Fréttablaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 2
Kristinn Hallsson óperusöngv-
ari er látinn, 81 árs að aldri.
Hann var
fæddur í
Reykjavík
árið 1926,
hóf nám við
Tónlistar-
skólann í
Reykjavík
og lauk síðan
brottfarar-
prófi frá
Konunglega
tónlistarskólanum í London.
Kristinn tók þátt í fjölmörg-
um óperusýningum og
tónleikum, bæði hér á landi og
erlendis og stundaði tónlistar-
kennslu. Hann var lengi einn
af burðarásum karlakórsins
Fóstbræðra.
Þá var hann ráðinn fulltrúi í
menntamálaráðuneytinu árið
1970 og sæmdur riddara-
krossi Hinnar íslensku
fálkaorðu árið 1978.
Kristinn
Hallsson látinn
Maðurinn
sem lést í
bifhjólaslysi
á laugar-
dagskvöld á
Biskups-
tungnabraut,
á móts við
verslunina
Minni-Borg í
Grímsnesi,
hét Gunn-
laugur Björnsson, fæddur
1977. Gunnlaugur bjó í
foreldrahúsum í Hveragerði.
Hann var ókvæntur og
barnlaus.
Lést í
bifhjólaslysi
Tré, hvað segirðu gott?
Viðræður eru hafnar á milli
stjórna Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs
Norðlendinga um mögulegan samruna
sparisjóðanna til að styrkja stöðu þeirra
gagnvart aukinni samkeppni á innlendum
fjármálamarkaði.
Horft yrði til skiptihlutfalla sem tækju
mið af hálfsárs uppgjörum sparisjóðanna,
sem verða birt í lok ágúst, en engin tíma-
mörk liggja fyrir. Sameining sem þessi er
háð blessun stofnfjáreigenda sjóðanna,
FME og Samkeppniseftirlitsins.
Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri
Byrs, segir að Byr hafi alla tíð átt gott
samstarf við Norðlendinga. „Sparisjóður
Norðlendinga er vel rekinn sjóður og
rekstur hans fellur ágætlega að því sem við
erum að gera.“
Byr, sem varð til við samruna Sparisjóðs
Hafnarfjarðar og Sparisjóðs vélstjóra á
síðasta ári, vinnur nú að sameiningu við
Sparisjóð Kópavogs (SPK) sem stjórnir
sjóðanna hafa samþykkt. Sú sameining
bíður samþykkis stofnfjáreigenda beggja
sjóða og FME.
Byr er annar stærsti sparisjóður landsins
en Sparisjóður Norðlendinga sá sjötti
stærsti í eignum talið. Byr hagnaðist um
tæpa 2,7 milljarða króna á síðasta ári og
námu heildareignir hans í árslok um 104
milljörðum króna.
Sparisjóður Norðlendinga skilaði um 186
milljónum króna í hagnað í fyrra. Heildar-
eignir sjóðsins voru um 12,6 milljarðar
króna um síðustu áramót.
Bregðast við aukinni samkeppni
Norska prinsessan
Marta Lovísa hefur tekið sér
veikindafrí. Talsmaður norsku
hallarinnar tilkynnti þetta í gær.
Ekki var gefið upp af hvers konar
veikindum hún þjáist.
Prinsessan hefur verið mikið í
fréttum undanfarið vegna skóla
sem verið er að setja á stofn í
Noregi. Skólinn hyggst meðal
annars kenna fólki að tala við
engla. Marta Lovísa lýsti því yfir
á heimasíðu skólans að hún geti
talað bæði við hesta og engla.
Hún hefur einnig greint frá því
að hún sé skyggn.
Prinsessan í
veikindaleyfi
„Það má segja að allt annað
sé í kortunum en var fyrri hluta
sumars,“ segir Sigurður Þ. Ragn-
arsson veðurfræðingur um veðrið
fram undan. Veruleg umskipti urðu
í veðrinu á sunnudag.
„Í stað þess að lægðirnar gangi
suður fyrir land og hér sé góðviðri
fara lægðirnar yfir okkur eða með-
fram ströndum. Þetta þýðir að vind-
ar og vatn verður daglegt brauð.
Þetta verður í raun miklu eðlilegra
veður en þessi lengsti kafli Íslands-
sögunnar í góðviðri ef ég leyfi mér
að taka svo djúpt í árinni þótt það
sé alltaf matsatriði hvað sé gott
veður.“ Talsvert önnur lögun er á
Azor-eyjahæðinni og hún ýtir lægð-
unum að Íslandi og loftþrýstingur
norðan við land er orðinn lægri.
