Fréttablaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 6
„Það er nauðsynlegt að fara af stað með nýja göngu- deild fyrir spilafíkla,“ segir Júlí- us Þór Júlíusson, formaður Sam- taka áhugafólks um spilafíkn (SÁS). Hann segir að ætlunin sé að opna slíka deild í haust. Við- ræður við fagmenn séu hafnar og undirtektir yfirvalda við beiðni um fjárstuðning góðar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri er jákvæður í garð þessarar áforma. „Þetta er dulin fíkn en vandinn sem hlýst af henni er gríðarlega mikill,“ segir Vilhjálmur. Hann segir samþykki fyrir fjárstuðningi ekki enn fyrir hendi en hann telji sjálfur brýnt að starf til að sporna við fíkninni verði aukið. „Ég veit sjálfur af fólki sem hefur lent í miklum vandræðum vegna þessarar fíknar og geri mér grein fyrir því hve alvarlegt málið er. Það er engin tilviljun að Norðmenn eru að breyta lagaum- hverfi um spilakassa,“ segir Vil- hjálmur. Hann vísar þá í nýlega ákvörðun Norðmanna um að ríkis- væða rekstur spilakassa til að reyna að stemma stigu við spila- fíkn þar í landi. Borgarstjóri og Júlíus segjast báðir undrandi yfir þeim ummæl- um sem Gunnar Þorgeirsson, gjaldkeri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, lét nýverið falla í fjölmiðlum. Sagði hann að spila- kassar væru ekki hættulegri en lottómiðar. Landsbjörg er einn þriggja eigenda Íslandsspila en aðeins Landsbjörg og Happ- drætti Háskólans hafa leyfi fyrir rekstri spilakassa hér á landi. Í lögum um happdrætti er sagt skilyrði að leyfishafar spilakassa leggi fram fé til rannsókna og aðgerða sem miða að því að sporna við spilafíkn og afleiðing- um hennar. Júlíus segir að hing- að til hafi samtök hans ekki hlot- ið neina styrki en eitthvað fái SÁÁ en það er einn af eigendum Íslandsspila. Þórarinn Tyrfings- son, yfirlæknir SÁÁ, segir að fé hafi verið veitt til meðferðarúr- ræða við spilafíkn. Hann segir þó oft erfitt að veita spilafíklum aðstoð þar sem þeir sækist ekki mikið eftir henni sjálfir. „Það er samt ekki hægt annað en að gleðjast yfir því að fleiri úrræði muni standa til boða,“ segir Þór- arinn. Júlíus segir að árlega leiti um þúsund manns, bæði spilafíklar og aðstandendur þeirra, til sam- taka sinna. Þörf sé á að veita þessu fólki frekari aðstoð. Göngudeild fyrir spilafíkla undirbúin Borgarstjóri segist hlynntur áformum um að opnuð verði sérstök göngudeild fyrir spilafíkla. Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir um þúsund manns leita árlega hjálpar samtakanna. Þörf sé á frekari úrræðum fyrir það. Veiðar á lunda hafa farið minnkandi í Vest- mannaeyjum undanfarin tvö ár. Árangur af varpi hefur verið lítill sem hefur valdið því að lítið er til af ungfugli. Óskráð regla er að veiða helst ungfugl. Hann er tveggja til þriggja ára og ekki orðinn kynþroska og því er ekki verið að eyðileggja varp með því að veiða hann. Lundinn er langlífur fugl og því skipta tvö til fjögur slæm ár ekki miklu máli að mati Páls Marvins Jóns- sonar, líffræðings hjá Rannsókna- og fræðasetrinu í Vestmannaeyjum. „Aðaláhyggjuefnið er hins vegar þessi vöntun á fæðunni sem er sílið,“ segir Páll. „Síli virðist ekki vera hér á svæðinu en það er meginuppistaðan í fæði lund- ans á Suðurlandi. Meðan hann er ekki í fæði hér er allt- af sú hætta fyrir hendi að lunda fækki eða hann hverfi af svæðinu.“ Bjargveiðimannafélag Vestmannaeyja hefur álykt- að að láta lundann njóta vafans og minnka veiðar á honum. Ívar Atlason, formaður félagsins, segir ætlun- ina vera að ganga um náttúruna af skynsemi og veiða rétt svo í soðið meðan þetta ástand varir. „Þetta er ákveðin menning sem hefur skapast hér í Vestmanna- eyjum og við viljum ekki að hún leggist af,“ segir Ívar. Hefðbundin veiði hefst 1. júlí og lýkur í ágúst en mælst er til þess að farið verði hægt í sakirnar. Lundaveiði í lágmarki í sumar Mál líbíska leyni- þjónustumannsins, sem var dæmdur fyrir að sprengja upp flugvél yfir bænum Lockerbie í Skotlandi árið 1988, verður að öllum líkindum tekið upp að nýju. Sérskipuð dómnefnd í Skotlandi hefur mælt með því að málið fari fyrir áfrýjunardómstól vegna vafasamra sönnunargagna. Líbíumaðurinn Abdel Basset Ali al-Megrahi hlaut lífstíðardóm fyrir verknaðinn. Hann var sá eini sem hlaut dóm, en 259 farþegar og ellefu manns á jörðu niðri létu lífið í sprengingunni. 179 þeirra voru Bandaríkjamenn. Niðurstöðurnar voru reifaðar í 800 blaðsíðna skýrslu. Fram kom að mögulega hefði rangur dómur fallið yfir al-Megrahi. Al-Megrahi hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu, en hann var dæmdur fyrir ódæðið árið 2001. Umsókn um áfrýjun var hafnað ári seinna. Samlandi hans var einnig ákærður, en sýknaður. Líbísk stjórnvöld buðust til að borga fjölskyldum hinna látnu sárabætur, en neituðu þó allri sök. Lögmenn al-Megrahi halda því fram að yfirvöld hafi átt við sönn- unargögn, hunsað yfirlýsingar vitna og hafnað sönnunargögnum þess efnis að sprengingin hafi verið fjármögnuð af Írönum og framkvæmd af Palestínumönnum í hefndarskyni fyrir að Banda- ríkjaher hafði skotið niður íranska farþegaflugvél nokkrum mánuð- um áður. Lockerbie-málið fyrir rétt á ný Karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suður- lands í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umfangsmikla kannabisræktun. Jafnframt fyrir að hafa ætlað að selja efnin. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa á tímabilinu ágúst 2005 til desember sama ár ræktað 163 kannabisplöntur í gamla slátur- húsinu í Laugarási á Suðurlandi. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa um 1,3 kíló af marijúana og rúm fjögur kíló af kannabis- laufum í vörslu sinni. Auk þessa var maðurinn ákærður fyrir að stela rafmagni til ræktunarinnar. Dæmdur fyrir kannabisræktun Þarf að bæta öryggi á sund- stöðum? Eru sektir vegna umferðarlaga- brota orðnar of háar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.