Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 2

Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 2
Þorleifur, getur ekki verið að víkingar hafi stundað kvikmyndaleik? Stjórnvöld í Afríkuríkinu Kongó báðust í gær afsökunar á því að hafa látið hóp pygmea sem tók þátt í tónlistarhátíð í Brazzaville, höfuðborg landsins, gista í dýragarði. Aðrir tónlistarmenn fengu inni í skólum og hótelum. Talsmaður stjórnvalda sagði að hugmyndin hafi verið að láta fólkið, tíu konur, níu karla og eitt barn, búa við kunnuglegar aðstæður í skóglendi í dýragarð- inum þar sem heimkynni pygmea séu í frumskógum Kongó, og þeir hafi aldrei áður séð stórborg. Mannréttindasamtök sögðu þessa ákvörðun hneykslanlega og sögðu stjórnvöld með þessu mis- muna fólki eftir uppruna þess. Dagblöð í Kongó vöktu athygli á málinu, og bentu á að ferðamenn hefðu flykkst að tjaldbúðum pygmeanna í dýragarðinum, starað á þá og tekið af þeim myndir. Ákveðið var að færa fólkið seint á föstudag, og fékk það að gista á heimavist í nærliggjandi mennta- skóla þar sem aðrir tónlistarmenn frá Kongó höfðu þegar fengið inni. Erlendir tónlistarmenn fengu gist- ingu á hótelum. Talið er að pygmear séu sá flokkur manna sem lengst hafi lifað í Mið-Afríku. Meira en 250 þúsund pygmear búa í Kongó, en þeir búa einnig í nágranna- löndunum. „Frá miðjum júní til jafn- lengdar í júlí hafa aðeins fallið tæplega sjö millimetrar í Reykja- vík. Aldrei hefur verið svo þurrt á þessum tíma árs frá því mælingar hófust snemma á 20. öld,“ segir Haraldur Ólafsson, veðurfræðing- ur Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Hann segir þó nokkra sambærilega og jafnvel meiri þurrkakafla hafa orðið á öðrum tíma árs. „Ég man ekki eftir jafn langvar- andi þurrkatímabili og nú stendur yfir. Þetta hefur afar slæm áhrif á gróður, sérstaklega í sendinni jörð,“ segir Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri. Sveinn segir nær alla sáningu sem fram fór í vor hafa skilað litlum árangri vegna þurrkanna. Eldri sáning og gróður sé orðinn kyrkingslegur og tún hvítnuð upp vegna þurrkanna. Ómar Helgason, mjólkurfram- leiðandi í Lambhaga á Rangárvöll- um er einn þeirra bænda sem sér fram á mikið tjón. „Túnin eru að brenna undan þurrkinum. Ég er farinn að kaupa hey fyrir skepn- urnar og sé fram á algeran upp- skerubrest, ef ekki fer að rigna.“ Hann segir að í fyrri slætti hafi hann fengið um fimm heyrúllur af hektara en í venjulegu ári gefi hektarinn af sér um fimmtán rúll- ur. Eins og staðan sé nú vanti hann um þúsund rúllur af góðu heyi, en ef hann þyrfti að kaupa þær myndi heildarverð vera um tvær og hálf milljón króna. Þá sé ótalið tjónið af áburði sem borið hafi verið á túnin án þess að það hafi skilað uppskeru. „Ef rignir fljótlega gæti ég náð 500 rúllum í seinni slætti, það er þó langt um minna en ég þarf en þá bjargast þetta kannski eitt- hvað,“ segir Ómar. Hann segist þó óttast um það svæði sem þegar hefur verið slegið þar sem gróður- inn haldi áfram að sviðna og óttast hann að varanlegur skaði geti hafa orðið sums staðar á túninu. „Þessi sérstaka tíð má segja að einkennist af lægðaskorti. Það er þó ekki þannig að lægðum hafi fækkað, þær eru bara ekki hér heldur yfir löndunum við Norður- sjó og Eystrasalt,“ segir Haraldur og minnir á þær miklu rigninga- fréttir sem borist hafa frá Bret- landi og Hróarskeldu. Haraldur segir ekki óalgengt að loftstraumar og lægðabrautir sem fylgja háloftavindum festist í ákveðnu munstri dögum og jafn- vel vikum saman