Fréttablaðið - 11.08.2007, Qupperneq 56
» UM DIDIER DROGBA?
1. Hvað skoraði hann mörg mörk
í ensku úrvalsdeildinni á síðasta
tímabili?
2. Í hvða stjörnumerki er Drogba?
3. Hvaða liði spilaði hann fyrst
með?
4. Hversu oft hefur hann verið
valinn knattspyrnumaður ársins í
Afríku?
5. Hvað borgaði
Chelsea mikið
fyrir Drogba
þegar hann
var keyptur frá
Marseille?
6.Hvenær lék hann sinn fyrsta
landsleik fyrir Fílabeinsströndina?
7. Hvað heitir hann fullu nafni?
8. Fyrir hvaða súkkulaði hefur hann
leikið í auglýsingu?
9. Hvað er Drogba stór?
10. Hvað heitir bróðir hans
sem reyndi að komast að sem
atvinnumaður hjá Leyton Orient án
árangurs?
TUGURINN
F immta sæti ensku úrvals-deildarinnar hefur verið nið-urstaðan fyrir Tottenham
undanfarin tvö ár. Nú vilja forráða-
menn félagsins að Martin Jol, knatt-
spyrnustjóri liðsins, geri atlögu að
því að komast upp í hóp toppliðanna
Manchester United, Chelsea, Liver-
pool og Arsenal.
Til þess að ná því markmiði hefur
félagið til að mynda komið sér upp
framherjakvartett sem flest öll lið
Evrópu horfa öfundaraugum til.
Darren Bent, framherji Charlton,
var keyptur fyrir metupphæð í
sumar en fyrir voru á fleti Búlgar-
inn Dimitar Berbatov, Jermain
Defoe og Robbie Keane. Þeir skor-
uðu allir yfir tíu mörk í ensku úrvals-
deildinni á síðasta tímabili og Jol
veit sem er að honum er vandi á
höndum þegar kemur að því að velja
byrjunarliðið fyrir fyrsta leik.
„Allir framherjarnir verða að
leggja hart að sér til að komast í
liðið. Við eyddum 16,5 milljónum
punda í Darren Bent en Jermain
Defoe er jafnverðmætur og Dimitar
Berbatov myndi sjálfsagt vera dýr-
ari,“ segir Jol sem stendur frammi
fyrir því gamalkunna vandamáli að
halda öllum fjórum framherjunum
ánægðum.
Jol hefur þó hrósað Íranum Robb-
ie Keane sérstaklega en hann fór á
kostum seinni hluta tímabilsins í
fyrra. „Robbie hefur skipt mestu
máli undanfarin tímabil. Hann hefur
alltaf verið til staðar þegar ég hef
þurft á honum að halda og hefur
mikil áhrif á aðra leikmenn liðsins,“
segir Jol. Hann viðurkennir að
pressan sé töluverð. „Fólk ætlast til
að við náum árangri og auðvitað er
meiri pressa. En við erum með
sterkara lið en í fyrra og ef við byrj-
um vel þá getum við gert eitthvað
sérstakt,“ segir Jol.
Ekki hefur gætt mikillar sundr-
ungar meðal framherjanna fjögurra
þrátt fyrir mikla samkeppni og til að
mynda segir Robbie Keane að sam-
keppni sé alltaf góð því hún geri það
að verkum að menn leggja harðar að
sér. „Það þarf að hafa fyrir því að
komast í liðið og sannfæra þjálfar-
ann um að þú sért rétti maðurinn.
Það er hverjum manni hollt,“ segir
Keane.
Darren Bent veit sem er að sam-
keppnin er hörð en hann hræðist
hana ekki. „Miðað við þá fram-
herja sem eru til staðar þá veit ég
vel að það verður erfitt að kom-
ast í liðið. Ég held hins vegar að
ég sé öðruvísi en hinir fram-
herjarnir að því leyti að þeir
vilja koma aftur og sækja bolt-
ann á meðan ég einblíni á svæð-
ið fyrir aftan varnarlínuna.
Vonandi gengur mér vel að
spila með þeim öllum,“ segir
Bent.
Í nýlegri könnun sem gerð
var meðal stuðningsmanna
Tottenham telja flestir að
Dimitar Berbatov og Robbie
Keane munu byrja saman
frammi í fyrsta leiknum gegn
Sunderland á Leikvangi ljós-
anna.
