Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.08.2007, Qupperneq 82

Fréttablaðið - 11.08.2007, Qupperneq 82
Ég hef áður dásamað franskar konur í þessum pistli vegna þess að mér finnst þær flestar búa yfir miklum stíl, klassa og kvenlegheitum á hvaða aldursskeiði sem er. Um daginn spjallaði ég lengi við franska konu og auk þess að dást að því hversu smart hún var á sinn yfirveg- aða hátt (svartar buxur og peysa, slétt dökkbrúnt hár, postulínshúð, Hermés-úr og Todds-skór) þá rifjaðist upp fyrir mér hvað mér finnst einna mest sjarmerandi við þær frönsku: hvernig þær tala. Ég á ekki við tungumálið sjálft, heldur fáguð umræðuefnin og fínlegar handa- hreyfingarnar sem fylgja í kjölfarið. Þessi ákveðna kona sem gæddi sér á íslensku vínarbrauði á meðan að Bonpoint-klædd börn hennar teiknuðu við stofuborðið, var að ræða um nútímalist og hvernig hún kynnti torræð vídeóverk fyrir litlum dætrum sínum. Svo byrjuðu samræðurnar að snúast um bandaríska jaðarlistamenn. Ekki mis- skilja, þetta er alls ekki snobb: svona eru þær bara alltaf. Menning er þeim einhvern veginn í blóð borin. Franskar konur eru fyrst og fremst kynþokkafullar vegna þess að þær eru vel að sér, klárar og skemmti- legar en ekki af því að þær ganga endilega um í mínípilsum með stút á vör. Hér á landi myndi það flokkast undir snobb hjá mörgum að ræða heimspeki, listir og ný eða gömul ritverk við matarborðið. Í París er það eðlilegasti hlutur í heimi. Kúltúr og kyn- þokki haldast í hendur og ég er fullviss um að þess vegna beri þær þennan klassa sem er sjaldgæf- ari hér í norðurhluta Evrópu. Franskar konur sitja ekki yfir Sex and the City eins og við og lesa ekki kvennabækur eins og „Hann er bara ekki nógu hrifinn af þér“. Þær vitna hins vegar í Camus í gríð og erg og kunna verk Simone de Beauvoir og Colette utan að. (Reyndar mæli ég með því að allar konur lesi verk eftir Colette. Hún var frjáls, óheft, kyn- þokkafull og eldklár og ég lofa því að þú leggur ekki frá þér bók eins og „Chéri“). Menning er ekki aðeins fyrir þær ríku eða vel menntuðu í Frakklandi. Þættirnir sem fá mest áhorf í franska sjónvarpinu eru tveggja tíma langir menningarlegir spjallþættir, ekki franska-Idol, og flestallir skólar eru ríkisskólar sem leggja áherslu á bókmenntir og heimspeki. Í Frakklandi er til máltæki sem heitir „Avoir du chien,“ og það felur í sér að vera sjálfstæð, sexí, aðlaðandi og klár. Það er sem sagt ekki nóg að heilla karlmann með sokkaböndum og silkimjúku hári einu saman, þó að það sé auðvitað nauðsynlegur hluti af heildarpakkanum ásamt áskrift að franska Vogue og Clarins-brjóstastinningargeli. Kúltúr og kynþokki Það er Yngri og örlítið budduvænni lína Marc Jacobs, Marc by Marc Jac- obs, er komin til landsins og er fáanleg í Kronkron á Vitastíg. Jac- obs á ótalmarga aðdáendur um allan heim og eflaust margir þeirra íslensku sem eru nú örlítið hamingjusamari en áður. Vörurn- ar eru úr vetrarlínunni fyrir næsta vetur en sú var alveg sérdeilis girnileg. Stútfull af þykkum kápum og peysum, köflóttum efnum, treflum og fallegum kjól- um og buxum. Alvöru haustlína þarna á ferð sem bæði innihélt herra- og kvenflíkur. „Mér finnst alltaf svolítið kjánalegt að tala um áhrif og þemu,“ sagði Marc Jacobs á sýn- ingunni. „Línan snýst alltaf um þennan unga dýrðlingaher. Í henni má nú finna mörg ullarlög, stóra kafla og grófa sokka en í rauninni er aðalmálið hvernig ungt fólk mun taka henni og velja flíkurnar saman á sinn hátt.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.