Fréttablaðið - 11.08.2007, Page 70
Væri Evrópa kosin heimsálfa
samkynhneigðra yrði Amsterdam
sjálfkrafa höfuðborgin. Má þar
finna mikið úrval af hótelum,
börum og næturklúbbum sem
auglýsa þjónustu sína sem sér-
staklega ætlaða hýrum og hægt er
að rölta um mörg skemmtileg
hverfi sem hommar og lesbíur
eiga svo að segja út af fyrir sig.
Þeir sem eru hrifnir af leðri ættu
að kíkja á Warmoesstraat, en þar
má finna úrval leðurbara og ekki
síður afar flott lúxushótel. Þessi
hluti Amsterdam þykir afar hent-
ugur í hvers kyns tilraunastarf-
semi en hentar síður þeim sem
vilja kyrrð og ró. Þeir ættu frekar
að líta við í Amstel eða Reguli-
ersdwarsstraat en þau hverfi
þykja afar hipp og kúl með mörg-
um notalegum og litlum kaffihús-
um og börum. Það er svo bannað
að snúa aftur heim fyrr en búið er
að staldra við í einu elsta homma-
og lesbíuhverfi Amsterdam;
Kerkstraat, en þar er mannlífið
einkar blómlegt enda hverfið
nálægt spilavítinu og leikhúsinu á
Leidseplein.
Af þessum hverfum Amsterdam
er Kerkstraat að vísu mest „streit“
en engu að síður má þar finna flest
hótelin sem sérstaklega eru ætluð
samkynhneigðum. Þeir sem eru
svo staddir í Amsterdam í kring-
um 30. apríl ættu ekki að láta Kon-
inginnedag fram hjá sér fara, en
hann er haldinn í minningu þeirra
fjölmörgu samkynhneigðu ein-
staklinga sem létu lífið í helför
nasista.
Það er ekki að ástæðulausu að
Berlín er talin hafa einu umburð-
arlyndustu borgarsál heims. Jafn-
vel sjálfur borgarstjórinn, Klaus
Wowereit, tjáir sig ófeiminn um
samkynhneigð sína og eru ein-
kunnarorð hans „Ich bin schwul
– und das ist auch gut so!“ (Ég er
hommi og það er allt í fína lagi)
fyrir löngu orðin fræg. Borgin á
sér líka margar hliðar og má þar
jafnt finna aldagömul óperuhús
sem mestu grasrótarstarfsemi í
nýlistum.
Fyrstu samtök homma í heim-
inum voru stofnuð í Berlín árið
1897 og hver sá hommi eða lesbía
sem leggur leið sína til borgar-
innar ætti að taka túr um borgina
og fræðast um merka atburði í
sögu samkynhneigðra. Aðalsvæð-
in eru í kringum Schöneberg,
Kreuzberg og Prenzlauer Berg en
þar er framboð af skemmtun og
alls konar menningartengdum
viðburðum mikið. Framboðið er
að vísu það mikið að mörgum fall-
ast hendur en af því helsta má
nefna Apollo-líkamsræktarstöð-
ina, Queer Movies Cinema sem er
við Sony Centre að ógleymdu
Hanam-tyrkneska kvennabaðinu.
Öruggast er þó að fela ágætum
túristaskrifstofum að benda
manni á staði og hægt er að nálg-
ast sérstök kort sem vísa leiðina á
staði sem hommar og lesbíur
sækja.
Argentína er fremur íhaldssamt
kaþólskt samfélag sem er fremur
lokað fyrir menningu samkyn-
hneigðra. Undantekning þar á er
höfuðborgin sjálf, Buenos Aires,
og þykir hún í dag ein besta borg
Suður-Ameríku fyrir samkyn-
hneigða heim að sækja. Þar eru
sérstaklega tvö hverfi; Barrio Nort
og San Telmo sem þykja hafa gott
úrval af börum og kaffihúsum þar
sem hommar og lesbíur eru fasta-
gestir og eru tangóstaðir þar einn-
ig margir sérstaklega ætlaðir
hýrum. Á upplýsingaskrifstofum
ferðamanna má nálgast kort sem
eru sérstaklega hönnuð með þarfir
homma og lesbía í huga. Íbúar
Buenos Aires eru lítt feimnir við
að sýna alúð á almannafæri og því
má sjá gagnkynhneigða karlmenn
kyssa hvor annan á kinnina og
konur ganga hönd í hönd án þess
að þær eigi í ástarsambandi.
Í San Francisco má sjá regnboga-
fána notaða sem gluggatjöld víðast
hvar og einnig hangir fáninn oft við
inngang kaffihúsa og bara. Þessu
er sérstaklega fyrir að fara í Castro-
hverfinu þar sem má vart finna
gagnkynhneigða taug en þó eru það
fyrst og fremst karlmenn sem eiga
svæðið. Konurnar halda sig frekar
í og við Dolores Park sem og á litlu
krúttlegu nektarströndinni Baker
Beach en ströndina stunda homm-
ar, lesbíur sem og gagnkynhneigð
náttúrubörn. Neðri hluti Polk
Street, frá Sacramento að Civic
Center minnir um margt á Castro-
hverfið en er mun djarfara samfé-
lag og þangað sækja margir sem
eru í leit að kynferðislegum félags-
skap. Ekki má gleyma að minnast á
stórglæsilega og nýbyggða miðstöð
lesbía, homma, tvíkynhneigðra og
kynskiptinga í borginni: Charles
Holmes LGBT Center en þar býðst
þessum minnihlutahópum alls
konar hjálp og aðstoð, andleg sem
líkamleg, og er miðstöðin orðin eitt
helsta stolt borgarinnar.
Segja má að í augnablikinu sé
Seattle ein lesbíuvænsta borg
heims. Sagan segir að þar megi
finna bestu lesbíubarina, og fer
þar fremst í flokki bar sem kallast
The Wild Rose, sem er huggulegur
og látlaus staður. Á Fenix Under-
ground má svo oft sjá alls kyns
viðburði sem lesbíur sækja svo
sem tónleika og leik- og danssýn-
ingar. Ekki má gleyma hinni árlegu
lesbísku kvikmyndahátíð, Three
Dollar Bill Cinema, sem hefst um
miðjan október. Samfélag homma
er líka sterkt í Seattle en Capitol
Hill er jafnt hverfi homma sem
lesbía.
Ástralíumenn standa sig vel í því að
koma til móts við þarfir samkyn-
hneigðra og er Sydney oft nefnd
eftirlætisborg homma og hið árlega
karnival lesbíu og homma, The
Mardi Gras, malar gull hvert ár og
er eitt helsta aðdráttarafl borgar-
innar hvað ferðamenn snertir.
Hátíðin er yfirleitt haldin í febrúar-
lok eða í byrjun mars. Flestir homm-
abarir borgarinnar eru við Oxford
Street og lesbíur sækja sína staði í
Erskineville og Leichhart. Sértu
alveg strand skaltu fara á næsta
kaffihús og glugga í eintak af frí-
blaðinu Sydney Star Observer and
Lesbians on the Loose (LOTL) eða
SX og athuga hvað er að gerast.
Samkynhneigðir ferðalangar
Löngum hafa áfangastaðir verið valdir út frá þörfum ferðalanganna og fara stórfjölskyldurnar í Disneyland og strendur Kanarí
þykja góðar undir göngugrindirnar. Í tilefni dagsins klæddi Júlía Margrét Alexandersdóttir sig í regnbogasokka og sólhatt, dró
fram landakortið og skoðaði nokkra af homma- og lesbíuvænstu ferðamannastöðum veraldar.