Fréttablaðið - 11.08.2007, Page 58
2 sport
» MANCHESTER UNITED „Ég man ekki eftir því í den að hafa
haft neinar sérstakar taugar til fótboltaliða, og gerði jafnvel grín að
fullorðnum karlmönnum, sem voru ekki mönnum sinnandi ef þeir
annaðhvort misstu af leik með uppáhaldsliðinu, eða það sem verra
var; horfðu á tapleik og eyddu næstu dögum í þunglyndi. Hin síðari
ár hef ég öðlast aðeins meiri skilning á þessum trúarbrögðum og er
næstum farin að sýna þessum sveiflum í sálarlífi fótboltaáhuga-
manna umburðarlyndi. Logi á heiðurinn af þessum sinnaskiptum
mínum, því ég held að það sé ekki hægt að búa með slíkum áhuga-
manni um enska boltann án þess
að smitast. Manchester United er lið
heimilisins, ég á það jafnvel til að setj-
ast niður með manninum mínum og
gleyma mér yfir leikjum, sérstaklega
þegar mikið er í húfi. En ég græt mig
svo sem ekki í svefn þótt United tapi.”
Svanhildur Hólm Valsdóttir,
fjölmiðlakona
ÍBÚNINGS-
KLEFANUM
AF HVERJU HELD ÉG MEÐ
Forsíðumyndina tók Adam Scott
af Hermanni Hreiðarssyni, knatt-
spyrnumanni hjá Portsmouth.
Útgefandi: 365, Ritstjóri: Óskar Hrafn
Þorvaldsson oskar@frettabladid.is,
Útlitshönnun: Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
sport
» ÍÞRÓTTABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS 5.TBL 2007
TREYSTI Á HJARTAÐ
ÍVAR INGIMARSSON
MEÐ 200 MILLUR Á ÁRI
DEAN ASHTON
HÉLT AÐ FERILLINN
VÆRI BÚINN
EIÐUR SMÁRI
BLÓÐ SVITI OG TÁR
ANDY GRAY
FINNST RONALDO
BESTUR Á ENGLANDI
– EKKI HÆFILEIKANA
HERMANN HREIÐARSSON TALAR
UM ÁRIN TÍU Í ENSKA BOLTANUM
MEÐ BRYNJARI
1. Hver er verst klæddur?
„Það er
Jen Little.
Hann er týp-
ískur breskur í
sínum gallabux-
um, pólóbol og
strigaskóm. Svo er hann líka í verstu
nærbuxunum.”
2. Hver hlustar á verstu tónlistina?
„Það er Marcus Hahnemann. Hann
býður upp á þungarokk af þyngri
gerðinni, Slitknot og eitthvað álíka.
Það sleppur þegar
hann er með heyrn-
artólin á eyrunum.”
3. Hver á flottasta
bílinn?
„Það er Ibrahima
Sonko. Hann á
hvítan Range Rover
með öllu tilheyrandi.”
4. Hvaða vonda siði er herbergisfé-
laginn þinn með?
„Hann Ívar er ekki með neina vonda
siði. Hann á það reyndar til að fara
að sofa svolítið snemma, á milli 9
og 10, þannig að það þarf að taka
tillit til hans þá. Ég lækka þá bara í
sjónvarpinu.”
5. Hver er stæltastur?
„Það er Ibrahima Sonko. Hann er alveg
hrikalegur. Ég held að hann sé fæddur
svona. Hann er hátt í tveir metrar og
bara vöðvar.”
6. Hver er alltaf á síðustu stundu?
„Það er Sonko líka. Hann sér um
sektarsjóðinn og borgar mest í hann
sjálfur.”
7. Hver eyðir mestum tíma fyrir
framan spegilinn?
„John Halls er svolítill súkkulaðitöffari
og eyðir miklum tíma fyrir framan
spegilinn.”
