Fréttablaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 46
Sævar Sigurðsson er einn
eigenda margmiðlunar-
fyrirtækisins Kapital.
Starf Sævars innan fyrir-
tækisins felst aðallega í
því að leikstýra auglýs-
ingum.
Kapital er tiltölulega nýtt
fyrirtæki sem varð til
þegar fyrirtækin Þeir tveir
og Prax sameinuðust fyrir
nokkrum mánuðum síðan.
„Ég var þá búinn að vera hjá
Þeim tveimur síðan 2002 og
fylgdi með,“ segir Sævar.
Starfsemi Kapital er mjög
fjölbreytt að sögn Sævars.
„Kapital er svona auglýs-
ingaframleiðslufyrirtæki
skástrik vefsíðu- og hugbún-
aðarfyrirtæki og þessir tveir
geirar blandast svolítið í því
sem við erum að gera. Við
framleiðum sjónvarpsaug-
lýsingar og útvarpsauglýs-
ingar og í rauninni auglýs-
ingar í allt nema prentmiðla.
Svo erum við líka í vefsíðum
og svoleiðis og höfum svolít-
ið verið að nýta vídeókraft-
ana og vefsíðukraftana í að
sameina vídeóið vefnum.“
Sævar segist hafa farið
að vinna hjá Þeim tveimur
strax að loknu námi í Versl-
unarskóla Íslands. „Ég hef
alltaf verið að gera stutt-
myndir, bæði þegar ég var í
Versló og eftir það svona til
hliðar, og get því í rauninni
gert allt, myndað, klippt og
leikstýrt. Það hefur svona
þróast með árunum hvað ég
hef verið að gera innan fyr-
irtækisins. Þegar ég byrjaði
var ég klippari en núna leik-
stýri ég sjónvarpsauglýs-
ingum.“
Sævar segist vera mjög
ánægður í vinnunni og telur
það vera forréttindi að fá að
vinna við áhugamálið sitt.
„Ég vakna að minnsta kosti
aldrei á mánudagsmorgni og
hugsa um að hringja mig inn
veikan,“ segir hann og hlær.
„Þetta er líka svo lifandi því
það eru alltaf ný verkefni
og nýjar áskoranir,“ bætir
hann við.
Þó Sævar sé ánægður í
vinnunni er hann farinn að
hugsa um að halda áfram
í námi. „Draumurinn er að
læra kvikmyndaleikstjórn
en til þess þarf ég að fara út.
Ég ætla að fara að skoða það
sem fyrst, því það er nátt-
úrulega ekki hægt að bíða
endalaust,“ segir hann og
hlær.
Byrjaði ferilinn í
stuttmyndunum
Bændur huga að slætti
fyrr en ella þar sem
þurrkar kunna að hafa
neikvæð áhrif á grasvöxt.
Þurrkurinn sem hefur verið
undanfarnar vikur hefur
haft neikvæð áhrif á vöxt
og viðkomu túngrasa. Þetta
kemur fram á vef Bænda-
samtakanna www.bondi.is.
Samkvæmt mælingum
á fóðurgildi grassýna, sem
tekin eru vikulega víðsveg-
ar um land, er ljóst að grös
munu að öllum líkindum taka
fyrr að skríða og því fellur
fóðurgildi þess fyrr en ella.
Því velta bændur því fyrir
sér þessa dagana hvort ekki
sé rétt að slá áður en full
uppskera næst, bera köfnun-
arefni á tún og freista þess
að uppskera næsta sláttar
verða bitastæðari.
Þurrkurinn slæmur
Auglýst er eftir starfsmanni til umsjár launavinnslu og
bókhaldsverkefna á aðalskrifstofu SHA. Um er ræða
fullt starf.
Helstu viðfangsefni eru launavinnsla, umsjón með
fjárhagsbókhaldi, greiðslu reikninga, upplýsingamiðlun
og ráðgjöf ásamt ýmsum verkefnum er varða daglegan
rekstur aðalskrifstofu.
Menntun á rekstrarsviði er æskileg ásamt góðri
reynslu af launavinnslu, túlkun kjarasamninga
og bókhaldsvinnu. Leitað er eftir sjálfstæðum og
metnaðarfullum einstaklingi með mikla hæfni í
mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á frumkvæði
og sjálfstæði í star .
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Starfsmanna-
félags Akraness.
Umsóknum sem greini frá menntun, reynslu og fyrri
störfum skal skilað til skrifstofustjóra í síðasta lagi 15.
júlí 2007. Öllum umsóknum verður svarað.
Æskilegt er að viðkomandi geti ha ð störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Ásgeirsson
skrifstofustjóri eða Guðjón S. Brjánsson
framkvæmdastjóri í síma 430-6000.
Launa- og
bókhaldsumsjón
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkrasviði og heilsugæslusvið.
Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akra-
ness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í
menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands og aðrar menntastofnanir.
Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn
árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á
ly ækninga-, handlækninga-, kvenna- og öldrunarlækningadeildum og á vel búnum stoðdeil-
dum Starfsmenn stofnunarinnar eru um 240 talsins. Sjá nánar heimasíðu www.sha.is
::: VEFUMSJÓNARMAÐUR
Birtíngur útgáfufélag
Nánari upplýsingar
515 5500
ingahuld@birtingur.is – www.birtingur.is