Fréttablaðið - 11.08.2007, Page 87
Prince er búinn að vera á góðri
siglingu síðan hann sneri aftur í
sviðsljósið fyrir þremur árum
eftir sérviskutímabilið sem fylgdi
í kjölfar málaferla hans við Warn-
er-plötufyrirtækið. Bæði Music-
ology frá 2004 og 3121 sem kom út
í fyrra eru ágætar plötur þó að
þær jafnist auðvitað ekki á við
Dirty Mind, 1999, Parade eða Sign
‘O’ The Times. Á Planet Earth horf-
ir Prince til baka og uppfærir og
endurvinnur sumar af sínum bestu
hugmyndum. Lög eins og Planet
Earth og Guitar minna á gítarhetj-
una sem maður upplifði í Purple
Rain á meðan Somewhere here on
Earth og Future Baby Mama eru
ekta soul-popp að hætti Prince. Mr.
Goodnight er mjúkt og hip-hop
skotið grúv og Chelsea Rodgers er
fönksmellur. Það er líka fullt af
gömlum Prince-vinum á plötunni,
m.a. Sheila E., Wendy og Lisa og
Maceo Parker, þó að verðlaunin
fyrir besta leik í aukahlutverki á
plötunni hreppi eflaust söngkonan
Marva King fyrir frammistöðu
sína í laginu Chelsea Rodgers.
Prince er ennþá óhræddur við
að fara sínar eigin leiðir og skríð-
ur ekki fyrir plötufyrirtækjum
eða neinum öðrum eins og hann
sýndi með þeirri djörfu ákvörðun
að gefa Planet Earth með blaðinu
Mail On Sunday fyrir nokkrum
vikum. En þó að hann sé villtur á
markaðssviðinu þá er Prince
frekar gæfur tónlistarlega þessa
dagana. Planet Earth er full af
poppsmellum með skemmtilegum
textum sem ættu að geta höfðað til
bæði nýrra og gamalla aðdáenda.
Á heildina litið fín seinni tíma
Prince-plata. Betri en bæði Musi-
cology og 3121.
Hans hátign í fínu formi
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 562-3220 INNRITUN ER HAFIN FYRIR HAUSTÖNN
Dæmi um það sem
tekið er fyrir í náminu:
Lita- og línufræði
Tónalgreining
Vaxtarbygging
Heitt og kalt rými
Stórt og lítið rými
Uppröðun hluta
Hönnun á:
Baðherbergi
Svefnherbergi
Barnaherbergi
Eldhúsi
Garðhýsi
Stofu
Og margt fleira.
The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í innanhússstílistun. Farið
er í helstu grunnþætti í lita- og línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá
persónunni sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og litgreiningu en þær
upplýsingar segja mikið til um hvernig einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi
eins og liti og stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá fyrir hönnun
á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl. Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna
fyrir nemendum ýmis atriði sem koma þeim til góða.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu. Kennsla fer
fram í Iðnskólanum í Reykjavík einu sinni í viku frá 18-22.
INNANHÚSSSTÍLISTANÁM
NÝTT FRÁ