Fréttablaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 2
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Nokkrir Íslendingar lifa á því
að spila póker á netinu. Um daginn
vann Íslendingur 6,2 milljónir
króna á vefsíðunni Betsson. Annar
vann sér inn 10 milljónir króna á
einum mánuði nýverið.
Sá sem vann sér inn 10 milljónir
hefur haft ágætar tekjur af spila-
mennskunni. Hann vill ekki koma
fram undir nafni en hann er kunn-
ur afreksmaður í íþróttagrein ekki
svo ólíkri pókernum. Hann byrjaði
að spila póker á netinu fyrir tveim-
ur árum. Þá var hann lítillega búinn
að gutla í póker með vinum sínum.
Hann tapaði 200.000 krónum fyrsta
mánuðinn en vann sig smám saman
upp og hafði líklega um 5 milljónir
króna í tekjur fyrsta árið. Hann
spilaði mjög mikið þá, allt upp
undir átta tíma á dag. Hann spilar
mun minna núna en hefur þó mun
meira upp úr krafsinu en hann
gerði fyrsta árið. Hann vildi þó
ekki nefna ákveðna tölu, sagðist
ekki fylgjast mjög mikið með því
hversu mikið hann ynni sér inn og
héldi ekki utan um það.
Hann telur að þótt hann hafi
aldrei unnið jafn mikinn pening og
þennan mánuð þegar hann vann tíu
milljónir þá sé það lítið mál að
endurtaka leikinn ef hann kæri sig
um. Hann hafi náð þessum fram-
förum sem þarf til að græða svona
mikið. Hann er þó ekki viss um að
hann nenni að eyða þeim tíma sem
þarf til að vinna sér inn þessar upp-
hæðir. Hann ætli sér þó að halda
áfram að lifa á spilamennskunni.
Georg Haraldsson, tölvufræð-
ingur og áhugamaður um póker,
vill að pókermót líkt og það sem
lögreglan stöðvaði um daginn verði
leyfð. Pókermót séu ekki eins og
hefðbundinn póker en í honum er
veðjað um þá peninga sem spilað
er með. „Þetta er bara spil eins og
brids, sem er einnig hægt að veðja
í,“ segir Georg. „Allir lögfræðing-
ar sem ég hef rætt við telja að lög-
reglan hefði ekki átt að stöðva
mótið.“
Póker er ólöglegur í Danmörku
nema í spilavítum en þau eru ríkis-
rekin þar. Dómsmálaráðherra
Dana ætlar að leggja til í haust að
pókermót verði lögleg að því er
fram kemur í Berlingske Tidende.
Þetta sé orðinn vinsæll leikur og
ráðherranum finnst fáránlegt að
hinn almenni heimilisfaðir sé að
brjóta lög fyrir það eitt að spila við
félaga sína.
Vann tíu milljónir á
einum mánuði
Nokkrir Íslendingar lifa á því að spila póker á netinu. Pókeráhugamenn vilja
leyfa pókermót og segja þau í engu frábrugðin skák- eða golfmótum. Dóms-
málaráðherra Danmerkur ætlar að leggja til að pókermót verði leyfð þar.
Kirkjugarðaráð og
Samband íslenskra sveitarfélaga
hafa náð samkomulagi um
skyldur sveitarfélaga og
kirkjugarðsstjórna vegna nýrra
kirkjugarða.
Með reglunum verður sveitar-
félögum skylt að afhenda lóðir
undir kirkjugarða án gjalds,
leggja til efni í girðingar og
leggja vegi að kirkjugörðunum.
Kirkjugarðaráði er gert skylt
að hafa samráð við sveitarfélög
um nýframkvæmdir og leggja
fram kostnaðaráætlanir. Þetta er
í fyrsta sinn sem reglur af þessu
tagi eru samþykktar.
Samkomulag
um kirkjugarða
Rúmlega tvítugur
karlmaður hefur verið dæmdur í
þrjátíu daga skilorðsbundið
fangelsi, í Héraðsdómi Norður-
lands eystra, fyrir að slá lögreglu-
konu hnefahögg í brjóstkassa
þannig að mar hlaust af.
Atvikið átti sér stað í anddyri
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Lögreglukonan hafði afskipti af
manninum vegna starfs síns með
fyrrgreindum viðbrögðum af hans
hálfu. Hann játaði sök fyrir dómi.
Maðurinn sem dæmdur var
hefur ekki áður verið dæmdur til
refsingar. Með hliðsjón af því, svo
og verulegum, óútskýrðum drætti
sem varð á rannsókn málsins, þótti
ofangreind refsing hæfileg.
Sló og meiddi
lögreglukonu
Allar fangageymsl-
ur lögregunnar á höfuðborgar-
svæðinu voru fullar á laugar-
dagsmorgun eftir erilsama nótt.
