Fréttablaðið - 11.08.2007, Side 4
„Þetta er ólýsanleg tilfinning, móttökur
sem við bjuggumst ekki við,“ sögðu Sverrir og
Einar Þorsteinssynir í gær við komuna í Mótor-
Max á Kletthálsi. Þaðan lögðu þeir upp í hnatt-
reisu sína 8. maí, eða fyrir 95 dögum.
Fjöldi manns, bæði fjölskylda og vinir, tók á
móti þeim bræðrum við komuna í MotorMax.
Þeir komu með flugi frá New York til Keflavík-
ur þaðan sem þeir óku, ásamt hópi vélhjóla-
manna, sem leið lá til Reykjavíkur.
Þegar þeir voru spurðir hvernig þeim hefði
dottið í hug að fara í þessa ferð sögðu þeir að
þessi hugmynd hefði lengi verið að gerjast í
huga þeirra. „Við ákváðum að láta drauminn
rætast og sjáum alls ekki eftir því. Við skorum
á alla sem hafa hugleitt einhver svona ævintýri
að hætta að hugsa um þau og framkvæma þau,“
segja þeir.
„Í grófum dráttum má segja að ferðin hafi
gengið eins og plön gerðu ráð fyrir. Við vissum
að það kæmu upp einhver vandamál sem þyrfti
að leysa. Við lentum þannig séð í fullt af vanda-
málum en þau voru bara leyst á staðnum.“
Aðspurðir segja þeir að það hafi stundum
tekið tíma að komast yfir landamæri með hjól-
in og nefna sérstaklega þegar þeir fóru á milli
Rússlands og Mongólíu. „Við biðum í níu og
hálfa klukkustund á landamærunum og vitum
enn ekki eftir hverju.“
Þeir segja að það sé erfitt að nefna eitthvað
eitt sem stendur upp úr í ferðinni. „Ef eitthvað
stendur upp úr er það sennilega Mongólía.
„Þar reyndi mest á okkur. Mesta ævintýr-
amennskan og erfiðustu aðstæðurnar en um
leið skemmtilegast.“
Talið berst að sambúð þeirra bræðra í næst-
um hundrað daga. „Sambúðin gekk vel. Við
erum bræður og búnir að þekkja hvor annan
lengi og þekkjum því takmörk okkar. Auðvitað
áttum við okkar góðu og slæmu daga en þegar
á reyndi, sérstaklega á erfiðu dögunum, stóð-
um við saman sem einn maður,“ sögðu þeir og
héldu áfram að heilsa upp á fjölskyldu og vini
sem tóku á móti þeim.
Biðu í níu klukkustundir
við landamæri Mongólíu
Sverrir og Einar Þorsteinssynir komu til Íslands í gær eftir tæplega 100 daga hnattreisu á mótorhjólum. Þeir
keyrðu yfir 32 þúsund kílómetra og fóru um þrettán lönd. „Stóðum saman sem einn maður,“ sögðu þeir.
Gleðigangan á hinsegin
dögum í Reykjavík leggur af
stað frá Hlemmi í dag klukkan
14. Þátttakendur voru í óða önn
að undirbúa sig fyrir sýninguna
á verkstæði hinsegin daga í gær.
„Þetta er allt mjög vel skipu-
lagt,“ segir Fríða Agnarsdóttir
verkstæðisstjóri. „Fólk sendi
bara inn umsókn um að fá að
sýna atriði. Svo eru atriðin
skipulögð hvert fyrir sig. Þau
eru af öllum toga, pólitísk,
ópólitísk, skemmtiatriði, tákn-
ræn og fleira.“
Gangan var fyrst farin árið
2000 og mættu þá um fimmtán
þúsund manns. Hún hefur farið
ört stækkandi og búist er við um
50 þúsund manns í ár.
Um þrjátíu atriði verða í
göngunni, að sögn Fríðu. Helm-
ingur þeirra verður á vögnum eða
bílum, en hinn helmingurinn
verður á tveimur jafnfljótum.
Hóparnir eru misstórir, í þeim
fámennasta eru fjórir, en í þeim
stærsta um þrjátíu manns.
„Það eru vissir hópar sem eru
alltaf, forvarnahópurinn, ástar-
hópurinn, trúarhópurinn og ung-
liðarnir,“ segir Fríða. Hún segist
ekkert geta gefið upp um hvernig
atriðin muni líta út. „Það verður
bara að koma í ljós, fólk verður að
mæta og sjá.“
Lögbannskröfu á
hendur Pétri Péturssyni, umsjón-
armanni vefsíðunnar skydigital.is,
var vísað frá hjá sýslumanninum í
Keflavík í gær. Samtök mynd-
rétthafa á Íslandi, Smáís, höfðu
gert kröfuna vegna sölu á Sky-
áskriftarkortum í gegnum vefinn.
Friðjón Örn Friðjónsson,
lögmaður Péturs, segir fulltrúa
sýslumanns hafa talið að ekki væri
ljóst að umbjóðandi hans hefði
gerst brotlegur, en forsvarsmenn
Smáíss vilja meina að sala á Sky-
áskriftarkortum brjóti í bága við
höfundarréttarlög. Pétur sagðist
ekki vilja tjá sig um málið þegar
leitað var eftir því.
Lögbannskröfu
Smáíss vísað frá
DV og 365 miðlar hafa
gert samning um efnisumfjöllun
um enska boltann í DV og
dreifingu á blaðinu til áskrifenda
Sýnar 2. Allir áskrifendur munu
fá mánudagsblað DV sent heim til
sín sér að kostnaðarlausu. Fyrsta
blaðið mun berast næstkomandi
mánudag.
Í blaðinu verður 12 síðna
aukablað þar sem fjallað verður
um ensku knattspyrnuna, farið
yfir úrslit helgarinnar og stöðuna
í deildinni.
Áskrifendur
Sýnar 2 fá DV
Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í
fyrrakvöld sextán ára stúlku á
vélhjóli þegar hún ók gegn rauðu
ljósi í Lækjargötu í Reykjavík.
Hjólið var svokallað létt vélhjól,
sem hægt er að fá réttindi á
fimmtán ára, og því hefði stúlkan
getað verið með leyfi til að aka
hjólinu. Svo var hins vegar ekki
og kom í ljós að hjólið var í eigu
móður stúlkunnar.
Þær upplýsingar fengust hjá
lögreglu að líklega hafi stúlkan
ekki tekið hjólið ófrjálsri hendi,
heldur hafi hún fengið það að láni
frá móður sinni, þótt hún væri
réttindalaus.
Fékk hjólið lán-
að hjá mömmu