1. THIERRY HENRY,
Arsenal Skoraði 27 mörk
fyrir Arsenal tímabilið 2005
til 2006, 25 mörk tímabilið
2004 til 2005 og 30 mörk
tímabilið 2003 til 2004.
2. RUUD VAN NISTEL-
ROOY, Manchester
United Skoraði 25 mörk
fyrir Manchester United
tímabilið 2002 til 2003.
3. ALAN SHEARER, New-
castle og Blackburn Skor-
aði 25 mörk fyrir Newcastle
tímabilið 1996 til 1997, 31
mark fyrir Blackburn tíma-
bilið 1995 til 1996, 34 mörk
fyrir Blackburn tímabilið
1994 til 1995, 31 mark fyrir
Blackburn tímabilið 1993
til 1994.
4. ROBBIE FOWLER,
Liverpool Skoraði 28 mörk
fyrir Liverpool tímabilið
1995 til 1996, 25 mörk tíma-
bilið 1994 til 1995.
5. LES FERDINAND,
Newcastle Skoraði 25 mörk
fyrir Newcastle tímabilið
1995 til 1996.
6. ANDY COLE, Newcastle
Skoraði 34 mörk fyrir New-
castle tímabilið 1993 til 1994.
7. CHRIS SUTTON,
Norwich Skoraði 25 mörk
fyrir Norwich tímabilið 1993
til 1994.
8. KEVIN PHILLIPS,
Sunderland Skoraði 30
mörk fyrir Sunderland tíma-
bilið 1999 til 2000.
9. MATTHEW LE TISSI-
ER, Southampton Skoraði
25 mörk fyrir Southampton
tímabilið 1993 til 1994.
10. PETER BEARDSLEY,
Newcastle Skoraði 25 mörk
fyrir Newcastle tímabilið
1993 til 1994.
20 sport
TÍU SEM HAFA SKORAÐ YFIR 25 MÖRK Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI
HINIR FJÓRIR FRÆKNU
Tottenham hefur sennilega á að skipa bestu framherjasveit ensku úrvalsdeildarinnar. Fjórir fram-
herjar í hæsta gæðaflokki og ljóst að Martin Jol, stjóri liðsins, er ekki öfundsverður af því að velja
tvo þeirra í byrjunarliðið hverju sinni. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
DARREN BENT
Aldur: 23 ára
Þjóðerni: enskur
Númer: 23
Kaupverð: 16,5 milljónir punda
Fyrri félög: Ipswich og Charlton
Leikir/mörk í fyrra: 32/13
Landsleikir/mörk: 2/0
DIMITAR BERBATOV
Aldur: 26 ára
Þjóðerni: búlgarskur
Númer: 9
Kaupverð: 10,9 milljónir punda
Fyrri félög: CSKA Sofia (Búlgaríu)
og Bayer Leverkusen (Þýskalandi)
Leikir/mörk í fyrra: 33/12
Landsleikir/mörk: 47/28
JERMAIN DEFOE
Aldur: 24 ára
Þjóðerni: enskur
Númer: 18
Kaupverð: 7 milljónir punda
Fyrri félög: Charlton, West Ham
og Bournemouth (lán)
Leikir/mörk í fyrra: 34/10
Landsleikir/mörk: 24/3
ROBBIE KEANE
Aldur: 27 ára
Þjóðerni: írskur
Númer: 10
Kaupverð: 7 milljónir punda
Fyrri félög: Wolves, Coventry,
Internazionale (Ítalíu) og Leeds
Leikir/mörk í fyrra: 27/11
Landsleikir/mörk: 72/29
Martin Jol, stjóri
Tottenham,
á við lúxus-
vandamál að
stríða því hann
getur valið á
milli fjögurra
frábærra fram-
herja.
HVAÐVEISTU
Svör: 1. Hann skoraði 20 mörk. 2. Hann
er fiskur (fæddur 11. mars 1978). 3. Hann
spilaði fyrst með franska 2. deildarliðinu
Le Mans. 4. Hann hefur einu sinni verið
valinn, 2006 til 2007. 5. Chelsea borgaði
24 milljónir punda fyrir hann. 6. Hann lék
sinn fyrsta landsleik 9. september 2002
gegn Suður Afríku. 7. Hann heitir Didier
Yves Drogba Tébily. 8. Hann hefur leikið í
auglýsingu fyrir Kinder Bueno. 9. Hann er
188 sm á hæð. 10. Hann heitir Joel Drogba.