Fréttablaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 30
Sænski leikstjórinn og rithöf- undurinn Ingmar Bergman lést á heimili sínu á eyjunni Faro í Svíþjóð í gærmorgun. Hann var 89 ára að aldri. Bergman var þekktasta andlit sænskrar kvikmyndagerðar og leik- húslífs og dáður af kvikmyndagerð- arfólki um heim allan. Hann var til- nefndur til níu Óskarsverðlauna, og unnu myndir hans þrisvar sinnum til verðlauna fyrir bestu erlendu kvikmyndina. Á meðal þekktustu mynda hans eru Sjöunda innsiglið, Fanny og Alexander og Vetrarljós. Bergman fæddist í Uppsölum árið 1918. Faðir hans var prestur, en móðir hans hjúkrunarkona af yfir- stétt. Bergman stundaði nám í bók- menntafræði við Háskólann í Stokk- hólmi frá 1937-1940 en fékk fljótlega mikinn áhuga á leiklist, og síðar kvikmyndagerð. 1944 varð Berg- man yngsti leikhússtjóri Svíþjóðar, þegar hann tók við starfi í Borgar- leikhúsi Helsingjaborgar. Sama ár var kvikmyndin Hets frumsýnd. Þar skrifaði Bergman fyrsta kvik- myndahandrit sitt, en Alf Sjöberg leikstýrði. Í febrúar 1945 leit Kris dagsins ljós, en það er fyrsta mynd- in sem Bergman leikstýrði. Á ferli sínum leikstýrði Bergman yfir fjörutíu kvikmyndum og fjölda sjónvarpsmynda og leikuppsetn- inga, auk þess að skrifa handrit og bækur. Af öllum kvikmyndum sínum var Bergman sjálfur ánægðastur með Vetrarljós, Persona og Cries and Whispers, þó að hann segði í viðtali árið 2004 að hann gæti ekki lengur horft á myndir sínar og yrði „þung- lyndur“ af því. Svíar syrgðu Bergman í gær og heiðruðu minningu helsta frömuðar kvikmyndagerðar þar í landi. For- sætisráðherrann Fredrik Reinfeldt skrifaði í gær að það væri erfitt að fá yfirsýn yfir gífurlegt framlag hans til sænskrar, og erlendrar, kvikmyndagerðarlistar. „Verk hans eru ódauðleg,“ skrifaði Reinfeldt, sem sagðist jafnframt vona að arf- leifð Bergmans myndi halda áfram að dafna. Woody Allen syrgði jafn- framt vin sinn, en hann hefur mar- goft sagt Bergman vera mikla fyr- irmynd. „Hann er væntanlega merkilegasti kvikmyndagerðar- maðurinn, í öllum flokkum, síðan að myndavélin var fundin upp,“ sagði Allen um Bergman, í tilefni af sjö- tíu ára afmæli Bergmans árið 1988. Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri var vel kunnugur Ingmar Berg- man. Kynni þeirra hófust þegar Hrafn tók við hann viðtal fyrir íslenska sjónvarpið, og seinna meir dvaldist Hrafn hjá Bergman á Farö. „Ég á það eiginlega honum að þakka að Hrafninn flýgur var uppgötvuð erlendis, eftir að hann ótilkvaddur, og án þess að þekkja nokkuð til mín, hafði tjáð sig um myndina við sænsku pressuna,“ sagði Hrafn. Hann segir Bergman hafa verið sérstakan mann; alvörugefinn en um leið mikinn húmorista. „Hann var mjög agaður og vandaði mikið til alls sem hann gerði. Hann agaði sænska kvikmyndagerð þannig að Svíar eru stórveldi í kvikmyndagerðarheiminum í dag,“ sagði Hrafn. Vægi ævistarfs Bergmans nær þó langt út fyrir Svíþjóð að hans mati. „Á meðan kvikmyndir eru búnar til og þetta listform er við lýði, þá mun Bergman standa einn og sér. Hann er eins og James Joyce eða Marcel Proust eru í prósanum. Það getur enginn unnið heill í sínu fagi nema að þekkja hann,“ bætti hann við. Bergman sér á báti Sigríður Pétursdóttir kvikmynda- fræðingur segist halda að ævi- starf Bergmans verði enn mikil- vægara með tímanum. „Ég held að það séu mjög fáir kvikmyndaleik- stjórar til í dag sem myndu ekki segja að Bergman hefði verið áhrifavaldur.“ Sigríður segir Bergman hafa fylgt sér frá unga aldri. „Ein af mínum fyrstu ungl- ingsminningum er þegar ég var að stelast til að horfa á Þætti úr hjónabandi. Það þótti ekki mjög fínt að horfa á Ingmar Bergman þá, svo ég sagði vinum mínum ekki frá þessu,“ sagði hún og hló við. Þegar Sigríður fór í kvik- myndafræðinám til Svíþjóðar sá hún mikið af viðtölum við Berg- man. „Hann var alltaf skemmti- legur og alveg ofboðslega heill- andi maður,“ sagði Sigríður. Heillandi maður Margir hafa tjáð sig um mál Lindsayar Lohan að undanförnu og er grínist- inn Rob Schneider sá nýj- asti og hefur hann afar sterkar skoðanir á málinu. „Þegar Dina Lohan hættir að djamma með dóttur sinni þá skal ég bera virðingu fyrir henni. Mér er samt algjörlega sama þótt báðir foreldrar hennar séu slæm- ir, hún getur ekki kennt þeim um endalaust,“ sagði Schneider blygðunarlaust. „Lindsay, taktu þér tak. Ameríka mun fyrirgefa þér einhvern daginn en þú verður að gera eitthvað jákvætt við líf þitt. Ég vona að henni muni ganga betur en það eru svo miklu stærri vandamál í heiminum en Lindsay Lohan. Ég vona að hún nái einhvern tíma sínum fallega haus út úr afturendanum og finni sér líf. Hún er mjög hæfileika- rík og sérstök leikkona en það eru ótal margir þarna úti sem væru til í að skipta við hana og myndu nýta þetta tækifæri miklu betur,“ sagði Schneider og var ekkert að skafa af hlut- unum. Áður hafa bæði Matt Damon og Martin Sheen tjáð sig um mál Lindsay en fóru þó báðir örlítið fínna í hlutina. Rob ráðleggur Lindsay V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA! SENDU SMS JA SMF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA HEIMSFRUMSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ 11. HVER VINNUR ! Brúðkaups- veislur Önnumst alla þætti veislunnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.