Fréttablaðið - 01.07.2007, Síða 25

Fréttablaðið - 01.07.2007, Síða 25
Gagnheiði 28 IS-800 Selfoss Iceland Sími +354 480 1700 Fax +354 480 1701 www.javerk.is JÁVERK ehf. er 15 ára öflugt, metnaðarfullt og vaxandi verktakafyrirtæki. Starfsmenn eru liðlega 100 í dag og verkefnastaða fyrirtækisins er traust næstu árin. Fyrirtækið er með starfsstöðvar og verkefni bæði á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu og er m.a. að byggja hæsta hús landsins. Starfsmannastefna fyrirtækisins gerir ráð fyrir að aðbúnaður og starfsumhverfi sé með því besta sem þekkist. Starfsandi er góður og starfsmannafélagið er mjög virkt og stendur fyrir margskonar skemmtunum og ferðalögum. Öryggisfulltrúi JÁVERK óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf öryggisfulltrúa. Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á þróun og mótun öryggisstefnu fyrirtækisins og hefur yfirsýn og eftirlit með þessum málaflokki. Helstu verkefni: Stýring starfsmanna og undirverktaka Efnisinnkaup Ábyrgð á gæðum vinnu bæði eigin starfsmanna og undirverktaka Samskipti við verkkaupa og undirverktaka Framfylgja verk- og kostnaðaráætlunum Hæfniskröfur: Reynsla af verklegum framkvæmdum er nauðsynleg Reynsla af vinnu við öryggismál er æskileg Góð almenn tölvukunnátta Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði Enskukunnátta er kostur Frumkvæði, áræðni og metnaður til að ná árangri í starfi Hæfni í mannlegum samskiptum Umsóknir skulu sendast á netfangið gylfi@javerk.is fyrir 9. júlí næstkomandi. Allar nánari upplýsingar um starfið veita Gylfi í síma 860 1707 og Guðmundur í síma 860 1730. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Móttökuritari JÁVERK óskar eftir að ráða líflegan einstakling í móttöku á skrifstofum fyrirtækisins í Reykjavík. Vinnutími er frá kl. 9-16 alla daga. Um er að ræða nýtt starf þannig að sá sem verður ráðinn mun taka þátt í að móta starfið í samráði við stjórnendur fyrirtækisins. Helstu verkefni: Símsvörun Móttaka viðskiptavina og umsjón með kaffistofu Ritvinnsla og vinna á Excel töflureikni Skjalavarsla Önnur störf í samráði við yfirmann. Hæfniskröfur: Stúdentspróf er æskilegt Góð almenn tölvukunnátta Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði Enskukunnátta er kostur Nám í tækniteiknun er kostur Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi Hæfni í mannlegum samskiptum Umsóknir skulu sendast á netfangið gylfi@javerk.is fyrir 9. júlí næstkomandi. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Gylfi í síma 860 1707. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.