Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.07.2007, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 01.07.2007, Qupperneq 60
Hljómsveitin Trabant er nýkomin heim úr mánað- arlangri tónleikaferð um Bretlandseyjar þar sem hún spilaði á rúmlega tuttugu tónleikum. Doddi trommari játar að vera orð- inn ansi lúinn eftir törnina. „Það er ekki mikill tími til að slappa af. Menn eru komnir á fullt í alls konar dóterí annað. Manni hefði ekki veitt af því að fara í mánaðar sumarfrí út á land en það er ekki alveg í boði,“ segir Doddi. Lokatónleikarnir í reisunni voru á Glastonbury-hátíðinni, þar sem Björk og Gus Gus komu einnig fram. „Það gekk ágætlega. Þetta er svo fáránlegur staður og ekk- ert sem maður hefði getað ímynd- að sér. Þetta var algjört drullu- mall og algjört kaos en ógeðslega gaman eftir á. Við komum heim drullugir upp fyrir haus. Allar töskurnar voru drullugar og þarna er engin aðstaða nema fyrir topp- band. Allir aðrir voru þarna í skítn- um saman. Þetta var mjög fallegt, þannig séð, og fyndin stemning á þessari hátíð,“ segir hann. Dodda eru minnisstæðir tónleikar á Rockness-hátíðinni í Skotlandi við hliðna á Loch Ness-vatninu. „Daft Punk var á eftir okkur og við spiluðum inni í þessu frábæra setti þeirra. Þeir eru með brjálæð- islegt „show“ og þarna var tölvert meira af fólki að horfa á okkur. Við spiluðum í furðulegustu skúma- skotum í þessum túr og lentum í alls konar aðstæðum. Stundum kom enginn að horfa á okkur og stundum kom slatti af fólki. Það var rosalega gaman í London enda höfum við verið að spila mest þar. Þar var frábær stemning en ann- ars var þetta gott fyrir auðmýkt- ina.“ Síðasta plata Trabant, Emotion- al, kom út í Bretlandi um miðjan júní á vegum Southern Fried Rec- ords og hefur fengið góðar viðtök- ur. Framundan hjá sveitinni er að halda áfram að semja efni á nýja plötu, auk þess sem hún spilar á listahátíðinni LungA á Seyðisfirði laugardaginn 21. júlí. Þar koma einnig fram Bloodgroup, Skátar, Jeff Who? og Mínus. Paris Hilton hefur verið sökuð um að hafa logið að spjallþáttastjórnandanum Larry King í viðtali sem tekið var við hana nokkrum dögum eftir að henni hafði verið sleppt úr fangelsi. Í viðtalinu sagðist Paris aðspurð aldrei hafa prófað eiturlyf á sinni ævi en í kjölfarið hafa ýmsir fjölmiðlar ytra rifjað upp gamlar sögur af stúlkunni. Á internetinu má finna myndbrot af Paris þar sem hún talar við vini sína um að prófa hinar og þessar grastegundir sem og að reykja svokallaða „töfrasveppi“ sem valda yndislegri vímu. Einnig voru rifj- aðar upp lýsingar sjónarvotta á því þegar hún spurði systur sína Nicky að því hvort hún hefði áhuga á að reykja „besta gras í heimi“. Paris sökuð um lygar Út er komin platan 100 íslensk 80´s lög í út- gáfu sem aðeins er hægt að nota fyrir iTunes og iPod. Er þetta í fyrsta sinn sem útgáfa sem þessi kemur út hér á landi. „Þetta er diskur til að setja í tölvu og hlaða inn á iPod. Þarna koma allar upplýsingarnar fram með mynd af disknum og þarna sést hverjir semja lögin og flytja þau,“ segir Höskuldur Hös- kuldsson hjá Senu. „Við erum búnir að gæla við þetta lengi og þessi pakki er sniðinn fyrir þetta, enda er þetta músík fyrir alla.“ Bara fyrir iPod Brúðkaups- veislur Önnumst alla þætti veislunnar Leggðu sumarlaunin þín inn á XY reikning og þú getur unnið Playstation 3 leikjatölvu eða 10.000 kr.! Allir fá 4 bíómiða og ef þú ert að stofna XY reikning í fyrsta skipti færðu líka flottan XY Ósómabol. Þeir sem leggja laun inn á XY reikning í júní fá 4 bíómiða senda heim til sín í byrjun júlí. Aðalvinningarnir verða dregnir út 6. ágúst.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.