Fréttablaðið - 31.07.2007, Síða 25
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Tjaldaland
Útilífs er við
hliðina á
TBR-höllinni
Troðfull flöt af
uppsettum
tjöldum!
SUÐURLAN
DSBRAUT
SUÐURLAN
DSBRAUT
GNOÐAR
VOGUR
GLÆSIBÆ
R
T
B
R
1
T
B
R
2
Á
L
F
H
E
IM
A
R
G
R
E
N
S
Á
R
S
V
E
G
U
R
Tjaldaland
Andros 6 manna
Fjölskyldu-braggatjald með tveimur
svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk.
Öflugar álsúlur.
Tilboð 36.990kr.
Verð áður 42.990 kr.
Útilegan
byrjar í Útilíf
Allar útilegugræjur á einum stað
Nevada 3ja manna
3ja manna sígilt kúlutjald.
Tilboð 4.990kr.
Verð áður 6.990 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
38
48
0
07
/0
7
Como 6 manna
Fjölskyldutjald með tveimur svefntjöldum.
Fortjald er á milli svefntjaldanna.
Tveir inngangar.
Tilboð 14.990kr.
Verð áður 19.990 kr.
Deuter Aircontact
65+10 l
Poki ársins í sínum flokki
árið 2004 og 2006
hjá Outdoor tímaritinu.
Tilboð 19.990kr.
Verð áður 23.990 kr.
Deuter Aircontact
50+10 SL
Dömupoki í Aircontactlínunni
frá Deuter.
Sérhannaður fyrir konur.
Tilboð 19.990kr.
Verð áður 21.990 kr.
Millet Hiker 38 l
Frábær dagpoki.
Innbyggð regnvörn.
Tilboð 9.990kr.
Verð áður 12.990 kr.
Meindl Island Pro GTX
Flokkun BC. „Einn sá allra besti“
Heil tunga og vandaður frágangur.
Ótrúlega léttir! Þyngd: 830 g (stærð 42).
GTX vatnsvörn. MFS fóður lagar sig að fætinum.
Vibram veltisóli með fjöðrun. Sérlega góður stuðningur við ökklann.
Einnig fáanlegir í dömustærðum, bláir.
Tilboð19.990kr.
Verð áður 24.990 kr.
Meindl Colarado lady
Flokkun B
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Multigriff sóli.
Þyngd: 750 g (stærð 42).
Einnig til í herraútfærslu.
Tilboð 17.990kr.
Verð áður 19.990 kr.
[Hlutabréf]
Öll skilyrði yfirtökutilboðs Eimskips í
kanadíska fyrirtækið Versacold Income
Fund hafa verið uppfyllt samkvæmt til-
kynningu Eimskip Holdings Inc., dóttur-
félags Hf. Eimskipafélags Íslands og
stjórnar Versacold Income Fund til
Kauphallar Íslands í gær. Þá hafa öll til-
skilin leyfi fyrir yfirtökunni verið veitt.
Yfirtökutilboðið í allt félagið sem var
lagt fram í maílok hljóðaði upp á 67 millj-
arða króna.
Eimskip verður við yfirtökuna á Ver-
sacold langstærsta kæli- og frysti-
geymslufyrirtæki heims með starfsemi
í 35 löndum í fimm heimsálfum.
„Eimskip hefur fengið samþykki fyrir
kaupum á um það bil 54,1 milljón hlut-
um, sem samsvara 93 prósentum af
útgefnum og útistandandi hlutum eða 87
prósentum af útgefnum og útistandandi
hlutum að öllum hlutum meðtöldum,“ að
því er fram kemur í tilkynningu félags-
ins.
Eimskip ætlar að eignast allt hlutafé í
Versacold Income Fund og áætlar að því
ljúki núna um mánaðamótin. „Versacold
verður afskráð úr Kauphöllinni í Toronto
eins fljótt og hægt er með tilliti til þeirra
laga sem gilda þar um. Einnig hyggst
Versacold sækja um leyfi til Fjármála-
eftirlits Kanada um að losna undan regl-
um sem gilda um skráð fyrirtæki um
leið og Eimskip eignast allt hlutafé í
félaginu.“ Eimskip vann með KingSett
Capital að fjármögnun kaupanna, sem
verður með veði í fasteignum.
Ljúka yfirtökunni á Versacold
Eimskip orðið langstærsta kæli- og frystigeymslufyrirtæki heims.
Glitnir birtir hálfsárs uppgjör sitt í
dag sem er það fyrsta eftir að
Lárus Welding tók við forstjóra-
starfinu af Bjarna Ármannssyni.
Landsbankinn spáir góðu upp-
gjöri frá Glitni. „Mikil endurskipu-
lagning hefur átt sér stað nýlega
hjá bankanum og þá sérstaklega í
tengslum við starfsemi bankans í
Noregi. Við spáum 8,5 ma.kr. hagn-
aði hjá bankanum á fjórðungnum,“
segir í Vegvísi Landsbankans.
Kaupþing reiknar með að hagn-
aður Glitnis á öðrum ársfjórðungi
hafi legið rétt undir 8,2 milljörðum
króna.
Glitnir skilaði um ellefu millj-
örðum króna í hagnað á öðrum árs-
fjórðungi í fyrra.
Fyrstu tölur
Lárusar Weldings
Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,19
prósent í gær og endaði í 8.507
stigum. Þetta var sjötti viðskipta-
dagurinn í röð sem vísitalan
lækkar og þarf að leita aftur til
ellefta maí árið 2005 til að finna
jafn marga lækkunardaga í röð.
Frá því að Úrvalsvísitalan náði
hæsta gildi frá upphafi hinn 18.
júlí hefur hún lækkað um 5,6
prósent. Þrátt fyrir umræddar
lækkanir er árshækkun hennar
þegar orðin um 33 prósent.
Velta gærdagsins nam 9,4
milljörðum króna og var mikill
fjöldi viðskipta eða 845.
Erlendir hlutabréfamarkaðir,
sem hafa einnig verið að lækka,
réttu úr kútnum í gær og
hækkuðu bandarísk hlutabréf
eftir að verðbréfafyrirtæki á Wall
Street mæltu með kaupum í
hlutabréfum.
Sex daga lækk-
un vísitölunnar
Fjögurra vikna meðalvelta á fast-
eignamarkaði á höfuðborgarsvæð-
inu jókst um 155 prósent miðað
við sama tíma í fyrra og hefur
ekki verið meiri á þeim tíma sem
gögn ná til, eða til ársins 2002.
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans er frá því greint að
ársbreytingin hafi tekið mikinn
kipp við byrjun sumars með auk-
inni veltu á fasteignamarkaði.
„Einungis tvisvar sinnum áður
hefur verið svipuð fjögurra vikna
ársbreyting en það var undir lok
árs 2004 og á vormánuðum 2005
en þá var breytingin um 120 pró-
sent,“ segir í riti greiningardeild-
arinnar.
Bankinn bendir þó á að lækkun
lánshlutfalls auk hærri vaxta gæti
hægt á fasteignamarkaðinum,
lánshlutfall íbúðalána hjá Íbúða-
lánasjóði hafi nýlega verið lækkað
úr 90 prósentum í 80 prósent, auk
þess sem viðskiptabankarnir hafi
hækkað vexti á íbúðalánum.
Metvelta á fast-
eignamarkaði