Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.07.2007, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 01.07.2007, Qupperneq 10
„Fjölskyldan er það mikil- vægasta í heiminum.“ AFMÆLI Landsbankinn opnar fyrsta útibúið Ingunn Svavarsdóttir myndlistar- kona verður með sýningu sem heitir Tilraunir í Bragganum við Öxarfjörð fyrstu tvær vikurnar í júní. Ingunn er núna í tveggja ára masters-námi í myndlist úti í Newcastle í Bretlandi svo hún stoppar stutt heima þetta sum- arið. „Ég kalla þessa sýningu tvennd- arleiki því ég er með svona tvennt í gangi á þessari sýningu,“ segir Ing- unn. „Á sýningunni er ég aðallega að fjalla um það að Kaninn sé að hverfa úr landinu og er svo með svona mót- vægi við því. Verkin eru bæði gerð í tveimur hlutum og í tvöföldun á sama formi. Ég er líka svolítið að vinna með þetta nám sem ég er í og er með nokk- urs konar óð til upplýsingarinnar. Til dæmis eitt rosalega stórt verk sem ég byrjaði á í fyrra og kláraði ekki fyrr en í janúar og svo annað pínulítið sem mótvægi við því.“ Ingunn og fjölskylda hennar búa í kúluhúsi rétt hjá Bragganum sem þau gerðu upp sjálf. „Mig langaði til þess að koma mér upp aðstöðu til þess að prófa mig áfram eftir að ég sá það að ég gæti eitthvað í myndlist og við keyptum því þennan bragga af tengda- föður mínum og túnið í kring. Við fórum svo í það að rífa allt innan úr honum og byggja alveg upp á nýtt og nú er ég komin með þessa fínu aðstöðu og sýningarsal.“ Fyrsta sýningin í Bragganum var haldin sumarið 2003 og þá fékk Ingunn fleiri listamenn í lið með sér. „Ég hef verið í góðu sambandi við aðra lista- menn eins og Hlyn Hallsson, Björgu Einarsdóttur, Yean Quai og fleira gott fólk sem var með mér á fyrstu sýn- ingunni. Hlynur fékk þá hugmynd að við tækjum Maríu mey til umfjöllunn- ar sem við gerðum. Við tókum heilan vetur í að undirbúa þetta og ég fór að lesa heilmikið í Biblíunni og um Maríu mey. Þegar við fórum svo að skoða hvenær við ættum að hafa sýninguna ákváðum við að hafa hana á þingmar- íumessu sem er fyrstu tvær vikurnar í júlí. Síðan þá hef ég alltaf verið með sýningarnar á þessum tíma.“ Fjöldi fólks hefur komið á sýningarn- ar hjá Ingunni og hún er mjög ánægð með gestaganginn. „Ég var sveitar- stjóri hérna í tíu ár og því alltaf að vinna í því að fá þetta viðurkennt sem alvöru sveitarfélag með ýmsa möguleika. Ég hef verið alveg óskaplega ánægð með að fá hingað alls konar fólk sem sumt er ekkert vant að fara á sýningar, bændur, húsfreyjur og annað fólk úr nágrenn- inu. Ferðamennirnir koma líka og ég hef fengið gesti frá, Sviss, Banda- ríkjunum og Japan. Við erum miðja vegu milli Ásbyrg- is og Kópaskers og Bragginn sést vel frá veginum. Hann er appelsínugulur svo það fer ekkert á milli mála hvar hann er,“ segir Ing- unn og hlær. Námið sem Ing- unn er í er heils árs nám svo hún þarf því að fara aftur út fljótlega eftir sýn- inguna en áður var hún búin með fjög- urra ára nám við Myndlistarskólann á Akureyri. „Ég var mjög góð í teikn- ingu hérna í gamla daga og hef alla tíð haft mikla hugmyndaauðgi og aldrei vílað fyrir mér að láta draumana ræt- ast. Mig langaði að prófa hvort ég gæti þetta og síðasta árið sem ég var sveit- arstjóri sótti ég kvöldnámskeið á Akur- eyri á þriðjudögum til þess að komast að því hvort ég hefði eitthvað að gera í listnám. Þar sem þetta hafði blundað í mér svona lengi finnst mér svo gaman að geta eitthvað gert þó að ég sé ekkert að segja að ég sé einhver snillingur. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því hvað það eru margir góðir listamenn í kringum mig, en það er bara gaman að vera einn hlekkur í keðjunni. Þetta er náttúrulega bara alveg fullkomið líf að búa í svona sveit og geta sinnt listinni,“ segir Ingunn og hlær. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Konráð Guðmundsson Holtagerði 42, Kópavogi, lést 19. júní sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki hjúkr- unardeildar Elliheimilisins Grundar fyrir einstaka umönnun, og Magnúsi Tryggvasyni, Eiríki Magnússyni í ORA og öðrum vinum og vandamönnum fyrir veittan hlýhug. Laufey Sigríður Karlsdóttir Auður Konráðsdóttir Sigurður Stefánsson Heimir Konráðsson Eyrún Ingibjartsdóttir Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir Áslaug Kolbrún Jónsdóttir Gunnar Harðarson Kolbrún Karlsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær bróðir okkar, mágur og frændi, Sveinn Ágúst Haraldsson Álfhólsvegi 121, Kópavogi, sem lést fimmtudaginn 21. júní sl. verður jarðsunginn frá Grensáskirkju þriðjudaginn 3. júlí kl. 13.00. Ingibjörg Haraldsdóttir Hulda Haraldsdóttir Þorgeir Ólafsson Hrönn Haraldsdóttir Trausti L. Jónsson systkinabörn og fjölskyldur. MOSAIK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.