Fréttablaðið - 07.08.2007, Side 6
Nokkrir menn hafa verið yfirheyrðir af
lögreglu vegna máls þar sem rúmlega sextugur
maður fannst liggjandi í blóði sínu á götu í Breiðholti
í Reykjavík á föstudagskvöld. Þeir voru í bíl sem talið
er að hafi verið ekið á manninn, og stungið af.
Komið var að manninum þar sem hann lá meðvit-
undarlaus á miðri götunni í Hraunbergi í Breiðholti,
og var hann í hjartastoppi. Ekki er ljóst hvað kom
fyrir hann, en bremsuför voru á götunni nálægt
staðnum þar sem hann fannst.
Lífgunartilraunir voru hafnar og maðurinn fluttur
á Landspítalann, þar sem hann liggur enn. Honum
var haldið sofandi í fyrstu en vaknaði í fyrradag.
Hann er úr lífshættu, og er talinn á batavegi.
Fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
staðfesti að nokkrir menn hefðu verið yfirheyrðir
vegna málsins. Engar aðrar upplýsingar fengust hjá
lögreglu.
Gísli Þorsteinsson, lögreglufulltrúi hjá ofbeldisbrota-
deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, neitaði að
tjá sig um málið þegar leitað var eftir því.
HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA
ÞÚ FÆRÐ DECUBAL
Í NÆSTA APÓTEKI
– og farsælan vinnudag!
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Eigum einnig til notaðar vel meðfarnar TASKI gólfþvottavélar,
nýkomnar úr 3ja ára rekstrarleigu frá viðskiptavinum RV.
Tækifæri til að gera ótrúlega góð kaup.
Einstaklega lipur vél sem
hentar á svæðum þar sem
aðkoma er þröng. Vél sem
kemur á óvart!
Reiknuð afköst 1250m2/klst
Lítil og nett, en afkastamikil
vél með innbyggðu hleðslutæki
sem hindrar afhleðslu rafgeyma.
Reiknuð afköst 1935m2/klst
Á tilb
oði í
ágú
st 20
07
U
ni
qu
eR
V
07
07
02
Eldur kviknaði á
þremur stöðum í austurborginni
aðfaranótt föstudags. Málið er í
rannsókn og grunur er um
íkveikju. Fjórtán ára drengur var
handtekinn um nóttina, en honum
var sleppt. Ekki er vitað hvort
hann átti aðild að brununum.
Fyrst var gert viðvart vegna
elds í brettum í Mörkinni laust
fyrir klukkan tvö. Klukkutíma
síðar kviknaði í geymslu í
Gnoðarvogi. Loks var tilkynnt um
eld í gúmmíbáti í sömu götu.
Slökkvilið var kallað út og
greiðlega gekk að slökkva í
logunum.
Kveikt í þrisvar í
austurborginni
„Við óskuðum fyrst
eftir aðstöðu á þessu svæði árið
2003 og það er ánægjulegt að
þetta sé loksins í höfn,“ segir
Ágúst Guðmundsson, formaður
Fisfélags Reykjavíkur, en borg-
arráð staðfesti á fimmtudag
samning um að félagið fengi afnot
af afmörkuðu svæði á Hólmsheiði
undir flugvöll og félagsaðstöðu.
Borgaryfirvöld útiloka ekki að
Reykjavíkurflugvöllur flytjist á
Hólmsheiði í framtíðinni því í
samningnum segir að borgin geti
sagt honum upp verði ákveðið að
flytja flugvöllinn þangað. Öll hús
Fisfélagsins skulu einnig vera
þannig byggð að unnt sé að flytja
þau á brott.
Fisflugmenn eru ánægðir með
samninginn. „Við missum
aðstöðuna okkar að líkindum í
haust svo það var brýnt að finna
félaginu nýjan stað. Hólmsheiðin
var í raun eina svæðið innan borg-
armarkanna sem kom til greina,“
segir Ágúst.
Ekki eru allir ánægðir með að
Fisfélagið fái aðstöðu á
Hólmsheiði og hefur Félag
landeigenda í Óskoti og í Reynis-
vatnslandi óskað eftir því að
úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála felli úr gildi sam-
þykktir Reykjavíkurborgar á
þeim rökum að flugumferð raski
friðsæld þeirra sem dvelja í sum-
arbústöðum.
Ágúst segir að áhyggjur íbú-
anna byggist á misskilningi og á
ekki von á því að þetta breyti
ákvörðun borgarráðs.
Fisfélagið fær aðstöðu á Hólmsheiði
Næstum því þriðjungur
þeirra vopna sem Bandaríkjaher
hefur afhent írösku lögreglunni
undanfarin ár er horfinn. Óttast er
að þessi vopn hafi komist í hendur
uppreisnarmanna sem beiti þeim
nú gegn bandarískum hermönnum.
Þetta kemur fram í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar Bandaríkjanna og
fréttavefur BBC greinir frá.
Meðal vopnanna sem bandaríski
herinn getur ekki gert grein fyrir
eru 110 þúsund AK-47 rifflar og 80
þúsund skammbyssur, ásamt 135
þúsund hlífðarbrynjum og 115
þúsund hjálmum. Alls eru þetta 30
prósent allra þeirra vopna sem
íraska lögreglan hefur fengið frá
Bandaríkjaher síðustu þrjú árin.
Varnarmálaráðuneytið véfengir
ekki þessar tölur en segir að starfs-
reglur varðandi úthlutun vopna séu
í endurskoðun.
Bandarísk stjórnvöld hafa varið
tæplega tólf hundruð milljörðum
króna í íraskar öryggissveitir frá
árinu 2003 og þar hafa 174,7
milljarðar farið í að kaupa og
afhenda vopn og annan búnað.
Bandaríkjastjórn hefur lagt alla
áherslu á að gera íraskar lögreglu-
og hersveitir færar um að taka við
öryggisgæslu í Írak, því þá fyrst
geti Bandaríkjaher farið frá landinu
þegar heimamenn eru farnir að
geta tryggt friðinn án utanaðkom-
andi aðstoðar.
Þess vegna er það þeim mun
neyðarlegra að vopnin skuli fara
beint til andstæðinga Bandaríkja-
manna í Írak.
Bandaríkjaher hefur á hinn bóg-
inn ásakað stjórnvöld í Íran um að
kynda undir átökin í Írak. Banda-
ríkjamenn segja Írana hafa veitt
íröskum sjíum, sem barist hafa
gegn Bandaríkjamönnum í Írak,
bæði vopn og herþjálfun. Íranar
harðneita þessu, en á fundi sendi-
herra Bandaríkjanna og Írans í
Bagdad í gær var ákveðið að þeir
myndu halda áfram að hittast
reglulega.
Staða ríkisstjórnar Nouri al-
Malikis í Írak versnaði síðan enn í
gær þegar fimm ráðherrar, allt
saman súnní-múslimar, tilkynntu að
þeir myndu ekki mæta á ríkisstjórn-
arfundi. Þar með eru engir súnní-
múslimar lengur í stjórninni, sem
átti að tryggja samstarf sjía, súnnía
og kúrda við stjórn landsins.
Þriðjungur vopna
til Íraks er glataður
Bandaríkjaher getur ekki gert grein fyrir því hvað orðið hefur um 30 prósent
þeirra vopna sem afhent voru írösku lögreglunni síðastliðin þrjú ár.
Finnst þér rétt að banna
nektardans á skemmtistaðnum
Goldfinger?
Fórst þú í ferðalag um helgina?