Fréttablaðið - 07.08.2007, Síða 8
Vertu með frá byrjun
Við leitum að kraftmiklu og hressu fólki
sem vill takast á við áskorun í starfi.
Starfið felur í sér að veita viðskiptavinum
NOVA ráðgjöf í tengslum við hina nýju
3G þjónustu fyrirtækisins.
Við leggjum áherslu á gott og
skemmtilegt starfsumhverfi hjá nýju
og spennandi fyrirtæki.
NOVA er nýtt 3G félag sem mun bjóða
nýja tegund farsíma- og netþjónustu
síðar á þessu ári. 3G mun breyta með
hvaða hætti fólk á í samskiptum, miðlar
upplýsingum og afþreyingu.
Vilt þú takast á við nýja og skemmtilega
hluti að loknu sumarfríi og ganga til liðs
við NOVA?
NOVA · Sætúni 8 · 105 Reykjavík · Sími 517 6660 · nova.is
Verslanir
NOVA leitar að öflugum sölu-
og þjónusturáðgjöfum í verslanir.
Hæfniskröfur
Lífsgleði og jákvætt viðhorf.
Góð tölvukunnátta.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
Nánari upplýsingar á nova.is
Sölu- og þjónustuver
NOVA leitar að öflugum sölu- og
þjónusturáðgjöfum í sölu- og þjónustuver.
Vinnutími
Unnið er á vöktum.
Í boði er fullt starf og hlutastarf.
Nýir starfsmenn munu fá yfirgripsmikla þjálfun
áður en þeir hefja störf.
Áhugasamir sendi inn ferilskrá með upplýsingum
um menntun og fyrri störf á netfangið
nova@nova.is fyrir 10. ágúst nk. Gætt verður
fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir.
„Á þessu stigi málsins veit ég ekki til
þess að það hafi verið unnin nein spjöll og maður
vonar bara að svona mál leysist í góðu,“ segir Bjarni
Daníelsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps.
Bjarni segir Svein Pálsson, sveitarstjóra Mýrdals-
hrepps, hafa haft samband við byggingarfulltrúa
Skaftárhrepps, eftir umfjöllun Fréttablaðsins um
endurbyggingu og umtalsverða stækkun veiðihúss
við Grænalón.
Sveinn hóf endurbyggingu veiðihússins, sem
stendur á þjóðlendu, án leyfis frá byggingaryfirvöld-
um hreppsins og forsætisráðuneyti, sem fer með
forræði yfir þjóðlendum.
Bjarni segist ekki þekkja mikið til málsins en er
ánægður með að verið sé að endurbæta húsnæði í
hreppnum, almennt séð. Hins vegar hafi verið
klaufalegt af Sveini og félögum að sækja ekki um
tilskilin leyfi.
„Það eru mjög stífar reglugerðir um þetta nú til
dags,“ segir Bjarni. Það flæki hlutina enn fremur að
um þjóðlendu sé að ræða.
George W. Bush
Bandaríkjaforseti undirritaði á
sunnudag lög sem gefa yfirvöld-
um auknar heimildir til hlerana á
símtölum og tölvupóstsamskipt-
um bandarískra ríkisborgara sem
grunaðir eru um að vera hryðju-
verkamenn, án þess að sækja þurfi
um sérstaka heimild til þess í
hvert sinn. Neðri deild og öldunga-
deild Bandaríkjaþings samþykktu
lögin rétt fyrir þingslit vegna
sumarleyfa.
Bush hafði lýst frumvarpið for-
gangsmál. „Þegar sérfræðingar
okkar hjá leyniþjónustunni hafa
lagaleg úrræði til að afla upplýs-
inga um fyrirætlanir óvina okkar
eru Bandaríkin öruggari,“ sagði
Bush á sunnudag. „Og þegar þessi
sömu lagalegu úrræði vernda einn-
ig borgaraleg réttindi Bandaríkja-
manna þá getum við treyst þeirri
vitneskju okkar að við getum varð-
veitt frelsi okkar meðan við gerum
Bandaríkin öruggari.“
Markmið laganna er að hægt sé
að hlera samskipti sem fara í
gegnum Bandaríkin. Yfirvöld
sögðu þetta úrræði nauðsynlegt
til að flýta fyrir störfum Þjóðar-
öryggisstofnunarinnar við að
hlera símtöl, tölvupóst og önnur
samskipti erlendra ríkisborgara
„sem talið er að séu fyrir utan
Bandaríkin“.
Mannréttindasamtök og margir
demókratar segja lögin ganga of
langt þar sem þau gefi yfirvöldum
heimildir til að hlera samskipti
bandarískra ríkisborgara við aðila
erlendis án fullnægjandi eftirlits
frá dómstólum eða þingi.
Auknar heimildir
veittar til hlerunar
Bush Bandaríkjaforseti segir nauðsynlegt að leyniþjónustan hafi lagaleg úrræði
til að hlera símtöl og tölvupóstsamskipti grunaðra hryðjuverkamanna.