eins og verið hefur í sumar. Slíka hegðun sé ekki auðvelt að skýra, Hjónin Sævar Karl Ólason og Erla Þórarinsdóttir hafa selt fataverslunina Sævar Karl Bankastræti. Kaupendur ætla að halda sömu stefnu hvað varðar þjónustu, gæði og vöruúrval. Fram kemur í tilkynningu frá Sævari Karli að hlutur hjónanna í Bankastræti 7 þar sem verslunin er til húsa fylgi með í kaupunum. Kaupverðið er trúnaðarmál. Nýir eigendur verslunarinnar hafa þegar tekið við rekstrinum. Eigendurnir eru Vesturhöfn ehf., sem er í eigu Páls Kolbeinssonar og tengdra aðila, og Arev N1, sem er einkafjármagnssjóður sérhæfður í smásölu. Axel Gomes verður verslunarstjóri, en Erla og Sævar Karl munu starfa áfram hjá fyrirtækinu. Óbreytt stefna nýrra eigenda Omar bin Laden, einn af átján sonum hryðjuverka- leiðtogans Osama bin Laden, hefur staðfest að hann hafi um daginn gengið að eiga Jane Felix- Browne, 51 árs gamla konu frá Englandi. Hann segist þó vera „furðu lostinn og stórhneykslaður“ á því hve mikið hefur verið fjallað um hjónaband þeirra í fjölmiðlum. Þau hittust þegar hún var á ferðalagi við píramídana í Egyptalandi og gengu í hjóna- band að íslömskum sið. Fyrir á Omar, sem er 27 ára, aðra konu, sem er frá Sádi-Arabíu. Staðfestir sögur af hjónabandi „Það tekur ekki nema tvær mínútur að ganga að tófugreni hérna. Þetta eru svona 250 metr- ar frá versluninni í Króksfjarðarnesi í grenið,“ segir Bergsveinn Reynisson, bóndi á Gróustöðum á Króks- fjarðarnesi. Íbúar á nesinu telja að ekki séu mörg önnur dæmi um að tófugreni finnist svo nálægt mannabyggð. „Það hefur verið mikið af tófu hérna. Við höfum ágætis skyttur sem hafa veitt helling. Alltaf þegar menn skutu tófu héldu þeir að það væri sú síðasta. Svo um síðustu helgi voru yrðlingar komn- ir niður á þjóðveginn. Þá fóru menn að kanna þetta betur og í ljós kom grenið. Þetta var býsna magn- að.“ Bergsveinn segir tófur ekki hafa verið til ama í versluninni en þær hafi spillt æðarvarpi á svæðinu. Það er hellingur af tófum á svæðinu og er alltaf að aukast. Það sem af er ári hafa tófuskytturnar náð um 70 tófum í syðri hluta Reykhólahrepps. Tófur í verslun ekki til ama Mesti þurrkur frá því mælingar hófust Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir tímabilið frá miðjum júní til miðs júlí aldrei hafa mælst jafn þurrt. Landgræðslustjóri segir mikið af gróðri hafa farið illa. Bóndi segist þegar farinn að kaupa hey og sér fram á mikið tjón. Mótmælendur í samtökunum Saving Iceland saka lögregluna um harðræði og tilefnislausar handtökur. Fimm voru handteknir í mótmælum umhverfissinna í Reykjavík í fyrrakvöld. Hinir handteknu voru leystir úr haldi í gær og segir lögregla að þeir megi búast við ákærum vegna brota á umferðarlögum, fyrir ofbeldi gegn lögreglu og fyrir að hindra lögreglumenn í starfi. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að ekkert bendi til þess að lögreglan hafi farið út fyrir ramma laganna við störf sín gærkvöldi. Klögumálin ganga á víxl Umhverfisstofnun varar við neyslu skelfisks úr Hvalfirði enda veruleg hætta á að kræklingur og annar skelfiskur sé óhæfur til neyslu, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar. Umhverfisstofnun tekur vikulega sýni úr skelfiski í Hvalfirði, en þangað sækir fólk af höfuðborgarsvæðinu gjarnan til að tína krækling. Um þessar mundir hefur magn eitraðra svifþörunga verið yfir viðmiðunarmörkum og skelfisk- urinn því óætur. Eitraðir þörung- ar yfir mörkum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.