Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.07.2007, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 31.07.2007, Qupperneq 40
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is Guð blessi munninn á mér. Þessi setning kemur fyrir í skáldsög- unni Svartfugl eftir Gunnar Gunn- arsson þegar sögupersónu þykir hún hafa sagt of mikið um atburði sem ekki ætti að tjá sig um sakir þekkingarleysis og eðli umræðuefn- isins. Töluð orð eru þó gædd þeim eiginleikum að þau fuðra upp í loft- inu eftir að þeim hefur verið sleppt af vörunum. Þó að orðin geti vissu- lega haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér er hægt að reka þau ofan í persónuna sem þau mælti. sögusmettur hófu göngu sína með slúður milli bæja hefur margt breyst. Rógberarnir þurfa ekki lengur að standa upp til að koma dylgjum sínum áleiðis. Róginn er heldur ekki hægt að rekja beint til þeirra. Nú getur sögusmettan setið sallaróleg með fíkjukex og kaffibolla við tölvuna og þusað um hvers kyns mál sem hún hefur ekki hugmynd um undir dulnefni. Slef- berarnir þurfa ekki að leita heim- ilda, afsaka neitt heldur láta þeir bara móðan mása. Öðru fólki oft til mikilla miska. talar fólk um það sem er efst á baugi í samfélaginu þá stundina. Skynsemin og samviskan kemur þó oft í veg fyrir að það láti allt flakka sem því dettur í hug um málið hvort sem það telur að hug- dettan sé skarpleg ályktun eða skemmtileg hótfyndni. á netinu verða sífellt öflugri og notendavænni. Ef voveiflegir atburðir sem varða sam- félagið allt gerast greina þeir oftast fyrstir frá þeim. Upplýsingum er svo bætt við fréttirnar eftir því sem frekari staðfestingar berast af atburðunum. Bæði viðkomandi fréttastofa og -ritari verða að gæta sín á að láta ósönn og óvarleg orð ekki falla. Sama lögmál virðist þó alls ekki gilda um fréttahnýtingana eða mítlana sem flestir miðlar leyfa að leggja orð í belg á síðum sínum. samræðna virðast helst þrífast á vönduðum fréttamiðl- um og því veltir maður því fyrir sér hvaða tilgang fréttastofurnar sjá í því að hver sem er geti hengt daun- illan slúðurhala við hlið fréttanna. Að setja ófyrirleitin orð inn á fjöl- förnum stað netsins er líkast því að orðin væru öskruð hástöfum í mann- þröng. Allar líkur eru á því að þeir sem koma að málinu verði óþyrmi- lega varir við spaugið og slúðrið. er svo sem hægt að halda uppi vörnum fyrir andstyggilegan úrganginn sem menn leyfa sér að klína utan í fréttasíður úr hugar- fylgsnum sínum: og benda á að eng- inn sé neyddur til lestursins. Klín- ingurinn er þó þeim eiginleika gæddur að hann sést hvort sem manni líkar betur eða verr. Það hefur áhrif á hughrifin við lestur frétt-arinnar og geta hrellt þá sem koma að málinu. getur orðið á að reka við á almannafæri. Að setja ófyrirleit- in orð á netið er þó líkara því að maður skíti á tröppurnar hjá nágrannanum. við önnur verðmæti eru orð oft þeim mun dýrari eftir því sem þau eru lágkúrulegri. Dreggjar samræðna

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.