Fréttablaðið - 07.08.2007, Page 19
Hátt hlutfall HIV-smitaðra
á meðal vændiskvenna frá
Nepal.
Talið er að kynlífsþrælkun sé stór
ástæða fyrir hraðri útbreiðslu
HIV-veirunnar á Indlandi, þar sem
2,7 milljónir manna eru smitaðir,
og annars staðar í Suður-Asíu.
Næstum 40 prósent kvenna frá
Nepal, sem hafa verið neyddar í
kynlífsþrælkun á Indlandi, hafa
greinst með smit eftir að þær snúa
heim.
Niðurstöðurnar voru birtar í tíma-
riti bandarísku læknasamtakanna.
Þær byggja á rannsókn sem fram-
kvæmd var á 287 konum frá Nepal,
sem höfðu um árabil starfað í ind-
verskum vændishúsum.
Aðstandendur rannsóknarinnar
segja að hlutfall smitaðra hafi
verið 60 prósent algengara á meðal
stúlkna 14 ára og yngri. Vitað er
að margir viðskiptavinir krefjast
þess að stunda óvarið kynlíf með
stúlkunum. Það þykir sýna að hjá-
trúin um að samfarir við hreina
mey muni lækni menn af HIV sé
enn við lýði.
Í júlí sendi utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna frá sér skýrslu,
sem sýndi að mansal er algengast
á Indlandi. Vitað er að það fer að
miklu leyti fram í gegnum Kalk-
útta, þar sem stelpum frá Nepal,
Bangladess og Búrma er smyglað
til landsins. Indversk stjórnvöld
ætla að grípa til sinna ráða.
HIV breiðist út með
kynlífsþrælum
Kennsla í kynlífsbindindi virðist hvorki koma
í veg fyrir óvarið kynlíf né ótímabærar með-
göngur hjá unglingum.
Námskeið sem byggja á kennslu í kynlífsbindindi
virðast engin áhrif hafa, hvorki til góðs ná ills. Þetta
eru niðurstöður vísindamanna við Oxford-háskóla
sem skoðuðu útkomur úr þrettán rannsóknum þar
sem þátttakendur voru 15.000 og á aldursbilinu tíu til
21 árs.
Rannsakendur komust að því að fæst námskeiðin
höfðu áhrif á það hvort unglingar stunduðu óvarið
kynlíf, tölu rekkjunautanna þeirra, tíðni þungana og
útbreiðslu kynsjúkdóma. Í einu tilviki hafði nám-
skeið þau áhrif að þátttakendur drógu úr kynlífs-
iðkunum í mánuð. Í öðru tilviki hafði námskeið þver-
öfug áhrif, þar sem tíðni meðgangna og kynsjúk-
dómsmita reyndist hærri á meðal þátttakenda.
Miklar deilur hafa staðið um námskeið af þessu
tagi og með þessum ofangreindum niðurstöðum þykir
sumum sýnt að opinberu fé sé betur varið í aðra hluti.
Kynlífsnámskeið gagnslaus
Örugg leið til árangurs
PÚLSÞJÁLFUN