Fréttablaðið - 11.08.2007, Síða 1

Fréttablaðið - 11.08.2007, Síða 1
Níu þjóðþekktir tónlistarmenn hafa verið fengnir til að semja lög fyrir nýjan laugardagsþátt í Sjónvarpinu. Hver þeirra semur þrjú lög sem munu keppa að því að komast í úrslitaþátt þar sem framlag Íslands í Eurovision á næsta ári verður valið. Almenningur velur lögin með símakosningu. Meðal þeirra lagahöfunda sem taka þátt eru Magnús Þór Sig- mundsson, Dr. Gunni, Magnús Eiríksson, Andrea Gylfadóttir og Guðmundur Jónsson. Þórhallur Gunnarsson, dagskrár- stjóri Sjónvarpsins, segir að um stórskemmtilega lagakeppni verði að ræða sem fjölskyldur landsins geti sameinast um að horfa á. Markaðsvirði Kauphall- arfélaga lækkaði alls um 110 milljarða króna í gær og hefur aldrei fallið meira á einum degi. Alls hefur markaðsverð hluta- bréfa í Kauphöllinni lækkað um rúma 400 milljarða króna eftir að Úrvalsvísitalan fór hæst 18. júlí. Úrvalsvísitalan lækkaði í kjölfar áframhaldandi verðfalls á erlendum mörkuðum og fór rétt niður fyrir átta þúsund stig í fyrsta skipti í þrjá mánuði. Alls nam lækkun gærdagsins 3,47 pró- sentum sem er mesta dagslækk- un á árinu og sú mesta frá 4. apríl í fyrra. Vísitalan hefur lækkað um 11,3 prósent frá því hún náði hæstu hæðum. Þrátt fyrir niður- sveiflu síðustu daga er Úrvals- vísitalan tæpum fjórðungi hærri nú en í ársbyrjun. Fjármálafyrirtækin lækkuðu skarpt í gær. Gengi hlutabréfa í Existu féll um 6,5 prósent, Straum- ur lækkaði um 3,7 prósent og Kaup- þing og Landsbankinn um 3,5 pró- sent. Þá lækkaði Glitnir um 3,3 prósent og FL Group um 2,1 pró- sent. Fimmtán fyrirtæki lækkuðu um tvö prósent eða meira. Valdimar Halldórsson, sérfræð- ingur hjá Greiningu Glitnis, bendir á að stærstu fyrirtækin í Kauphöll- inni séu orðin það alþjóðleg að þau fylgi sveiflum á erlendum mörkuð- um. Hann efast um að íslensku fjármála- og fjárfestingafélögin beri sama tjón og alþjóðleg fjár- málafyrirtæki hafa orðið fyrir vegna verðfalls á annars flokks skuldabréfum (subprime) eftir að bera fór á auknum vanskilum í bandaríska húsnæðislánakerfinu. Hins vegar getur órói á mörkuðum haft áhrif á afkomu íslensku félag- anna með öðrum hætti, til dæmis í gegnum gengistap af hlutabréfum, aukinn fjármögnunarkostnað og færri verkefni á fyrirtækjasviði. Valdimar segir að enn sé mikil óvissa um þróunina á mörkuðum á næstu dögum. „Ef þetta er stormur í vatnsglasi þá gæti markaðurinn rétt sig við. En ef ekki þá gæti þetta tekið lengri tíma, jafnvel nokkrar vikur.“ Krónan hélt áfram að lækka í gær og stóð gengisvísitalan í 121,45 stigum sem var lækkun upp á 1,59 prósent. Hefur hún ekki verið veikari síðan í mars. Laugardagur *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007 Lestur meðal 18–49 ára á höfuðborgarsvæðinu 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 38% B la ð ið M o rg u n b la ð ið F ré tt a b la ð ið 40% 70% Verðfall um 110 milljarða Úrvalsvísitalan hefur lækkað um ellefu prósent á tæpum mánuði. Lækkun gærdagsins var sú mesta síðan í apríl í fyrra. Helsta orsökin er verðfall á erlendum mörkuðum. Getur haft áhrif á afkomu íslenskra félaga. Sigursteinn Sumarliðason hefur tryggt sér heimsmeistaratitil í gæðingaskeiði á hesti sínum Kolbeini frá Þóroddsstöðum á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi. Þar með er fyrsta gullið í höfn á mótinu, sem lýkur á sunnudag. Fleiri eru þó í sjónmáli enda hafa Íslendingar staðið sig vel í undankeppninni. Þórarinn Eymundsson á Krafti frá Bringu er stigahæstur fyrir úrslitakeppnina í fimmgangi og er töluvert á undan næsta manni. Þrír Íslendingar eru í A-úrslitum, þær Anna Valdimarsdóttir og Rúna Einarsdóttir Zingsheim auk Þórarins. Í tölti hafa Íslendingar nokkra yfirburði. Efstur er heimsmeistarinn frá 2005, Jóhann Skúlason á Hvin frá Holtsmúla, næstur er Þórarinn Eymundsson en Svíinn Stian Peterson á Jarli frá Miðkrika kemur fast á hæla þeirra. Ekki hefur gengið jafn vel í fjórgangi þar sem Jóhann Skúlason er í fjórða sæti inn í úrslitin. Íslendingar báru höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir í kynbótasýningunum. Íslensku stóðhestarnir voru efstir í öllum flokkum en hryssurnar í tveimur flokkum af þremur. Veðrið hefur verið rysjótt á mótinu. Töluvert hefur rignt en þó spáir betra veðri um helgina. Gestir eru mjög ánægðir með frammistöðu mótshaldara sem hafa undirbúið mótssvæðið eins og best verður á kosið. » ÍÞRÓTTABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS 5.TBL 2007 ÍVAR INGIMARSSONMEÐ 200 MILLUR Á ÁRI DEAN ASHTON HÉLT AÐ FERILLINN VÆRI BÚINN EIÐUR SMÁRI BLÓÐ SVITI OG TÁR ANDY GRAY FINNST RONALDO BESTUR Á ENGLANDI Treystir á hjartað, ekki hæfileikana Valgeir Sigurðsson er þekktur sem einn helsti hljóðupptökumaður landsins og maðurinn sem stýrir Bedroom Community útgáfunni og Gróðurhúsinu. Núna gefur hann frá sér sína fyrstu sólóplötu, Ekvilibríum. Útsala Síðasta helgin! Opið til 18 Lögin valin í laugardagsþætti
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.