Fréttablaðið - 31.07.2007, Qupperneq 32
Frágangur er fyrsta plata Megasar
með nýju efni síðan Far þinn veg
kom út árið 2001 ef frá er talin
Megasukk platan Hús datt sem
kom út fyrir tveimur árum. Megas
hefur verið áberandi í útgáfu síð-
ustu ára aðallega vegna endurút-
gáfu á fyrstu 13 plötunum hans og
útgáfu á áður óútkomnu tónleika-
efni, en nú er sem sagt loksins
komin alvöru ný Megasarplata.
Frágangur hefur að geyma 12
lög, tekin upp með Senuþjófunum
sem eru í grunninn hljómsveitin
Hjálmar (Sigurður Guðmundsson,
Nils Olof Törnqvist, Mikael Svens-
son og Guðmundur Kristinn Jóns-
son) og Guðmundur Pétursson gít-
arleikari. Auk þeirra koma við
sögu í einstaka lögum þau Sigríð-
ur Thorlacius söngkona, Vala
Gestsdóttir víóluleikari, Maja
Landin klarinettuleikari og Eirík-
ur Orri Ólafsson trompetleikari.
Það fyrsta sem maður tekur
eftir þegar maður setur Frágang í
spilarann er hvað það er margt
sem minnir á meistaraverk
Megasar frá áttunda áratugnum.
Þegar betur er hlustað verður
manni ljóst að þetta getur ekki
verið tilviljun, – hljómurinn og
útsetningarnar sækja mikið í
Millilendingu, Fram og aftur
blindgötuna og sérstaklega Á
bleikum náttkjólum og sums stað-
ar er beinlínis vísað í ákveðin lög.
Kvenröddin í M-nótt minnir t.d. á
Diddú í Útumholtoghólablús og
trommuleikurinn í byrjun Freyju-
fárs minnir á Paradísarfuglinn.
Útsetningarnar eru hljómfagrar
og poppaðar, píanóið og orgelið
eru áberandi. Hér er ekki verið að
reyna að brjóta blað tónlistarlega
eins og stundum áður (t.d. á Höf-
uðlausnum og Far þinn veg). Það
er einfaldlega verið að setja þessi
lög Megasar í poppbúning sem
virkar. Án tilgerðar.
Lagasmíðarnar á Frágangi eru
allar skotheldar og textarnir eru
skemmtilegri en þeir hafa verið
hjá Megasi í nokkurn tíma. Það er
greinilegt að margir þeirra eru
nýlegir; – í M-nótt fer Megas á
flug með Silvíu Nótt og Niður með
náttúruna er innlegg í stóriðju- og
virkjanaumræðuna. Það síðar-
nefnda sýnir að Megas kann enn
þá að ögra þó að hann passi að hafa
textann nógu opinn til þess að
hann verði ekki nappaður fyrir
einhverja óhæfu. Það er líka
skemmtileg „dirty old man“
stemning yfir plötunni sem er
hvergi skýrari en í laginu Gott er
að elska. Þar snýr Megas rómant-
ískri tryggðarást Bubba í laginu
Það er gott að elska upp í and-
hverfu sína – skefjalaust lauslæti,
og dundar sér við að hugsa upp ný
og ný tilbrigði við stefið: „Sveitt
að fara uppá seljur eins og þig/
klassi að taka aftan kvensur eins
og þig/það virkar svo kúl og eitt-
hvað krassandi á mig/það er gott
að láta totta gærur eins og þig“…
Eitt af því sem skiptir miklu
máli á Megasarplötum er söngur-
inn og eins og annað er hann frá-
bær á Frágangi, t.d. í fyrrnefndu
Gott er að elska, (Minnst tíu millj-
ón) Flóabitanótt, Heill, M-nótt og
Uppskeruhátíð. Það er unun að
hlusta á það hvernig Megas skælir
og teygir röddina til að ná hárrétt-
um áherslum.
Framtíðin verður að skera úr
um það hvort einhver laganna á
Frágangi verða klassísk og kom-
ast í úrval bestu laga Megasar.
Mörg þeirra hafa alla burði til
þess, t.d. Gott er að elska, Niður
með náttúruna, Heill og Uppskeru-
hátíð. Karlinn er greinilega í mikl-
um ham því að Frágangur er
aðeins fyrri plata hans af tveimur
sem væntanlegar eru á árinu.
Á heildina litið er Frágangur
frábær plata. Ein af bestu plötum
Megasar. Textarnir eru kannski
ekki eins jafngóðir og á hans
fyrstu plötum og sumum kann að
þykja farið full langt í að stæla
gömlu Megasarplöturnar á stöku
stað, en hvort tveggja eru smáat-
riði sem skemma ekki plötu sem
sannar enn eina ferðina að Megas
er yfirburðamaður í íslenskri
poppsögu.
