Fréttablaðið - 07.08.2007, Qupperneq 16
„Karlar mega semja lög um
fólk meðan konum leyfist að
semja lög um konur.“
Hljómsveitin Dúkkulísur sem dúkkaði
upp á Egilsstöðum fyrir 25 árum er ein
af fáum kvennahljómsveitum á land-
inu og sú sem starfað hefur lengst.
Hún ætlar að halda upp á aldarfjórð-
ungsafmælið með tónsmiðju á Egils-
stöðum 8., 9. og 10. ágúst sem ein-
göngu er ætluð stúlkum á aldrinum 12
til 18 ára. Að sögn Erlu Ragnarsdótt-
ur, söngkonu Dúkkulísa, er hugmynd-
in að koma nokkrum kvennasveitum
á koppinn á þessum þremur dögum,
hvort sem það verða slagverkskombó,
dúettar eða tríó. Bara að það heiti
hljómsveit. „Við sköffum hljóðfæri
og veitum leiðsögn,“ tekur hún fram.
En þurfa stúlkurnar ekki að hafa ein-
hverja undirstöðu? „Ja, ekkert endi-
lega,“ svarar Erla. „Við kunnum lítið
sem ekkert á sínum tíma, höfðum bara
óbilandi áhuga. Það þarf því engin sér-
stök próf í þetta heldur einungis áhug-
ann og gleðina.“
Kennslan fer fram í höfuðstöðv-
um Tónskóla Fljótsdalshéraðs að sögn
Erlu. „Þau bönd sem verða til þarna
troða svo upp á afmæli Egilsstaðabæj-
ar 25. ágúst með okkur Dúkkulísunum
og nýrri kvennahljómsveit úr Hafnar-
firði sem heitir Vicky Pollard,“ segir
hún og heldur áfram. „Þá verða stór-
tónleikar í tjaldi og þar ætlum við
Dúkkulísur að kynna nýtt efni því við
erum líka að gefa út disk sem heit-
ir Dúkkulísur 25. Á honum eru 18 lög
bæði gömul og ný. Að kvöldi 25. spilum
við svo á stórdansleik ásamt öðrum
böndum.“
Erla segir Dúkkulísur hafa bólgn-
að út á síðustu árum. „Við bættum
við okkur slagverksleikara fyrir fjór-
um árum og svo gekk gamli hljóm-
borðsleikarinn okkar til liðs við sveit-
ina fyrr á þessu ári þannig að við erum
orðnar sjö,“ útskýrir hún. En nú búa
aðeins tvær hljómsveitarkvennanna
fyrir austan, Erla Ingadóttir og Gréta
Sigurjónsdóttir. Skyldi ekki vera snúið
fyrir sveitina að vera svona tvístr-
aða? „Jú, það er það eina sem er erfitt.
Allt annað er brjálæðislega skemmti-
legt,“ svarar Erla. „Við erum allar með
heimili, börn og atvinnu. En við notum
auðvitað netið og erum bæði á MSN
fundum og í tölvupóstssambandi. Svo
er það gamli góði síminn.“
Nú er Erla beðin að rifja upp söguna
í stórum dráttum. „Við slógum fyrst
í gegn á landsvísu í Músíktilraunum
1984 en stofnuðum hljómsveitina 1982.
Þá vorum við 14 til 16 ára. Viðtökurn-
ar komu okkur skemmtilega á óvart.
Reyndar vorum við búnar að vera að
gutla í tónlist öll grunnskólaárin og
koma fram á hinum ýmsu skemmtun-
um, saman eða með öðrum. Svo fékk
þessi kjarni inni í æfingarhúsnæði þar
sem nokkur strákabönd voru starf-
andi. Þar höfðum við aðgang að alvöru
græjum og fannst rosalega gaman.
Heiða með botninn breiða var með
okkar fyrstu frumsömdu lögum, við
syngjum það oft enn þegar við erum
í stuði. Við fórum strax að semja og
þegar það gerist verður tónlistin að
bakteríu sem togar mann áfram því
alltaf þarf að laga, fínpússa og breyta.
Okkur finnst mjög gaman að búa til
músík. Það er límið sem heldur okkur
saman og svo auðvitað vinskapurinn.“
Eldur uppi í Öræfajökli
AFMÆLI
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Hörður Haraldsson
húsasmíðameistari,
sem lést sunnudaginn 29. júlí, verður jarðsunginn í
Langholtskirkju, miðvikudaginn 8. júlí.
Ólof Kolbrún Harðardóttir Jón Stefánsson
Haraldur Harðarson
Björk Lind Harðardóttir
Harpa Harðardóttir Brynjar Freyr Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Kristinn Þ. Hallsson
óperusöngvari
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 8. ágúst nk. kl. 13.00. Blóm og kransar
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélagið.
Guðrún Kristinsdóttir Brynjar V. Dagbjartsson
Sigurður Kristinsson
Anna Bryndís Kristinsdóttir Vernharður Linnet
barnabörn og barnabarnabörn.
70 ára afmæli
Steinar Már
Clausen
er sjötugur í dag. Hann verður að
heiman.
Elsku pabbi okkar, sonur, bróðir,
mágur og barnabarn,
Davíð Guðmundsson
Dalbrún 3, Fellabæ,
sem lést mánudaginn 30. júlí, verður jarðsunginn frá
Lágafellskirkju í dag, þriðjudaginn 7. ágúst, kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Guðmundur Davíðsson
Viktoría Emma Davíðsdóttir
Guðmundur Davíðsson Sjöfn Eggertsdóttir
Guðbjörg Guðmundsdóttir Haukur Guðjónsson
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Guðbjörg Valdimarsdóttir