Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 2
Fullvíst þykir að tvö
kíló af kókaíni, sem tveir Íslend-
ingar voru teknir með í Kaup-
mannahöfn, hafi átt að fara hingað
til lands. Fólkið átti pantað flugfar
til Íslands og var sú ferð fyrirhug-
uð skömmu eftir að það var hand-
tekið.
Það var 11. ágúst sem karlmað-
ur fæddur 1971 og stúlka innan
við tvítugt voru handtekin í miðbæ
Kaupmannahafnar. Á þeim fannst
lítilræði af kókaíni. Við nánari leit
fann danska lögreglan svo 1,9 kíló
af kókaíni í fórum þeirra. Þau hafa
verið í haldi síðan og sætt yfir-
heyrslum. Karlmaðurinn hefur
komið við sögu lögreglu áður
vegna fíkniefnabrota.
Talsmaður dönsku lögreglunnar
vildi lítið tjá sig um málefni tví-
menninganna við Fréttablaðið í
gær. Hann sagði þó að beðið væri
úrskurðar dómara um framhald
fangelsisvistar þeirra.
Spurður um hvenær þess
úrskurðar væri að vænta svaraði
hann aðeins: „Þau eiga eftir að
sitja lengi í fangelsi.“
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins hefur íslenska sendiráð-
inu í Kaupmannahöfn verið til-
kynnt um handtöku fólksins og
það brugðist við á hefðbundinn
hátt, meðal annars með aðstoð við
stúlkuna að beiðni aðstandenda
hennar.
Mexíkóbúar þakka
bæði góðum undirbúningi og
einskærri heppni fyrir það hve
litlu tjóni fellibylurinn Dean olli.
Fellibylurinn skall af miklum
þunga á strönd Mexíkó nú í
vikunni, og var þriðji öflugasti
fellibylur sögunnar til að fara þar
á land. Þegar hann barst lengra
yfir landið dró hins vegar mjög
úr honum allan mátt.
Að minnsta kosti átta manns
létu þó lífið, auk þess sem
húskofar féllu og uppskera
eyðilagðist. Tryggingatjón er
metið á innan við 20 milljarða
króna, sem er mun minna en búist
var við.
Reyndist mátt-
lítill í Mexíkó
„Hefði mig rennt í grun
að Jón Sigurðsson ætlaðist til þess
að ég kynnti þetta samkomulag þá
hefði ég að sjálfsögðu gert það,“
segir Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra.
Árni bregst hér við fullyrðingu
Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi
iðnaðarráðherra, um skort á kynn-
ingu samkomulags iðnaðar-, land-
búnaðar- og fjármálaráðherra við
Landsvirkjun um vatnsréttindi í
neðri hluta Þjórsár.
Samkomulagið var gert þremur
dögum fyrir kosningar, án vitund-
ar fjölmiðla og almennings, og
hafa Vinstri grænir bent á að á
þeim tíma hafi verið blásið til
fréttafundar við hvert tækifæri.
„Fjármálaráðuneytið hafði þetta
á sinni könnu. Ég hélt að þetta hefði
farið í fréttabréf fjármálaráðu-
neytisins,“ sagði Jón í Fréttablað-
inu á fimmtudaginn.
„Hann hefði bara þurft að nefna
það við mig,“ segir Árni. „Enda
hafa virkjanamál í Þjórsá aldrei
verið neitt vandamál fyrir mig. Það
er bara ekki þannig sem þetta er
venjulega unnið.“
Fjármálaráðuneytið komi að
næstum öllum málum sem varða
eignir ríkisins. Samkomulagið hafi
snúist um orkumál og því heyrt
undir iðnaðarráðuneytið.
„Og venjulega þegar ég vil kynna
mál sem heyrir undir fagráðuneyt-
in þá verður fagráðherra ekki
ánægður með það. Því þá er ég að
fara inn á hans málaflokk.“
Árni segir samkomulagið mjög
mikilvægt. „Því ef það hefði ekki
verið gert þá hefðu virkjanamálin
í Þjórsá hugsanlega stöðvast.“
Landsvirkjun hafi þurft að hafa
vilyrði fyrir nýtingu réttindanna
svo fyrirtækið gæti gengið til
samninga við bændur. „Og sveit-
arfélög höfðu sett það sem skil-
yrði fyrir því að fara í skipulags-
mál að samið yrði við bændurna
fyrst.“
Um tímasetninguna, þremur
dögum fyrir kosningar, segir Árni
að vissulega hefði verið betra að
gera samkomulagið fyrr, en ýmis
mál hafi tafið fyrir því, án þess að
vilja fara út í það nánar.
Samkomulagið hafi ekki brotið í
bága við stjórnarskrá. „Í því er
gerður greinarmunur á réttindun-
um sem ríkið keypti af Títan og
réttindunum sem fylgja jörðinni
Þjótanda. Það er ekki hægt að
selja Þjótanda án aðkomu Alþing-
is, því hún er fasteign.“ Hins vegar
sé heimilt að leigja hin réttindin.
