Fréttablaðið - 07.08.2007, Page 30
Tónlistarmennirnir Beck og Ryan
Adams eru á meðal þeirra sem
hafa verið fengnir til að hanna
umslag fyrir uppáhaldsbókina
sína. Bókaforlagið Penguin í
Bretlandi stendur
fyrir uppákomunni.
Bað það sjö
tónlistarmenn eða
hljómsveitir að
hanna umslög
fyrir bækur
sem hafa komið
út hjá Penguin.
Geta lesendur
í framhaldinu
hannað sín eigin
umslög á sömu
bækur. Beck valdi
að skreyta bókina
Le Grand Meaul-
nes eftir Alain-
Fournier og Ryan
Adams hannaði
umslag fyrir
Bram Stoker´s
Dracula.
Hönnuðu
bókaumslög
Rokkarinn Keith Richards
horfir nú um öxl enda er
ævisaga hans í vinnslu.
Myndir frá ferli kappans
sýna að hann hefur lifað
skrautlegu lífi.
Bókaútgefendur rífast þessa dag-
ana um útgáfu ævisögu Keith
Richards.
Eflaust mun hún innihalda mikið
af krassandi sögum úr lífi rokkar-
ans sem hefur lifað tímana tvenna.
Hann ber það vel með sér að vera
gamall og er sennilega með
krumpuðustu rokkurum heims
enda sennilega
ekki verið
mikið í heilsu-
fæðinu. Keith
var þó einu
sinni ungur
og sætur tón-
listarmaður
sem heillaði
hverja konu
upp úr skón-
um með töff-
araskap. Það
var áður en
líferni hans
tók sinn toll
af útlitinu.
Hann var líka
með flottan
stíl og sniðug-
ur í að raða
saman fötum.
Fréttablaðið
fann nokkrar
gamlar og
nýjar myndir
af rokkaran-
um sem er
með þeim
skrautlegri í
bransanum.
Ekki hefur borið mikið á ungstirninu
Lindsay Lohan eftir að hún var tekin
ölvuð undir stýri en hún er þó á for-
síðu nýjasta heftis bandaríska Elle.
Viðtalið var tekið áður en stúlkan
var handtekin en blaðamaðurinn
spjallaði við hana um ölvunarakstur.
„Þeir eru að bíða eftir því að ég hrasi
en ég myndi ekki gera það. Ég er mun
ábyrgari en svo,“ sagði Lindsay en
önnur hefur nú raunin verið.
Í myndatökunni fyrir blaðið olli
Lindsay stílistunum miklum vandræð-
um og reyndi í sífellu að stela hlutum
af settinu. „Louis Vuitton hafði sent
okkur vörur til að nota í myndatök-
unni en Lindsay var alltaf að setja þá í
töskuna sína,“ sagði vitni. „Aðstoðar-
maður stílistans tók hlutina aftur upp
úr töskunni, aðeins til þess að Lindsay
gæti sett þá aftur þangað. Að lokum
gekk hún út með rándýra skyrtu og
fleiri hluti,“ sagði heimildarmaðurinn
en Lindsay talaði einnig um mynda-
tökuna í viðtalinu. „Mig langaði í allt
þarna. Það var til dæmis Cartier-úr í
tökunni sem ég hefði gert mikið fyrir
að eignast.“
Lindsay fer á kostum í Elle