Fréttablaðið - 11.08.2007, Page 90
Valsstúlkur leika í dag
annan leik sinn í Evrópukeppni
félagsliða þegar þær mæta KÍ frá
Klaksvík. Valur vann frækinn
sigur á FC Honka í fyrsta leik
sínum á fimmtudaginn þar sem
Vanja Stefanovic og Margrét Lára
Viðarsdóttir tryggðu Íslandsmeist-
urunum sigurinn með mörkum á
lokamínútum leiksins.
Á fimmtudag lék KÍ við Den
Haag frá Hollandi og náði öllum
að óvörum jafntefli, 1-1. Í þeim
leik lá KÍ mjög aftarlega og má
gera ráð fyrir því að svipað verði
upp á teningnum í dag.
Valsstúlkur eru því einar í efsta
sæti riðilsins en leikurinn gegn KÍ
hefst klukkan 14.45 í dag.
Lykilleikur fyrir Val
Jóhannes Valgeirsson er
einn af bestu dómurum landsins,
einn af þremur FIFA-dómurum
Íslands og ofarlega í einkunnagjöf
Fréttablaðsins.
Liðin í Landsbankadeildinni
fagna því þegar Jóhannes mætir
með flautuna, eða kannski öll
nema eitt. Víkingar hafa sára
reynslu úr leikjum sem Jóhannes
hefur dæmt undanfarin fjögur
tímabil því liðið hefur tapað öllum
átta leikjum sem Jóhannes hefur
dæmt hjá liðinu, nú síðast 0-1 gegn
Fylki á fimmtudagskvöldið. Jó-
hannes dæmdi báða leiki liðanna í
sumar og Fylkir vann 1-0 í báðum
tilfellum.
Seinheppni Víkinga virðist
vera ótrúleg í þessum leikjum
sem Jóhannes dæmir því leikur-
inn í Árbænum á fimmtudags-
kvöldið var sjöundi leikurinn sem
hann dæmir hjá Víkingi sem
vinnst á sigurmarki og þar af
hafa þrjú þessara sigurmarka
komið á þriðju mínútu uppbótar-
tíma. Jóhannes hefur ennfremur
gefið sex Víkingum rautt spjald í
þessum átta leikjum.
„Við verðum að vona að þetta sé
tilviljun en mér fannst hann alveg
skelfilegur í Keflavíkurleiknum um
daginn þar sem hann klikkar á að
reka mann út af sem brýtur á Kekic
og gefur síðan Keflavík vítaspyrnu
á síðustu sekúndunni. Ég ætla
honum ekki neitt í þessu því það eru
liðin sem tapa leikjunum en ekki
dómararnir,“ segir Magnús
Gylfason, þjálfari Víkinga og bætti
síðan við. „Þetta er spes tölfræði en
ég læt það aldrei út úr mér að við
séum að tapa leikjum út af dómara.
Víkingar hafa svolítið verið að horfa
í þessa tölfræði en ég ítreka það að
við töpum leikjunum sjálfir þó að
ég viðurkenni að ég hafi verið mjög
fúll út í hann eftir Keflavíkur-
leikinn,“ segir Magnús að lokum.
Þrjú af þessum töpum Víkinga
hafa komið gegn Keflavík en það
vekur að sama skapi athygli að
Keflvíkingar hafa aðeins unnið
tvo af hinum tólf leikjunum sem
Jóhannes hefur dæmt hjá þeim á
þessum tíma.
Það er óhætt að segja að þetta sé
stingandi tölfræði en jafnframt
skal vakin athygli á því að það er
ekkert sem bendir til að Jóhannesi
Valgeirssyni sé eitthvað verr við
Víkinga en önnur lið. Það má samt
búast við því að Víkingar vonist
innst inni eftir því að Jóhannes
dæmi ekki fleiri leiki hjá þeim í
sumar því af einhverjum ástæð-
um þá fá þeir ekki stig út úr leikj-
um sem hann dæmir.
Það gengur ekkert hjá Víkingum þegar Jóhannes Valgeirsson dæmir hjá þeim í Landsbankadeildinni en
þjálfarinn Magnús Gylfason segir þó að það sé Víkingsliðið sjálft sem tapi leikjum en ekki dómarinn.