Nokkuð var um eignaspjöll og
voru tveir ungir menn hand-
teknir á Grettisgötu þar sem
þeir höfðu skemmt átta bíla.
Þá voru tveir menn gómaðir
við það að stela lítilli beltagröfu
í Þverholtinu. Mennirnir höfðu
komið gröfunni upp á kerru en
lögregla náði til þeirra áður en
þeir stungu af.
Mikil ölvun var í miðborginni
og fengu nokkir að sofa úr sér í
fangaklefa.
Reyndu að stela
beltagröfu
Öll flugfélög Indónes-
íu verða sett á svartan lista
Evrópusambandsins og meinað að
fljúga til landa sambandsins.
„Listinn sýnir að hann er
mikilvægur til að koma í veg
fyrir að ótraust flugfélög fljúgi til
Evrópu,“ sagði Jacques Barrot,
varaforseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins.
„Við eigum eftir að skila inn
nýjustu gögnum til framkvæmda-
stjórnarinnar. Þau sýna að öryggi
indónesískra flugfélaga er að
aukast,“ segir Budhi Mulyawan,
yfirmaður flugmála í Indónesíu.
Fyrir bannið var 91 flugfélag á
listanum, þar af 74 frá Afríku.
Ótraust flugfé-
lög stöðvuð
Lögreglumanni í
Fíladelfíu í Bandaríkjunum hefur
verið vikið úr starfi fyrir að skipa
tveimur konum sem voru í
fangaklefa að halda fyrir sig
kynlífssýningu.
Brotið átti sér stað árið 2003
þegar lögreglumaðurinn skipaði
konunum að kyssast, snerta hvor
aðra og bera brjóstin.
Konurnar höfðu verið hand-
teknar vegna gruns um eitur-
lyfjamisferli. Þær höfðu hins
vegar engin eiturlyf á sér og var
því sleppt án ákæru.
Önnur konan höfðaði mál gegn
lögreglunni sem dæmt var í fyrir
skömmu. Hún fékk rúma milljón í
skaðabætur.
Kynlífssýning í
fangaklefa
Viðbúnaðarstig vegna hryðju-
verkaógnar var hækkað á Bretlandseyjum í gærkvöld
eftir fund í neyðarnefnd ríkisins. Ákvörðunin var tekin
í kjölfar tilrauna til sprengjuárása í Lundúnum og árás-
ar á flugvöllinn í Glasgow. Gordon Brown, utanríkis-
ráðherra Bretlands, staðfesti í gær að um árás hefði
verið að ræða þegar tveir menn óku logandi jeppabif-
reið inn í flugstöðvarbygginguna í Glasgow síðdegis.
Miklar sprengingar urðu þegar bifreiðin hafnaði á
byggingunni en mildi þykir að enginn slasaðist. Flug-
stöðin var rýmd í kjölfarið og öllu flugi aflýst. Þá var
öryggisgæsla hert á öðrum breskum flugvöllum
meðal annars á Heathrow og Stansted. Tveir menn
voru í bifreiðinni og voru þeir handteknir. Enginn
hefur lýst árásinni á hendur sér.
Enn hefur enginn verið handtekinn vegna sprengja
sem fundust í bifreiðum í Lundúnum á föstudag. Fyrri
sprengjan fannst í bifreið sem lagt hafði verið skammt
frá Piccadilly Circus en sú síðari í bifreið skammt frá
Hyde-garðinum. Stjórnvöld útiloka ekki að sprengjurn-
ar geti tengst þekktum hryðjuverkasamtökum á borð
við al-Kaída.
Ekki er vitað hvort tengsl eru milli atburðanna í
Lundúnum og Glasgow.
Maður var fluttur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur eftir harðan árekstur á Höfn í Horna-
firði í gær. Þrír slösuðust en meiðsli tveggja voru
minniháttar.
Slysið varð með þeim hætti að bifreið var ekið eftir
Víkurbraut í veg fyrir aðra bifreið sem ók eftir
Hafnarbraut. Við áreksturinn kastaðist annar bíl-
anna upp á gangstétt og hafnaði þar á tveimur gang-
andi vegfarendum. Þeir slösuðust lítillega en sá sem
slasaðist mest var farþegi í aftursæti bifreiðarinn-
ar. Fjórir voru í bílnum og sluppu hinir þrír ómeidd-
ir. Farþega í hinni bifreiðinni sakaði ekki. Að sögn
lögreglu var maðurinn sem slasaðist ekki í bílbelti.
Mikill mannfjöldi er saman kominn á Humarhátíð-
inni á Höfn og þar hefur allt farið vel fram. Ein
líkamsárás er þó til rannsóknar en hún átti sér stað
á tjaldsvæðinu aðfaranótt laugardags.
Ragnheiður, lifið þið þetta af?