Fréttablaðið - 01.07.2007, Síða 70

Fréttablaðið - 01.07.2007, Síða 70
Vann við að skera púrrulauk „Ég hef ekki nokkrar áhyggjur af ástandinu. Ég er sannfærður um að það kemur sprenging á næst- unni, spurningin er aðeins hvenær hún verður,“ segir sjónvarps-, lax- veiði- og athafnamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson, sem eins og und- anfarin ár er við stjórnvölinn í Langá í Borgarfirði í sumar. Sem kunnugt er hefur laxveiði á landinu verið með minnsta móti það sem af er sumri og er Langá þar engin undantekning. Að sögn Ingva hafa 20 laxar veiðst það sem af er, sem er það minnsta sem hann hefur upplifað á þeim 35 árum sem hann hefur hrærst í bransanum. „Laxinn er núna um tíu dögum seinni en í meðalári og það gerist einfaldlega stundum að hann er seinna á ferðinni. Stund- um er hann tíu dögum fyrr, eins og gerðist hjá mér fyrir nokkrum árum, og þá gaf júnímánuður 200 laxa. Meðalmánuður er um og yfir 100 laxar,“ segir Ingvi Hrafn. Margar kenningar hafa verið uppi um mögulegar orsakir þess að laxgengdin er eins lítil og raun ber vitni en ljóst þykir að miklir þurrkar og sólríkur júnímánuður hafi áhrif, enda flestar ár vatns- minni en venjulega á þessum árs- tíma. Ingvi Hrafn hefur fulla trú á að laxinn skili sér. „Einu áhrifin sem þetta hefur er að veiðin í júní er léleg en þá verður þeim mun meira í hinum mánuðunum. Og ég hef opið til 20. sept- ember þannig að það er nægur tími til stefnu,“ sagði Ingvi Hrafn og glotti. Ingvi Hrafn óttast ekki laxaleysið „Ég er ráðin inn sem ljósmyndari en þetta er reyndar svo nýskeð að það á eftir að koma betur í ljós hvernig starfinu verður háttað,“ segir Aldís Pálsdóttir, ljósmynd- ari í Danmörku. Aldís var í vik- unni ráðin til starfa hjá Steen Evald sem er annar tveggja op- inberra ljósmyndara dönsku kon- ungsfjölskyldunnar. „Steen hefur bæði það hlut- verk að taka myndir fyrir þau persónulega og svo opinberar myndir. Það eru til dæmis mynd- ir sem sendar eru til allra sendi- ráða, þessar innrömmuðu kónga- myndir, myndir á frímerki og fleira. Þetta eru sem sagt myndir sem þau vilja birta,“ segir Aldís sem er spennt fyrir nýja starfinu. Steen Evald er henni reyndar að góðu kunnur því hún vann með honum sem nemi fyrir nokkrum misserum, þegar hún var að ljúka námi í ljósmyndaskóla í Kaup- mannahöfn. Næg verkefni bíða Aldísar á nýja vinnustaðnum því Evald er bókaður upp fyrir haus að hennar sögn. „Það eru einhverjar tökur í gangi á hverjum degi,“ segir hún og viðurkennir að hún hafi ekki einu sinni enn haft tíma til að kynna sér hvenær næsta mynda- taka fyrir konungsfjölskylduna væri skipulögð. „Seinast þegar ég vann hér fórum við kannski annan hvern mánuð. Þá var Steen reyndar bara að vinna fyrir Frið- rik krónprins og Mary. Nú mynd- ar hann líka drottninguna sem ætti að verða skemmtilegt. Ég er annars mjög spennt fyrir þessari vinnu. Ég fékk að upplifa mjög margt þegar ég var hér síðast og áhuginn virðist vaxa ár hvert svo það verður mjög spennandi að sjá hvernig þetta verður núna.“ Aldís byrjaði í ljósmyndaskóla í Viborg á Jótlandi árið 2001. Frá 2004 hefur hún síðan verið búsett í Kaupmannahöfn ásamt kær- asta sínum, Sindra Birgissyni, sem nýlega lauk námi í leiklistar- skóla. Aldís kláraði skólann í okt- óber 2005 en uppgötvaði um svip- að leyti að hún var ófrísk. Síðan hún útskrifaðist hefur Aldís því að mestu leyti verið í fæðingaror- lofi og eytt tímanum með dóttur- inni Magneu. Hún hafði einmitt verið að velta því fyrir sér hvað hún ætti að taka sér fyrir hendur nú þegar dóttirin er komin á leikskólaald- ur. Aldís segist hafa velt því fyrir sér að hafa samband við Steen Evald en hafði ekki enn komið sér til þess þegar hann hóaði í hana og bauð henni vinnu. „Ég sat bara heima og var að klóra mér í haus- num þegar hann hafði samband. Ég var svo mætt daginn eftir.“ Fram að þessu höfðu Aldís og fjölskyldan verið að íhuga að flytjast til Íslands enda viður- kennir hún að þau séu komin með svolitla heimþrá. „En það verður víst að bíða aðeins.“ Nýju vinnunni fylgja talsverð ferðalög og ekki er útilokað að Al- dísi takist að sannfæra hinn kon- unglega ljósmyndara um að koma til Íslands. „Hann átti víst að taka tískuþátt á Íslandi í júní en það fékkst ekki hótelpláss fyrir allan hópinn enda var þetta í kringum 17. júní. Ég get örugglega hvatt hann til að gera aðra tilraun.“ Ætli góða veðrið sem hefur ríkt á höfuðborgarsvæðinu sé hreinlega ekki stóra fréttin. Ég hef verið í fríi allan seinnipart vikunnar og notið þess að smíða, mála og taka til í garð- inum. Eflaust er hægt að draga þann lærdóm af þessu öllu að sólin kemur fyrir rest og að ég gæti hvergi annars staðar búið sé tekið tillit til veðurfars.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.