Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 41

Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 41
 Árangur Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur og Einars Daða Lárussonar sýnir að framtíðin er björt í frjálsum íþróttum hér á landi. Bæði fóru þau á HM unglinga og náðu besta árangri sem íslenskt frjálsíþrótta- fólk hefur náð á móti sem þessu. Helga Margrét bætti meyjamet- ið og varð í 5. sæti í sjöþraut og Einar bætti drengjametið og varð í 7. sæti í áttþraut. Bestan árangur fyrir mótið átti Íris Anna Skúladóttir, sem náði 9. sæti í 1.500 metra hlaupi á HM í Marokkó frir tveimur árum. Þráinn Hafsteinsson, þjálfari krakkanna úti í Tékklandi, segir mikilvægt að krakkarnir fái nú tækifæri til að fullnýta hæfileika sína. „Nú er bara spurning hvernig verður haldið á málum með Helgu, Einar og þessa krakka sem eru að standa sig svona vel. Ef við náum að halda þessum krökkum við efnið og þau verða dugleg og fá allt sem þau þurfa til þess að geta hellt sér í þetta hafa þau hæfi- leikana til þess að ná langt,“ segir Þráinn og bætir við að þau hafi sýnt það á mótinu að þau hafi bæði líkamlegan og andlegan styrk til að keppa meðal þeirra bestu. „Þau sýndu það bæði Einar og Helga að þau eru hörku keppnis- fólk og stóðu sig mjög vel undir mikilli pressu,“ sagði Þráinn, alveg í skýjunum með árangurinn í Tékklandi enda ekki á hverjum degi sem Íslendingar eignast frjálsíþróttafólk í heimsklassa. Hafa hæfileikana til þess að ná langt Chelsea vann 2-1 sigur á mexíkóska liðinu Club America í fyrsta leik sínum í árlegri Ameríkuferð sinni. Chelsea lenti undir eftir aðeins þrjár mínútur en nýi maðurinn, Florent Malouda, jafnaði leikinn á 74. mínútu. Það var síðan fyrirliðinn John Terry sem skoraði sigurmarkið sjö mínútum fyrir leikslok. Terry skallaði þá inn auka- spyrnu frá Malouda og það er því óhætt að segja að franski landsliðsmaðurinn sem Chelsea keypti frá Lyon hafi byrjað vel í Chelsea-búningnum. Chelsea byrjar vel í Ameríku Sumardeildir NBA eru nú í fullum gangi og þar fá nýliðar næsta tímabils sín fyrstu kynni af deildinni. Einn af þeim er Kevin Durant, besti leikmaður háskólaboltans í fyrra, sem var valinn annar í nýliðavalinu af Seattle. Það hafði greinilega góð áhrif á Durant að LeBron James kom og horfði á hann spila því hann skoraði 32 stig í 74-85 tapi gegn Golden State Warriors. Durant, sem hefur aðeins hitt úr 18 af 59 skotum sínum í fyrstu þremur leikjunum, náði líka að gefa sína fyrstu stoðsendingu, sem þótti tíðindi enda hefur kappinn verið afar skotglaður í fyrstu leikjunum. LeBron James hafði góð áhrif Mexíkó vann Úrúgvæ 3-1 í leiknum um þriðja sætið í Suður- Ameríkubikarnum í knattspyrnu í Venúsúela. Úrúgvæar skoruðu samt fyrsta markið þegar Sebastien Abreu skallaði boltann í netið á 22. mínútu en fjórtán mínútum síðar varð vendipunktur í leiknum. Þá var fyrirliða Úrúgvæ, Diego Lugano, vikið af velli fyrir olnbogaskot í teignum og Mexí- kóar fengu víti. Cuauhtemoc Blanco skoraði úr vítinu og þeir Omar Bravo og Andres Guardado tryggðu síðan Mexíkó bronsið með tveimur mörkum eftir hlé. Mexí- kóar eru greinilega á góðri leið undir stjórn Hugo Sanchez. Mexíkó vann bronsið Á KAPLAKRIKAVELLI MIÐVIKUDAGINN 18. JÚLÍ KL. 20.00 FORKEPPNI MEISTARADEILDAR 2007 frá Færeyjum Forsala miða frá kl. 12, í FH-búðinni í Kaplakrika FH GEGN HB Tórshavn Fjölmennum á völlinn og styðjum Íslandsmeistara FH ÍSLANDSMEISTARAR FH 2004-2005-2006 Miðaverð kr. 1.500.-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.