Ísland er komið í sporbraut lægða
eins og eðlilegt er.
„Ég er ekki að segja að við fáum
ekki góða daga. Það rofar til á sunn-
anverðu landinu á miðvikudag og
fimmtudag. En síðan tekur við
vatnsveður fyrri part verslunar-
mannahelgar með allnokkrum
vindi. Það verður þó batnandi veður
eftir sem líður á verslunarmanna-
helgi. Vind lægir og þurrara verð-
ur á Norður- og Norðausturlandi
og það endar í rólegheitaveðri á
verslunarmannadaginn á mánu-
dag.“
Íslenskt veður fram undan
Fjórir menn köstuðu
til húsgögnum og börðu starfs-
mann veitingastaðar á Klappar-
stíg er hann reyndi að inna þá
eftir greiðslu.
Mennirnir fjórir sátu á
staðnum á sunnudagskvöldið og
drukku áfengi og hugðust þeir
yfirgefa staðinn án þess að greiða
fyrir veigarnar. Starfsmaður
veitingahússins var kýldur þegar
hann reyndi að stöðva mennina.
Lögreglan kom á svæðið og
handtók þann sem hafði sig mest í
frammi. Hinum mönnunum tókst
að komast burt áður en lögreglan
kom á svæðið.
Kýldu veitinga-
mann og hentu
til húsgögnum
Árásarmaðurinn á
Sæbrautinni í fyrradag hafði
skrifað bréf til lögreglu áður en
hann framdi ódæðið. Bréfið skildi
hann eftir við hlið sér í Hrafna-
gjá á Þingvöllum, þar sem hann
svipti sig lífi, einum og hálfum
tíma eftir morðið.
Lögregla telur morðið hafa
verið skipulagt fyrirfram, að
sögn Sigurbjörns Víðis Eggerts-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns.
Morðinginn átti sjálfur riffil-
inn sem hann skaut úr. Ekki er
vitað hvenær hann keypti hann
eða hvort það var eingöngu gert í
þessum tilgangi.
Málsatvik voru þau að fórnar-
lambið, 35 ára karlmaður, var að
skipta um hjólbarða á bifreið
sinni á Sæbraut. Lögregla hefur
ekki getað svarað hvort morðing-
inn hafi valdið skaðanum á bíln-
um eða hvort hann hafi veitt þeim
myrta eftirför.
Árásarmaðurinn hleypti einu
skoti úr rifflinum í brjósthol
mannsins, samkvæmt lækni.
Lungað fylltist af blóði og dró
það manninn að lokum til dauða.
Sendiferðabílstjórinn Eiríkur
Eiðsson tók fórnarlambið upp í
bíl sinn og ók honum að Laugar-
dalslaug þar sem hringt var á
sjúkrabíl. Maðurinn var úrskurð-
aður látinn á bráðadeild Land-
spítalans klukkan 13.00.
Á sama tíma fannst morðing-
inn andvana í bifreið sinni á Þing-
völlum og hafði hann framið
sjálfsvíg með sama riffli. Bréfið
til lögreglu útskýrði tengslin
milli málanna. Ástæða morðsins
var sú að hinn myrti hafði nýver-
ið tekið upp ástarsamband við
fyrrverandi eiginkonu árásar-
mannsins. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafði árásarmað-
urinn lengi ofsótt konuna.
Jón Friðrik Bjartmarz, yfirlög-
regluþjónn hjá sérsveit lögregl-
unnar, staðfesti við Fréttablaðið
að þrír bílar sérsveitarinnar
hefðu farið á vettvang. Sérsveit-
armenn vopnuðust vegna máls-
ins, en ekki kom til neinnar hand-
töku eins og gefur að skilja. Ekki
er algengt að sérsveitarmenn
vopnist, en það gerist nokkrum
sinnum á ári, að sögn Jóns.
Rannsókninni lýkur líklegast
innan fárra daga, en málið telst
upplýst. Ekkert vitni hafði gefið
sig fram við lögreglu í gær. Morð
var síðast framið á Íslandi 20.
ágúst 2005 þegar maður stakk
annan til bana með hníf á Hverf-
isgötu.
Skrifaði bréfið áður
en atlagan var gerð
Maðurinn sem svipti sig lífi eftir morðið á sunnudag skrifaði bréf til lögreglu
áður en hann lagði af stað til verksins. Maðurinn átti riffilinn sjálfur og hafði
lengi ofsótt konuna. Lögreglan segir morðið hafa verið skipulagt fyrirfram.