Framúrskarandi Frágangur
Baráttutónleikar verða
haldnir á Grand rokki á
morgun en það er Karlahóp-
ur Femínistafélags Íslands
sem stendur fyrir herleg-
heitunum.
Hópurinn hefur síðustu fjögur
sumur staðið fyrir átakinu „Karl-
menn segja NEI við nauðgunum“
og hefur verið lögð mikil áhersla á
átakið í kringum verslunarmanna-
helgina. „Það hefur verið ýmislegt
í gangi hjá okkur í sumar og við
ákváðum að halda þessa tónleika
til að hefja átakið með hvelli,“
segir Hjálmar G. Sigmarsson í
Karlahópi Femínistafélagsins.
„Tónleikana köllum við „Nei við
nauðgunum“ og eru þeir haldnir í
samstarfi við V-dagssamtökin og
Jafningjafræðsluna. Á fimmtudag
og föstudag verðum við hér og þar
á höfuðborgarsvæðinu að dreifa
bæklingum, barmmerkjum, bolum
og að ræða við gangandi vegfar-
endur en um helgina verðum við í
Eyjum og á Akureyri. Aðalmark-
miðið er að hvetja karlmenn til að
taka virkan þátt í þessari umræðu
og fá þá til að velta því fyrir sér
hvernig með vitundarbreytingu er
hægt að koma í veg fyrir nauðgan-
ir. Einnig leggjum við áherslu á
það hversu mikilvægt er að draga
ábyrgðina frá konunum.“
Að mati Hjálmars hefur átakið
borið árangur og finnur hann mun
á viðbrögðum fólks nú og fyrir
fjórum árum. „Við erum farnir að
finna fyrir mun meiri stuðningi.
Fólk er farið að átta sig á mikil-
vægi átaksins og er duglegt að
hvetja okkur áfram. Einnig höfum
við fengið nýja sjálfboðaliða inn í
hópinn og er það mjög gott að
ungir karlmenn sýni þessu áhuga.
Það sýnir að þetta er gjörlegt, það
er hægt að breyta því umhverfi
sem hefur ríkt í tengslum við
nauðganir en það er mikilvægt að
endurtaka skilaboðin reglulega.“
Það eru hljómsveitirnar og tón-
listarmennirnir Sprengjuhöllin,
Lay Low, Wulfgang, Ólöf Arnalds,
B.Sig, Pétur Ben, Byssupiss, Dikta
og Þórir sem leika fyrir gesti á
Grand rokki á morgun. Enginn
aðgangseyrir er að tónleikunum
sem hefjast klukkan átta en fólk
er hvatt til að láta af hendi frjáls
framlög sem renna öll til styrktar
Stígamótum.
SIMPSONS enskt tal kl. 4, 6, 8 og 10 L
SIMPSONS íslenskt tal kl. 4 og 6 L
DEATH PROOF kl. 7.30 og 10 16
1408 kl. 8 og 10 16
SHREK 3 íslenskt tal kl. 4 og 5.45 L
www.laugarasbio.is - Miðasala á
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Sími: 553 2075
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SHREK, Fíóna, Stígvélaði
kötturinn og Asninn eru
mætt aftur í skemmtilegasta
ævintýri allra tíma
ÁLFABAKKA
DIGITAL
KRINGLUNNI
VIP
KEFLAVÍK
AKUREYRI
www.SAMbio.is 575 8900
BLIND DATING kl. 8 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 2 - 4 - 6 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8 - 10:10 L
OCEAN´S 13 kl. 10:10 7
GEORGIA RULES kl. 8 - 10:20 7
HARRY POTTER 5 kl. 6 - 9 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L
GEORGIA RULES kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 7
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 10
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 10
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8
EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 L
GEORGIA RULES kl. 5:30 - 8 - 10:30 7
HARRY POTTER 5 kl. 5:20 - 8 - 10:40 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8 L
PIRATES 3 kl .10 10 THE SIMPSONS ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10 L
HARRY POTTER 5 kl. 8 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MOVIE LÚXUS kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10
EVAN ALMIGHTY kl. 4 - 6 - 8 - 10
DIE HARD 4.0 kl. 5 - 8 - 10.45
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl.6.30 - 8.30 - 10.30
DEATH PROOF kl. 5.20 - 8 - 10.40
TAXI 4 kl. 8 - 10
DIE HARD 4.0 kl. 5.20 - 8 - 10.40
FANTASTIC FOUR 2 kl. 5.4514
16
14
14
16
16
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6 - 8
DEATH PROOF kl. 10 16
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6
DEATH PROOF kl. 10.15
1408 kl. 8