Fréttablaðið - 01.07.2007, Side 66

Fréttablaðið - 01.07.2007, Side 66
 Ég vissi varla almenni- lega hvað ég var að hella mér út í þegar ég samþykkti að taka þetta verkefni að mér. Knattspyrna er ekkert án stuðningsmannanna og blessunarlega eru litríkir og skemmtilegir hópar starfræktir hjá mörgum félögum. Ég ákvað að skella mér í hóp vöskustu stuðn- ingsmanna deildarinnar sem er hin margrómaða stuðningsmanna- sveit KR, Miðjan. Ég tek það fram að ég er ekki stuðningsmaður KR, ég er stoltur Leiknismaður. Engu að síður var það með mikilli eftirvæntingu að ég mætti „út í KR“ eins og það er kallað í Vesturbænum, einum og hálfum klukkutíma fyrir leik. Þar tók hinn bráðskemmtilegi Ingvar Örn Ákason á móti mér, betur þekktur sem Byssan, og fyrsta verk var að finna treyju handa blaðamanninum. Tók það nokkra stund en ég fékk að lokum forláta keppnistreyju, númer 3. Tók ég mig bara vel út í henni verð ég að segja. Það er rétt sem þeir segja, maður er grennri í teinóttu. Það er jú toppurinn að vera í tein- óttu. Miðjan fékk nafn sitt af nokkr- um strákum sem stóðu í miðri stúkunni fyrir tíma sæta og ann- arra þæginda. Þar var kominn saman vinahópur en nú hefur held- ur betur fjölgað í hópnum en lík- lega er aðalkjarninn um 20 manns. Mér er sagt í spjalli við strákana fyrir leikinn að þetta séu nokkrir vinahópar, eða einn stór, en fjöld- inn sem mætir á leiki sé frekar misjafn. „Það er alltaf auðveldara að smala saman fólki þegar vel geng- ur,“ segja þeir og mér finnst það ekki skrítið. Það var samt eitthvað við þennan leik, það hlaut bara að vera að lukkudísirnar sýndu sig hjá KR, og það var vel mætt hjá Miðjunni. Fjölmennið kom saman í KR- klúbbnum í Frostaskjólinu þar sem ég gerði mig heimakominn. Formaður KR-Sport tjáði mér að ég liti vel út í treyjunni. Ánægð- ur að heyra það. Þarna sitja menn og fá sér sannkallaðan lúxus- mat að borða á kostakjörum og sporðrenna svo einum eða tveim- ur köldum til að velgja raddbönd- in og losa aðeins um taumana. Þarna var karpað um byrjun- arliðið sem kom mörgum í opna skjöldu. Skemmtilegar umræður sköpuðust og menn höfðu mismun- andi skoðanir á þeim leikmönnum sem byrjuðu leikinn. Ég rölti síðan upp í stúku um fimmtán mínútum fyrir leik. Eitt af aðalsmerkum Miðjunnar er að þeir nota engar trommur eða önnur hljóðfæri, bara raddbönd- in. Það skapar að mínu mati virki- lega skemmtilega stemningu, sér- staklega þegar menn eru jafn dug- legir að syngja og þessi hópur, sem samanstendur af strákum og stelpum og er talsverður aldurs- munur á þeim sem í hópnum eru. Mér leið skringilega í KR-treyj- unni, mjög skringilega. Ég kannað- ist varla við sjálfan mig í speglin- um en ég ákvað þegar ég tók verk- efnið að mér að gefa mig allan í það og því tók ég rækilega undir þegar söngurinn hófst. „Við erum KR, Reykjavíkur stoltið, sanna stórveldið,“ og svo framvegis. Það er líka magnað að heyra Óla stóra, eins og hann er gjarnan kallaður, kyrja allt byrjunarlið KR og svo endurtek- ur Miðjan nafnið svo glymur um Vesturbæinn. Stórskemmtilegt. Ég sá að vinir mínir í blaðamanna- stúkunni skemmtu sér konunglega yfir því að sjá mig og sjálfur glotti ég við tönn við að heyra mig öskra „Áfram KR!“ Miðjan situr ekki, hún stendur, og það allan leikinn. Hún syngur líka allan tímann á meðan á leikn- um stendur. Það kom mér reyndar ekki á óvart að söngurinn stopp- aði ekki og ég var orðinn vel hás eftir leikinn, ekkert að því. Eitt af mögnuðustu augnablikum þessar- ar upplifunar fannst mér þegar við, fólkið í miðjunni, sungum um Teit Þórðarson í nokkra stund. Í miðju lagi veifar hann síðan til okkar eins og hann sé að þakka fyrir hollust- una sem honum er sýnd. Teitur er mikils metinn innan KR og ég fann það á stuðningsmönnunum að þeir vilja ekki sjá það að hann fari. „Eitt stig fyrir stóveldið,“ var sungið þegar KR jafnaði leikinn í 1-1. Þegar sigurmark KR kom á lokasekúndum leiksins ætlaði svo allt um koll að keyra og ég lifði mig svo mikið inn í verkefnið að ég stóð mig að því að fagna markinu eins og óður maður. Hálf Miðjan var komin niður að vellinum þar sem fagnað var þar til flautað var til leiksloka og skemmtanahöld- in héldu áfram fram eftir, að mér skilst. Ekki nema von þegar fyrsti sigur sumarsins er staðreynd. Það sem einkenndi Miðjuna var samheldnin, sem greinilega er ríkjandi innan KR. Bubbi segir, í að mínu mati langbesta stuðnings- mannalagi sem heyrst hefur á Ís- landi, að „Við stöndum saman allir sem einn“. Klárlega orð að sönnu eftir því sem ég kynntist. Mér var mjög vel tekið, ég út- skýrði fyrir mönnum hvað ég var að gera, og var strax orðinn einn af þessari risastóru svart/hvítu fjölskyldu. Það er þó ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera KR- ingur. Gengið í sumar hefur verið dapurt og því er ótrúlegt að heyra Miðjuna syngja allan leikinn og styðja sína menn áfram. Ég heyrði Teit hrósa Miðjunni í KR-útvarpinu eftir leikinn og þá hugsaði ég með mér hvort ég væri einhvers konar happafengur fyrir KR í leiknum gegn Fram? Spurn- ing hvort KR kaupi krafta mína áfram? Ég væri líklega til enda skemmti ég mér konunglega í góðum félagsskap. Stuðningsmannasveit KR, Miðjan, hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega framgöngu í sumar. Strákarnir og stelpurnar í Miðjunni hætta aldrei að syngja og skiptir engu hver staðan er á vellinum. Hjalti Þór Hreinsson, íþróttafréttamaður Fréttablaðsins og Leiknismaður, ákvað að finna hvernig það er að vera hluti af Miðjunni og gerðist KR-ingur í fyrsta sigurleik liðsins gegn Fram. „O-óóóó!! O-óóóó!! Við erum KR Reykjavíkurstoltið Sanna stórveldið O-óóóó!! O-óóóó!!“ „Steiiiiiiiiiiiini Gísla, eins og hrísla. Já, það er aðeins einn Steini Gísla...“ „Við erum KR - Reykjavík, klæddir í svart og hvítt Þið getið ekkert sagt því við höfum unnið allt Við erum KR - Reykjavík.“ „Teitur, Teitur Þórðarson, Teitur, Teitur Þórðarson...“ „Deyja fyrir klúbbinn, ég sagði deyja fyrir klúbbinn.“ „Við erum svo miklu betri, Já, við erum svo miklu betri.“ „Við erum KR, Reykjavíkurstoltið“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.