Fréttablaðið - 11.08.2007, Síða 46
S trákurinn hefur sýnt það að hann getur orðið einn af bestu framherjum heims.
Það er eitthvað stórfenglegt við
hann og ég trúi því varla hversu
góður hann var á fyrstu tveimur
æfingunum með okkur. Hann virk-
aði afar snarpur. Hafandi sagt það
þá kemur mér það ekkert á óvart.
Við kynntumst því frá fyrstu hendi
í maí hversu góður hann er,“ segir
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, um nýjasta
leikmann sinn, argentínska fram-
herjann Carlos Tevez.
Og Tevez er enginn venjulegur
leikmaður. Hægt er að halda því
fram án þess að skammast sín að
þessi magnaði Argentínumaður
hafi nær einsamall séð til þess að
West Ham hélt sæti sínu í ensku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Hann skoraði sjö mörk í síðustu tíu
leikjum liðsins og leiddi ævintýra-
legan endasprett þar sem hápunkt-
urinn var sigurmark hans gegn
Manchester United á Old Trafford í
lokaumferðinni þar sem úrvals-
deildarsætið var endanlega tryggt.
Æska Carlosar Tevez var eng-
inn dans á rósum. Hann ólst upp í
mesta glæpahverfi Buenos Aires,
Fuerte Apache, og þurfti að hafa
mikið fyrir hlutunum. Hann er
með gríðarstórt og áberandi
brunasár sem nær frá hægra eyra
og niður á bringu en það fékk hann
þegar hann var tíu mánaða. Þá
hellti hann katli fullum af sjóðandi
vatni yfir sig og fékk þriðja stigs
brunasár. Hann hefur síðan neitað
að láta lýtalækna laga sárið þar
sem hann segir að það sé hluti af
fortíð hans og hluti af honum sjálf-
um. „Þetta minnir mig á hvaðan ég
kem og hver ég er,“ segir Tevez.
Og það er einmitt þetta sem
gerir Tevez svona sérstakan. Þrátt
fyrir óumdeilanlega knattspyrnu-
hæfileika þá er hann ekki síður
þekktur fyrir baráttu og dugnað.
Þeir eiginleikar komu honum að
góðum notum hjá West Ham og
munu eflaust verða dýrmætir
fyrir Manchester United. Hann er
engin prímadonna heldur venju-
legur 23 ára gamall strákur sem
vill spila fótbolta. Hæfileikar hans
og karakter hafa gert það að verk-
um að hann hefur þrívegis verið
valinn Knattspyrnumaður ársins í
Suður-Ameríku.
Hjá Manchester United hittir
hann fyrir herramenn á borð við
Wayne Rooney og Cristiano Ron-
aldo, tvo af bestu fótboltamönnum
heims og sjálfsagt þá bestu miðað
við aldur. Rooney er 21 árs, Ron-
aldo er 22 ára og Tevez er 23 ára.
Tilhugsunin um að þessir þrír
snillingar muni spila saman næstu
árin hlýtur að skelfa andstæðinga
Manchester United.
10 sport
Mál argentínska snillingsins Carlosar Tevez virðist loksins vera til lykta
leitt. Þessi frábæri framherji er farinn frá West Ham og genginn í raðir
Manchester United. Þar mun hann mynda ógnvekjandi þrenningu með
Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
FERGUSON FÆR
LOKS SINN MANN
31.08.06 West Ham semur við arg-
entínsku landsliðsmennina Carlos Tevez
og Javier Mascherano.
02.03.07 West Ham er kært af Ensku
úrvalsdeildinni fyrir brot á reglum í
tengslum við samninga félagsins við
Tevez og Mascherano.
04.04.07 Enska úrvalsdeildin skipar
þriggja manna nefnd til að rannsaka
samninga West Ham við Tevez og
Mascherano.
27.04.07 West Ham er sektað um 5,5
milljónir punda en sleppa við að stig
séu dregin af félaginu eftir að hafa játað
sekt sína. Úrskurðurinn hljómar einnig
upp á að Enska úrvalsdeildin geti rift
skráningu Carlosar Tevez en hann fær
seinna leyfi til að spila áfram með West
Ham.
15.05.07 Alþjóða knattspyrnu-
sambandið gefur út þá yfirlýsingu að
það hyggist skoða úrskurð Ensku úrvals-
deildarinnar.
16.05.07 –Sheffield United, sem féll
úr úrvalsdeildinni í síðustu umferðinni,
leggur fram kæru á hendur Ensku
úrvalsdeildinni til sérstaks gerðardóms
til að reyna að koma því í gegn að stig
verði dregin af West Ham.
22.05.07 Enska úrvalsdeildin ákveður
að setja upp gerðardóm til að kveða
upp dóm vegna kvartana Sheffield
United yfir máli Carlosar Tevez. Úrskurð-
ur hans er endanlegur.
02.06.07 Stjórnarformenn í ensku
úrvalsdeildinni samþykkja nýja reglu
sem neyðir félög til að leggja fram hvert
einasta skjal í tengslum við félagsskipti
leikmanna.
13.06.07 Kevin McCabe, stjórnarfor-
maður Sheffield United, hótar að snúa
sér til framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins til að fá skaðabætur ef óháði
gerðardómurinn færir þeim ekki aftur
sæti í úrvalsdeildinni.
03.07.07 Sheffield United tapar mál-
inu gegn Ensku úrvalsdeildinni eftir að
gerðardómur vísar máli þeirra frá.
04.07.07 Sheffield United íhugar að
áfrýja málinu til hæstaréttar vegna þess
að gerðardómurinn gerði þau mistök
að vísa ekki málinu aftur til hinnar upp-
runalegu óháðu þriggja manna nefndar
sem sektaði West Ham í maí.
06.07.07 Kia Joorabchian, umboðs-
maður Carlosar Tevez, staðfestir að
Tevez hafi náð samkomulagi við
Manchester United. Enska úrvalsdeildin
neitar hins vegar að samþykkja félags-
skiptin þar sem þess er krafist að allur
gróði félagsskiptanna fari til West Ham
en ekki Joorabchian.
11.07.07 West Ham hafnar formlegri
ósk Carlosar Tevez um að rifta samningi
hans við félagið.
13.07.07 Í kjölfarið á lokuðu þinghaldi
í Hæstarétti er ósk Sheffield United um
að fá leyfi til að áfrýja ákvörðun gerðar-
dómsins hafnað.
03. 08.07 West Ham tilkynnir að
félagið hafi komist að samkomulagi við
Kia Joorabchian um að fá tvær milljónir
punda fyrir að leyfa Tevez að yfirgefa
félagið. Hann gengur í raðir Manchester
United á tveggja ára lánssamningi.
10.08.07 Tevez fær leikheimild með
Manchester United og er því klár fyrir
leikinn gegn Reading á sunnudag.
Alex Ferguson segir Carlos Tevez geta orðið einn af
bestu framherjum heims NORDIC PHOTOS/GETTY
TRYGGÐU ÞÉR
ÁSKRIFT AÐ SÝN 2
Gakktu frá áskrift á Netinu og fáðu
30% afslátt af fyrsta mánuðinum.
ÓDÝRARA Á NETINU
512 5100 | SYN.IS | VERSLANIR VODAFONE