Penny Hardaway er
búinn að gera samning við Miami
Heat í NBA-deildinni og spilar því
á ný með Shaquille O’Neal. Þeir
gerðu garðinn frægan með
Orlando Magic á tíunda áratugn-
um og fóru meðal annars alla leið í
lokaúrslitin árið 1995 þar sem að
þeir urðu að láta í minni pokann
fyrir Haakeem Olajuwon og
félögum í Houston Rockets. Leiðir
þeirra skildu þegar O‘Neal ákvað
að semja við Los Angeles Lakers
sumarið 1996.
Hardaway, sem er orðinn 36 ára
gamall, hefur ekki spilað leik síðan
í nóvember 2005 en þá varð hann
að hætta að spila með New York
Knicks vegna meiðsla á hné.
„Penny er fyrrum stjörnuleik-
maður og við höfum hrifist mjög
að dugnaði hans og metnaði í
sumar að snúa aftur í NBA-
deildina. Hann er hæfileikaríkur
leikmaður sem getur hjálpað okkur
í mörgum stöðum,“ sagði Pat Riley,
forseti Miami Heat, í gær. Þegar
Penny og Shaq léku hlið við hlið
síðast þá voru þeir saman með yfir
48 stig að meðaltali í leik.
Hardaway hefur glímt við
meiðsli undanfarin ár og hefur
ekki skorað yfir tíu stig að
meðaltali síðan tímabilið 2002-3 er
hann lék með Phoenix en í 688
leikjum í NBA er hann með 15,4
stig og 5,1 stoðsendingu að meðal-
tali í leik.
Penny og Shaq saman á ný
ÍR-ingar eru búnir að
fylla í skarðið sem Keith Vassell
skildi eftir sig því liðið hefur
samið við hinn 32 ára og 211 sm
háa bosníska miðherja Nedzad
Spahic.
Spahic hefur leikið í Kósovó,
Bosníu, Króatíu og Makedóníu á
sínum ferli en reynir nú í fyrsta
sinn fyrir sig utan Balkan-
skagans. Síðasta vetur lék hann
með BC Peje, og var hann með
20,1 stig í leik, 12,3 fráköst og 3,6
varin skot yfir tímabilið.
Spahic var þriðji stigahæstur í
deildinni, annar í fráköstum og
með flest varin skot og því ljóst
að hann mun styrkja lið
Breiðhyltinga mikið. Hann er
annar Kósovinn sem spilar í
deildinni en fyrir höfðu KR-ingar
fengið til sín leikstjórnandann
Samir Shaptahovic sem var með
21,4 stig og 7,7 stoðsendingar í
sömu deild.
Reyndur risi til
ÍR í körfunni
Það er
512 5100 | SYN.IS | VERSLANIR VODAFONE
Veljið menu og sjálfvirka leit. Sláið inn
pin-númerið 0000 og ýtið síðan á OK
hnappinn. Myndlykillinn leitar þá sjálfur
að stöðvunum. Ýtt er þrisvar sinnum á
OK hnappinn og þá á myndlykillinn að
hafa raðað upp sjónvarpsstöðvunum.
Athugið að Sýn 2 er á rás númer 10.
UPPFÆRÐU MYNDLYKILINN
OG SJÁÐU SÝN 2
Fjórir leikir fóru fram í
1. deild karla í gærkvöldi.
Toppliðin þrjú unnu öll leiki sína.
Þróttur vann 3-1 sigur á KA á
Akureyri og Fjölnir vann Leikni á
útivelli, 2-0. Topplið Grindavíkur
gerði einnig góða ferð til Ólafs-
víkur þar sem það vann 3-2 sigur
á Víkingi.
ÍBV vann svo dýrmætan sigur
á Stjörnunni í Garðabæ og kom
sér með honum upp í fjórða sæti
deildarinnar. Eyjamenn eru
fjórum stigum á eftir Fjölni sem
situr í þriðja sæti.
Toppliðin unnu
sigra í gærkvöld
Þýskalandsmeistarar
Stuttgart hófu leiktíðina í þýsku
úrvalsdeildinni í gær með því að
gera 2-2 jafntefli við Schalke.
Táningurinn Ivan Rakitic skoraði
jöfnunarmark þeirra síðarnefndu
aðeins sjö mínútum eftir að hann
kom inn á sem varamaður.
Hannover 96, lið Gunnars
Heiðars Þorvaldssonar, mætir í
dag Hamburg á heimavelli. Alls
eru sex leikir í þýsku
úrvalsdeildinni í dag og hefjast
þeir allir klukkan 12.30.
Titilvörnin hófst
með jafntefli