðreynd að Atletico keypti Diego Forlan í gær frá Villarreal á 14 milljón- ir punda en hann á að leysa Tor- res af hólmi. Liverpool er einnig talið vera á höttunum eftir Gabriel Heinze, varnarmanni Man. Utd, en það gæti tekið tíma enda fara leik- menn sjaldan á milli þessara erkifjenda. Á leið til Liverpool Mörkin tvö sem Valur fékk á sig á heimavelli gegn írska liðinu Cork City reyndust liðinu dýrkeypt því þau felldu liðið úr Intertotokeppninni á endanum. Valur stóð sig vel í síðari leiknum sem fram fór ytra í gær og vann 1- 0 með marki Helga Sigurðssonar en það dugði ekki til þar sem Cork vann fyrri leikinn á Laugardals- velli 2-0. Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, stillti upp sama liði og vann FH á eftirminnilegan hátt á dögun- um. Hlíðarendapiltar byrjuðu leik- inn geysilega vel og eftir aðeins tuttugu mínútur var Helgi búinn að koma þeim yfir. Eitt mark í við- bót hefði tryggt Val framlengingu og nóg eftir. Því miður fyrir Val náði liðið ekki að bæta við marki. Cork mætir sænska liðinu Hammarby í næstu umferð en með liðinu leika Framararnir Gunnar Þór Gunnarsson og Heið- ar Geir Júlíusson en Hammarby sló út færeyska liðið Klakksvík. Valur úr leik þrátt fyrir sigur í Írlandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.