„Þetta er í raun bara upphafs-
hluti að samkomulagi sem verður
ekki frágengið fyrr en búið er að
fjalla um hvert endurgjaldið verð-
ur fyrir auðlindina. Þá væri tíma-
bært að bera þetta undir Alþingi.“
Iðnaðarráðherra hverju sinni
ákveði hvort það verði gert.
Samkomulagið var
ekkert leyndarmál
Fjármálaráðherra segir að iðnaðarráðuneyti hefði átt að kynna samkomulag
ríkis og Landsvirkjunar, enda fjalli það um orkumál. Án þess hefðu virkjana-
mál í Þjórsá getað stöðvast. Það brjóti ekki í bága við stjórnarskrá.
„Þetta er lítið nálargat
og það er tálguð spýta, svona eins
og eyrnapinni að stærð, sem held-
ur ferjunni á floti,“ segir Hjörtur
Emilsson, framkvæmdastjóri
Navis, sem hefur eftirlit með end-
urbótum á Grímseyjarferjunni.
Eftir að Grímseyjarferja var sjó-
sett kom í ljós tæringargat í lest-
inni og sprautaðist út úr því lítil
buna. Gatið hafði áður farið fram
hjá skoðunarmönnum skipsins.
„Þetta eru tíu fermetrar, bæði
bak- og stjórnborðsmegin í lest-
inni, sem þarf að skipta um og um
600 kíló af stáli sem þarf til,“ segir
Hjörtur.
Hann segir afar leiðinlegt að
skemmdirnar hafi komið fram svo
seint, eftir aðalviðgerðir, sand-
blástur og málun skipsins.
„Það var búið að skipta út stáli
þarna allt í kring. Það þarf að mála
aftur en við teljum að miðað við eðli-
legt stálverð kosti allt verkið innan
við milljón króna,“ segir Hjörtur.
Hann tekur fram að gatið sé það
lítið að það tæki nokkra mánuði að
fylla það með vatni.
Ekki náðist í Pál Kristinsson,
skoðunarmann hjá flokkunarfé-
laginu Lloyds Register.
Tréflís heldur ferjunni á floti
Talsvert umferðaröng-
þveiti myndaðist í Kópavogi í
gærdag og fram á kvöld vegna
vegaframkvæmda við Nýbýlaveg.
Að sögn lögreglu var það þó ekki
meira en von var á.
„Þetta er bara spurning um
þolinmæði,“ segir Rúnar Sigurpáls-
son hjá umferðardeild lögreglunn-
ar. Hann segir öngþveitið hafa
verið mjög slæmt þegar fólk var á
leið heim úr vinnu, bæði á fimmtu-
dag og í gær. „Við erum með
lögreglu á mótorhjólum sem reynir
að hræra í þessu eins og hægt er.“
Áætlað er að framkvæmdunum
ljúki í dag.
Öngþveiti
vegna lokunar
Kennslu- og prófdagar
voru færri en 175, sem er
lágmarkið, í þrettán framhalds-
skólum landsins á síðasta
skólaári. Í fyrra voru tólf skólar
með færri kennslu- og prófdaga
en segir til um í reglugerð um
starfstíma framhaldsskóla.
Samkvæmt tilkynningu frá
Hagstofu Íslands síðan í gær var
fjöldi reglulegra kennsludaga í
framhaldsskólum á bilinu 140 til
155, en lög um framhaldsskóla
segja að kennsludagarnir skuli
ekki vera færri en 145. Meðal-
fjöldi reglulegra kennsludaga var
146, sami dagafjöldi og skólaárið
2005 til 2006.
Færri kennslu-
og prófdagar
Samþykkt var einróma á
aðalfundi Máls og menningar, sem
fram fór á fimmtudag, að selja
húseign félagsins við Laugaveg og
leita allra leiða til að efna kauptil-
boð sem stjórnin gerði Ólafsfelli
um yfirtöku á bókaútgáfu Eddu
útgáfu.
Árni Einarsson, forstjóri Máls og
menningar, segir að fundurinn hafi
verið sá fjölmennasti í áratugi, 25
af þeim 36 sem rétt áttu til setu á
fundinum hafi komið. Hann segir
að nú sé leiðin greið fyrir stjórnina
að vinna að fjármögnun á kaupum
á bókaútgáfunni. Stefnt er að því
að kaupin gangi eftir 1. október.
Breytingar sam-
þykktar einróma
Sextán ára gamall
drengur var handtekinn í gær,
grunaður um morðið á hinum
ellefu ára gamla Rhys Jones.
Jones hafði verið í fótbolta með
vinum sínum þegar hettuklæddur
drengur á hjóli skaut þremur
skotum úr byssu sem hann var
með. Eitt skotanna hæfði Jones í
hálsinn með þeim afleiðingum að
hann lést skömmu síðar.
Drengurinn er sá þriðji sem
handtekinn er vegna morðsins.
Áður höfðu tveir drengir, fjórtán
og átján ára, verið handteknir en
þeim hefur nú verið sleppt gegn
tryggingu.
Grunaður um
morðið á Jones
Ari, ætlið þið að leita fanga
víða?