Fréttablaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 26
„Þú verður að afsaka töskurnar í ganginum. Við mæðgurnar vorum að koma heim í nótt,“ segir Lenka Ptác- níkova brosandi þegar hún tekur á móti blaðamanni á heimili sínu. Til- efni viðtalsins er að nú um helgina varð Lenka Norðurlandameistari kvenna í skák úti í Danmörku. Dótt- irin, Lilja Helgadóttir, er sjö ára og ætti í raun skilið titilinn „Ferðakon- an unga“ því hún fór ein til Tékklands í sumar í heimsókn til ættingja sinna þar og síðan til Kaupmannahafnar þar sem hún slóst í för með móður sinni heim. Lenka er semsagt frá Tékklandi og flutti hingað árið 2000 með þáverandi eiginmanni sínum Helga Ás Grétars- syni skákmeistara. Það sama ár var stórmeistaratitill hennar í höfn. „Ég tefldi fyrir Tékkland á þeim tíma en eftir að ég varð íslenskur ríkisborg- ari tefli ég að sjálfsögðu fyrir Ísland. Byrjaði á því á ólympíumóti á Mall- orka 2004,“ segir hún. En hvenær fór hún fyrst að tefla? „Ég hugsa það hafi verið um fimm ára aldur. Í Tékkóslóvakíu, eins og land- ið mitt hét í gamla daga. þurftum við oft að flytja en þá var venja að fjöl- skyldan gerði eitthvað skemmtilegt saman. Pabbi kenndi bróður mínum að tefla og ég náði því líka,“ segir hún og brosir. Kveðst í raun ekki hafa haft mikinn áhuga til að byrja með en bróðir hennar hafi verið í skákklúbbi og þar hafi verið skylda að hafa stelp- ur í liðinu líka. „Ég var beðin að koma í liðið og þá fór mér að líka við skák- ina, enda fylgdu henni líka ferðalög sem ég hafði gaman af,“ lýsir hún. Enn fylgja ferðalög skákinni og Lenka kveðst hafa nóg að gera. „Í febrúar á þessu ári var ég að tefla í Moskvu, síðan á Evrópukeppni kvenna í Dresden í Þýskalandi. Í júní tefldi ég á sterku móti hér á landi og nú var ég í Helsingör í Danmörku.“ Hún segir kvennamótin í skák ekki eins sterk og þegar bæði kynin etja kappi. „Það eru miklu fleiri karlar í skákinni en konur og því er mun harð- ari samkeppni þar sem þeir eru með. Stundum er ég eina konan á stórum mótum.“ Spurð um ástæður þessa svar- ar hún: „Það er algengara að strák- ar fari í skák og í taflfélögum eru yf- irleitt örfáar stelpur og það eru ekki margar konur sem halda áfram í skákheiminum.“ Lenka kveðst vera á stórmeistara- launum enda lifi enginn á þeim verð- launum sem fáist á mótum. Sigurinn á nýafstöðnu móti færði henni þrjú þús- und danskar krónur og þær hrökkva ekki fyrir ferðum og uppihaldi. „Sagt er að munurinn milli pókers og skák- ar sé sá að í skákinni sé mikil vinna en lítil laun en í pókernum lítil vinna sem vel er borgað fyrir. Enda hafa margir skákmenn snúið sér að pó- kernum en ég ætla að halda mig við skákina,“ segir hún hlæjandi. Spurð um eftirlætisleik eða vörn í skákinni nefnir hún drekaafbrigði í Sikileyjarvörn. „Ég tefli það sjaldan í dag en gerði það stundum sem lítil stelpa og þykir alltaf vænt um það.“ Fram undan nú er undirbúningur undir Íslandsmót karla sem verður í lok ágúst og byrjun september. Þar verður Lenka ein kvenna og býst við harðri keppni. Þó gæti verið annar kvenmaður í liðinu. Lenka er nefni- lega kona eigi einsömul og á von á barni um miðjan október. Hver veit nema þar sé skáksnillingur á ferð því faðir þess og eiginmaður Lenku er Omar Hamed Aly Salama sem einnig er stórmeistari í skák. Börn náttúrunnar frumsýnd „Margar bíómyndir sem ég hef verið í með öðru lituðu fólki hafa ekki verið það góðar. Margir litaðir leikar- ar eru líka ekki það góðir.“ Elskuleg kona mín, móðir okkar og tengdamóðir, Guðrún Magdalena Birnir, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 2. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð. Elí Auðunsson Þórunn Elídóttir Hörður Kjartansson Jórunn Elídóttir Björn Elíson Bára Traustadóttir Auðunn Elíson Valgerður Þórðardóttir Bryndís Malla Elídóttir Helga Elídóttir Fjalar Jörundsson Einlægar hjartans þakkir sendum við öllum þeim er með nærveru sinni og sam- úðarkveðjum heiðruðu minningu ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Karls Gústafs Ásgrímssonar, Kópavogsbraut 97, Kópavogi. Sérstakar þakkir til séra Hans Markúsar Hafsteinssonar fyrir ómetanlegan stuðning, einnig til lækna og hjúkrunarfólks sem önnuðust hann í veikindum hans. Guð blessi ykkur. Svanhildur Th. Valdimarsdóttir Margrét Inga Karlsdóttir Helga Jóhanna Karlsdóttir Rúnar Sólberg Þorvaldsson Bjarni Karlsson Svanhildur A. Sigurgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Magnúsar Finnbogasonar, verslunarmanns, Gnoðarvogi 68, sem andaðist föstudaginn 6. júlí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans á deild 11G við Hringbraut og starfsfólki Sjúkrahótels LSH við Rauðarárstíg. Steinunn Stefanía Magnúsdóttir Ísleifur Jónsson, Jóhanna Finnborg Magnúsdóttir Hafliði Sigtryggur Magnússon Svanhildur Agnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi, Jónas Jónsson frá Yztafelli, sem lést 24. júlí á Landspítala – háskólasjúkrahúsi verð- ur jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn 31. júlí klukkan 15.00. Sigurveig Erlingsdóttir Sigrún Jónasdóttir Björn Jóhannessen Helga Jónasdóttir Tómas Þór Tómasson Jón Erlingur Jónasson Védís Jónsdóttir Úlfhildur Jónasdóttir Þorsteinn Karlsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og vinur, Guðmundur Kristjánsson Víðigerði 3, Grindavík, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 27. júlí, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 2. ágúst kl. 14.00. Margrét Guðmundsdóttir Jón Guðmundsson Kristín Guðmundsdóttir Hermann Þorvaldur Guðmundsson Kristín Edda Ragnarsdóttir Erla Olsen barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Elísabet Guðmundsdóttir, Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík, áður Grýtubakka 4, lést sunnudaginn 29. júlí 2007. Ómar Ólafsson Kristín Þórarinsdóttir Bragi Hjörtur Ólafsson Guðmundur Kristinn Ólafsson Ingibjörg Sigurðardóttir S.Stefán Ólafsson Jóhanna J. Guðbrandsdóttir Olga Ólafsdóttir Sigurður Jónsson Sólveig Ólafsdóttir Trausti Hermannsson Sigurlín Ólafsdóttir Ólafur Valur Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.