Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 4

Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 4
Tilvalið í ferðalagið Án viðbætts salts!Án viðbætts sykurs! Kjarngóð næring í þægilegum umbúðum barnamatur.is Samhliða því að hundahald hefur aukist mikið á Íslandi undanfarin ár hefur þeim tilfellum einnig fjölgað þegar lög- reglumenn við húsleit og í öðrum útköllum þurfa að glíma við hunda sem koma eigendum sínum til varn- ar. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir algengt að æstir hundar mæti lögreglumönnum á leið í húsleit, en það geti þó vart talist óeðlilegt. Tvö mál af þessum toga hafa ratað í fjölmiðla upp á síðkastið. Um miðjan júní siguðu kannabis- ræktendur doberman-hundum á lögreglu í Þykkvabænum og var einn lögreglumaður bitinn í átökum við hundinn. Fyrir skömmu þurfti lögreglumaður svo að grípa til varnarúða þegar þýskur schäfer- hundur réðst á hann á leið í húsleit. Karl Steinar segir að í fæstum tilvikum sé hundunum beinlínis sigað á lögreglu. „Við komum oft inn í húsleit með hurðirnar á herð- unum og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að hundar bregðist illa við því.“ Hann segir að leiki grun- ur á að ætlaðir brotamenn haldi hund sem ástæða er til að varast sé reynt að gera viðeigandi ráð- stafanir. „Þá sendum við með mann sem er vanur því að eiga við hunda, til dæmis einhvern sem hefur annast fíkniefnahund, eða notum sérstakt hundafangaratæki sem auðveldar okkur að koma böndum á hundinn.“ Hann segir lögreglumenn ekki fá sérstaka þjálfun í að eiga við hunda eða önnur dýr. Þá segir hann að ekki sé sérstaklega haldið utan um fjölda tilvika þar sem lög- regla þarf að kljást við hunda. „Við lítum nú ekki á þetta sem það stórt vandamál enn.“ Fyrir nokkrum árum kom upp umræða um hvort banna ætti ákveðnar hundategundir innan borgarmarkanna, nánar tiltekið doberman og rottweiler, eftir að hundar af þessum tegundum rifu í sameiningu í sig kött í Breiðholti. Af því varð ekki. Örn Sigurðsson, sviðsstjóri umhverfissviðs borg- arinnar, segir borgina hafa sent erindi þess efnis til yfirdýralækn- is að innflutningur þessara teg- unda til landsins yrði bannaður. „Hann sagði að það væri tóm vitleysa. Þessir hundar væru ekk- ert hættulegri en aðrir. Við töldum þá illgerlegt að banna þá í Reykjavík ef það mætti áfram flytja þá inn. Þá væru þeir Vanir hundamenn í útköll Algengt er að æstir hundar mæti lögreglumönnum þegar þeir hyggjast handsama eigendur þeirra. Lögregl- an gerir ráðstafanir sé talið að hundur kunni að vera á staðnum. Fimm hundategundir eru bannaðar hér. Hannes Hlífar Stefánsson varð efstur á Opna Kaupþingsmót- inu í skák, sem haldið var í Lúxemborg, ásamt næst- stigahæstu skákkonu í heimi, hinni indversku Humpy Koneru. Héðinn Steingrímsson náði öðrum áfanga sínum að stórmeistaratitli og vantar nú aðeins einn áfanga í viðbót til að verða stórmeistari. Hannes Hlífar vann tékkneska stórmeistarann Petr Velicka í síðustu umferðinni og hlaut sjö vinninga á mótinu. Héðinn sigraði stigahæsta skákmann mótsins, stórmeistarann Vadim Malaktatko, á föstudag og lenti í þriðja sæti með sex og hálfan vinning. Róbert Harðarson og Snorri Bergsson fengu 4,5 vinning, Hjörvar Steinn Grétarsson 4 vinninga og Rúnar Berg 3,5 vinning. Hannes sigraði á mótinu Erlend kona slasað- ist alvarlega í bílslysi á Gjábakka- vegi hjá Þingvöllum í gær. Konan var flutt með þyrlu Landhelgis- gæslunnar á slysadeild Landspít- alans í Fossvogi. Óttast var að hún væri með innvortis blæðingar. Slysið varð þannig að tveir bílar úr gagnstæðri átt skullu saman þegar þeir mættust í blindbeygju. Í öðrum bílnum voru fimm erlend- ir ferðamenn en íslensk kona ók hinum bílnum. Tveir erlendu ferðamannana slösuðust einnig og bílstjórinn þurfti á áfallahjálp að halda eftir slysið. Kona slasaðist alvarlega bara hérna óskráðir. Af tvennu illu er betra að hafa þá skráða.“ Nú er bannað að flytja til lands- ins fimm tegundir svokallaðra víga- hunda. Uppboð á þrælum fór fram í Vest- mannaeyjum í gær og sá sýslumaðurinn, Karl Gauti, um að bjóða upp fjórtán þræla ættaða frá Norður- höfum. Seldust þeir á 147 ríkisdali. Uppboðið var liður í dagskrá minningardaga sem Félag um Tyrkja- ránssetur stendur fyrir en í dag eru 380 liðin frá þessum ógnarviðburði. „Þarna sýndum við hvað hinir brottnumdu máttu upplifa á þessum tíma en uppboðið skipuðu áhuga- leikarar úr öllum stéttum bæjarfélagsins,“ segir Helga Hallbergsdóttir sem er einn forsvarsmanna félagsins. Sýslumaður Vestmannaeyja sá um að bjóða upp fjórtán þræla ættaða frá Norðurhöfum og seldust þeir á hundraðfjörutíuogsjö þúsund og hálf- an ríkisdal. Dagskránni lýkur á miðvikudaginn með minningarathöfn við Skansinn sem endar á kerta- fleytingu til heiðurs þeim sem numdir voru brott. Frekari dagskrá má finna á www.eyjar.net. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar hafa lagt fram fyrirspurn til meirihlutans varðandi synjun borgaryfirvalda á að veita Fréttablaðinu aðgang að öllum gögnum um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. „Beiðninni hefur verið hafnað af hálfu borgarstjóra og hefur úrskurðarnefnd um upplýsingamál nýverið staðfest að formlega sé borgarstjóra stætt á því. Því er óskað eftir svörum við því hvers vegna Fréttablaðið fái ekki aðgang að gögnum málsins sem hljóta að varða mikilsverða almannahags- muni?“ segir í fyrirspurn Dags B. Eggertssonar. Skýri synjun til Fréttablaðsins

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.