Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2007, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 16.07.2007, Qupperneq 8
Lifðu lífinu létt með Canderel kíktu á léttar uppskriftir á www.canderel.is A ug lý si ng as ím i – Mest lesið Hvað heitir frjálsíþrótta- konan sem lenti í 7. sæti í sjöþraut á HM unglinga? Hver fer með hlutverk Elizu Doolittle í Pygmalion sem sett verður upp á Broadway? Hvað heitir sjöunda og síðasta Harry Potter-bókin? Óvenjumargar tegundir háplantna fundust í árlegum leiðangri Náttúrufræðistofnunar Íslands í Surtsey, annað árið í röð. „Það hefur aldrei fjölgað jafn hratt í eynni og síðustu tvö ár. Við fundum fimm nýjar tegundir núna, eins og í fyrra. Jafnframt fundum við aftur tegundir sem hafa skotið upp kollinum en horfið aftur,“ sagði Borgþór Magnússon leiðangursstjóri, en nú er um 65 tegundir að finna í eyjunni. Svipuð fjölgun varð árið 1985, þegar þétt mávavarp tók að myndast í Surtsey. Borgþór þakkar mávinum, og langtímaáhrifum varpsins, uppgræðslu eyjarinnar að miklu leyti. „Það koma fræ og nýjar tegundir með fuglunum, og þeir hafa verið mjög mikilvægir í að bera á eyna,“ sagði Borgþór. Hann gerir ráð fyrir því að tegundum fjölgi áfram næstu áratugi en síðan muni þeim fækka á ný sökum rofs Surtseyjar. Leiðangursmenn tóku einnig eftir óvenju dauflegu fuglavarpi í ár, sem Borgþór segir vera svipað og annars staðar á landinu. „Það virðist skorta æti í sjónum svo það gengur illa hjá sjófuglunum að koma upp ungum,“ sagði hann. Þá virðist lundi hafa tekið sér ból- festu í Surtsey, og fyrsta álkan sást á sundi við eyna. Mávavarpi þakkað „Stundum er eins og þurfi gæslu nánast allan daginn. Þetta eru veikir aðilar og erfitt að taka á þessu,“ segir Grétar Ingi Berndsen, eigandi Kaffi Parísar. Hann segir útigangsfólki hafa fjölgað í sumar miðað við í fyrra. „Ástandið er mun verra í ár og meira af geðfötluðu fólki. Og sá hópur er í raun erfiðari viðfangs en venjulegir útigangsmenn.“ Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn segir þetta vera sama fólkið ár eftir ár og ástandið á því sé ekki áberandi verra núna þó það lagist ekki á milli ára. „Þegar sól hækkar á lofti og hlýnar í veðri verða útigangs- menn meira áberandi. Við fundum fyrir aukningu eftir að Byrginu var lokað en það hefur jafnað sig. Unga fólkið sem var í Byrginu kemur heldur ekki mikið til okkar vegna heimilis- leysis.“ Geir Jón segir það auðséð að nokkuð margir eigi ekki í nein hús að venda og búi á götunni. „Við erum að giska á kannski fjörutíu til fimmtíu manns en gistiskýlið tekur stóran hluta af þessu fólki og því kemur það ekki í stórum hópum til okkar í gistingu eins og hérna áður fyrr.“ Barnungar portúgalskar stúlkur selja nektarmyndir af sér á spjallsíðum á netinu í staðinn fyrir símainneign. Þetta kemur fram í rannsókn portúgalska blaðsins Diario de Noticias. „Fjórtán ára gamlar stelpur fækka fötum og hafa kynferðislega tilburði frammi fyrir vefmyndavél- um í staðinn fyrir símainneign upp á tíu evrur,“ segir Renatao Montalvo, einn rannsakendanna. Stúlkurnar auglýsa þjónustuna á spjallsíðunum og veita hana eftir að hafa fengið staðfestingu á að keypt hafi verið fyrir þær símainneign fyrir umsamda upphæð í gegnum netið. Selja nekt sína fyrir inneign

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.