ERFIÐUSTU
ANDSTÆÐINGARNIR
LEDLEY KING
Félag: Tottenham
Aldur: 26 ára
„Ég hef spilað þrisvar
á móti honum, síðast
með Fulham á síðasta
tímabili. Hann er
hrikalega erfiður.
King hefur allt, hann
er svakalega fljótur,
sterkur og það er
mjög erfitt að komast
framhjá honum. Síðan
er hann líka gífurlega
öflugur í loftinu, sá
besti sem ég hef lent
í,” segir Heiðar um
Ledley King.
WILLIAM GALLAS
Félag: Arsenal
Aldur: 29 ára
„Hann er ekki
mikið fyrir að vaða í
tæklingar heldur er
hann klókur og les
leikinn vel. Gallas
er líka mjög sterkur
og lúmskt fljótur. Ég
spilaði á móti honum
þegar hann var hjá
Chelsea og það var
svakalega erfitt,” segir
Heiðar um William
Gallas.
JOHN TERRY
Félag: Chelsea
Aldur: 26 ára
„Eins og flestir hafa
séð þá veður hann
í allt. Fólk gleymir
því stundum hversu
góður hann er í raun
og veru með boltann
því hugrekki hans og
barátta er oft meira
áberandi. Hann er
líka mikill leiðtogi og
sífellt talandi ofan í
hálsmálið á manni,”
segir Heiðar um John
Terry.
SOL CAMPBELL
Félag: Portsmouth
Aldur: 32 ára
„Campbell er einn
sá allra harðasti sem
hægt er að lenda
í. Hann er algjör
járnkarl og hikar ekki
við að tækla menn.
Það er ekkert sérstakt
að fá hann á sig á
fullri ferð enda mikið
stykki,” segir Heiðar
um Sol Campbell.
RIO FERDINAND
Félag: Man United
Aldur: 28 ára
„Það sem ég tók eftir
þegar ég spilaði á
móti Ferdinand er að
hann fer ekki í einvígi
heldur les hlaupin.
Hann virðist hafa
þá náðargáfu að sjá
aðeins á undan hvert
maður ætlar að fara.
Hann er mjög rólegur
og yfirvegaður á
boltanum, afar erf-
iður andstæðingur,”
segir Heiðar um Rio
Ferdinand.
Framherjinn Heiðar
Helguson, sem gekk
á dögunum til liðs við
Bolton, hefur spilað
tvö og hálft tíma-
bil í ensku úrvals-
deildinni á átta ára
ferli sínum í enska
boltanum. Sport
fékk Heiðar til að
segja frá fimm erf-
iðustu andstæðing-
unum. EFTIR ÓSKAR
HRAFN ÞORVALDSSON
É g er nú aldrei smeykur þegar ég mæti þess-um mönnum. Þetta eru allt svo miklir klump-ar að ég pæli ekkert í stærðinni á þeim,“
segir framherjinn harðskeytti Heiðar Helguson
þegar Sport spurði hann um fimm erfiðustu and-
stæðingana í ensku úrvalsdeildinni.
Heiðar, sem hefur leikið tvö og hálft tímabil í
ensku úrvalsdeildinni með Watford og Fulham,
hefur mætt mörgum af bestu varnarmönnum heims
og átti í vandræðum með að finna þá fimm erfið-
ustu. „Mega þeir ekki frekar vera tíu?“ spurði hann
og hló.
Heiðar, sem er nýgenginn í raðir Bolton, gat þó
fundið fimm erfiðustu andstæðingana eftir nokkra
umhugsun. Það kemur varla á óvart að harðjaxlar
eins og John Terry og Sol Campbell séu meðal þeirra
erfiðustu sem Heiðar hefur mætt auk Rio Ferdin-
and, William Gallas og Ledley King, varnarmanns
Tottenham. Fjórir af þeim eru enskir og einn fransk-
ur. „Ég vildi að ég gæti bætt Jamie Carragher við.
Ég er mikill aðdáandi hans,“ segir Heiðar.