Fréttablaðið - 11.08.2007, Page 18
Það er
Auglýsingasími
– Mest lesið
Ó
venjugáfað-
ur, strang-
heiðarlegur
og dulúðug-
ur öðlingur
með báða fætur á
jörðinni. Ekki skortir
lýsingarnar þegar
leitað er svara við
spurningunni um hvaða
mann Þröstur Ólafsson
hefur að geyma. En
Þröstur býr líka yfir
leyndum hæfileikum.
Hann erfði til dæmis
afbragðs söngrödd frá
föður sínum heitnum.
Þeir feðgar munu
einnig eiga það
sameiginlegt að hafa á
sínum ungdómsárum
brætt ófá stúlknahjört-
un. Hvort það var
söngröddin sem olli því
er óvíst. Ef til vill var
það dansinn sem
Þröstur hefur gaman af
að stíga við sérstök
tækifæri.
Þröstur er þúsund-
þjalasmiður. Sveita-
drengurinn að norðan
hefur aldrei horfið úr
hjarta hans. Unir hann
sér best við að dytta að
eða smíða í sumarhöll
fjölskyldunnar. Þar
eyða þau Þröstur og
Þórunn, eiginkona
hans, flestum sínum
frístundum. Landinu
hafa þau breytt úr
eyðimörk í skóglendi
og gera það af svo
mikilli ástríðu að þau
„nánast kynna sig fyrir
hverri nýrri hríslu sem
vex á landinu“ eins og
góð vinkona þeirra
hjóna komst að orði. Á
sama hátt hefur
Sinfóníuhljómsveit
Íslands vaxið og dafnað
vel undir hans stjórn.
Ræktunargleði þeirra
hjóna hefur líka skilað
sér í sex börnum.
Sem ungir drengir
voru þeir bræður,
Þröstur og Guðmundur
Páll rithöfundur, miklir
grallarar og sprelligos-
ar. Þeir áttu hins vegar
myndarlegan hóp eldri
systra sem gættu þess
að þeir færu ekki yfir
strikið. Var krakka-
skarinn þekktur fyrir
að leiðast í halarófu
hvert sem farið var og
vakti það athygli í
sveitinni. Þröstur skar
sig úr barnahópnum að
einu leyti. Á meðan
önnur börn léku sér við
jafnaldra sína hafði
Þröstur sérstakan
áhuga á furðufuglum
bæjarins. Gamlir og
skrýtnir karlar í
bænum, sem önnur börn forðuðust, urðu hans
mestu mátar. Þröstur lifði sig svo inn í tilveru
þeirra að hann átti til að smitast af útlitseinkenn-
um þeirra og gekk um skakkur og bjagaður eftir
samvistir við þá.
Á námsárunum í
Vestur-Þýskalandi
steypti Þröstur sér á
kaf í heimspólitíkina
og hugmyndafræði
Marxismans. Þar
eignaðist hann
jafnframt sitt fyrsta
barn og féll kylliflatur
fyrir klassískri tónlist.
Allt setti þetta svip á
manninn. Aftur sneri
veraldarvanur maður
og mun róttækari í
pólitískum skoðunum
en áður. Mun hann þá
hafa hlotið uppnefnið
„Rudi Dutschke
Íslands“. Rudi þessi
var þýskur byltingar-
sinni og einn af
leiðtogum náms-
mannahreyfingarinn-
ar í Evrópu á sjöunda
áratugnum. Þröstur er
sagður hafa verið
fyrsti íslenski
maðurinn til að koma
fram bindislaus í
umræðuþætti í
sjónvarpinu. Þótti það
bera vott um hættu-
lega róttækni. Þröstur
hefur þó, að sögn
samstarfsmanna,
aldrei látið sér nægja
upphrópanir og
uppsteyt heldur
ævinlega látið lausnir
fylgja.
Leti er ekki til í
bókum Þrastar. Hann
er vinnuþjarkur og,
eins og einn af
samstarfsmönnum
hans af vettvangi
stjórnmálamanna
segir, eru „pólitíkusar
vanir að misnota
þannig menn“. Eftir
heimkomuna var
hann ekki lengi að
sogast inn í íslenska
pólitík. Hann starfaði
meðal annars við hlið
ráðherranna Magnús-
ar Kjartanssonar,
Ragnars Arnalds og
Jóns Baldvins
Hannibalssonar. Þá
var hann um hríð
framkvæmdastjóri
þingflokks Alþýðu-
flokksins. Hann varð
þekktur fyrir að hika
aldrei við að taka að
sér verk sem myndu
ekki endilega leiða til
vinsællar niðurstðu.
Vinum og vanda-
mönnum Þrastar ber
saman um að þar fari
sérstaklega tryggur
maður sem gott sé að
hafa í sínu liði. Orð
Jóns Baldvins
Hannibalssonar segja
sína sögu. „Ég segi
það sama og breski
herforinginn Rommel
sagði um Maó formann. „Ef ég ætti að velja aðeins
einn mann til að fara með mér inn í frumskóginn,
þar sem lífi mínu væri stefnt í hættu, myndi ég taka
hann með mér.“ Það hefði hins vegar aldrei hvarflað
að mér að fara inn í frumskóginn með Maó.“
Róttækur öðlingur