Fréttablaðið - 25.08.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 25.08.2007, Síða 4
„Það er gríðarlega mikilvægt að þekkja einstaklingana sem verið er að leita að og reyna að átta sig á persónuleika þeirra,“ segir Víðir Guðmundsson, full- trúi ríkislögreglustjóra og umsjónarmaður leitarinnar í gær. Þegar leitarmenn lögðu af stað í býtið brýndi hann fyrir þeim að setja sig í spor mannanna tveggja. Þeir eru þekktir fyrir að fara ekki troðnar slóðir í fjalla- mennsku og því voru björgunar- sveitarmenn beðnir um að hafa augun opin fyrir slóðum sem þeim sjálfum dytti aldrei í hug að fara. Lögreglan hefur rætt við móður Mathiasar, sem stödd er á Íslandi og aðra ættingja og vini til þess að kynnast mönnunum. Það vekur athygli að þótt mennirnir hafi keypt flugmiðana til Íslands hinn 19. janúar sögðu þeir engum frá ferðaáætlun sinni. Félagar Mathi- asar hafa það eftir honum að hann hafi haft hug á að skoða svelgi og íshella en ekki útskýrt það nánar. Í samtali sem Thomas átti við kærustu sína skömmu eftir kom- una til Íslands kvaðst hann vera smeykur við að fara inn á sprungu- svæði. Þá sagði móðir Mathiasar að hann myndi seint kaupa sér leiðsögn eða borga fyrir upplýs- ingar, hann vildi gera hlutina sjálfur. „Það er ljóst að Mathias er leið- toginn í þessari ferð. Hann er líka reynslumeiri en Thomas og þekkt- ur fyrir að fara ekki hefðbundnar leiðir,“ segir Víðir og bætir því við að mennirnir hafi verið í ævin- týraleit og það sé haft í huga við leitina. Mathias og Thomas hafa þekkst í fimmtán mánuði og á þeim tíma hefur Mathias klifrað mjög reglu- lega. Thomas hafði hins vegar ekkert klifrað í sex mánuði þegar hann kom til Íslands. Vitað er að mennirnir ætluðu sér að þvælast í tólf daga utan alfaraleiðar og það stemmir við þann búnað sem lögreglan fann í tjöldunum ofarlega á Svínafells- jökli á fimmtudag. Talið er að mennirnir hafi ætlað sér að dvelja í tjöldunum í nokkra daga og ferð- ast út frá því. Allt bendir þó til þess að þeir hafi í mesta lagi gist þar í tvær nætur. Þar voru svefnpokar og dýnur og um það bil átján daga birgðir af gasi sem og fullur kassi af súkkulaði, núðlusúpum og öðrum mat sem mennirnir hafa burðast með upp á jökulinn. Ýmislegt er sérkennilegt við ferðamátann. Mennirnir sváfu ekki í sama tjaldi og deildu ekki útbúnaðinum. Þeir voru til að mynda með tvo prímusa. Ætluðu að dvelja lengi í tjöldunum Flest bendir til þess að Thomas og Mathias hafi ætlað að dvelja í á aðra viku í tjöldunum sem björgunarsveitarmenn fundu á Svína- fellsjökli í fyrradag. Leitarmenn reyndu að setja sig í spor mannanna við leitina í gær. Mennirnir höfðu þekkst í fimmtán mánuði. Þjóðverjarnir tveir sem leitað hefur verið að eru enn ófundnir. Um fjörutíu sérþjálfaðir björgun- arsveitarmenn frá höfuðborgar- svæðinu og Norðurlandi fóru á jökulinn í gær og leituðu fram í myrkur. Sjö gistu á jöklinum í nótt. Stórleit verður á svæðinu í dag en fyrstu leitarhóparnir lögðu af stað í birtingu. Fjórir leitarhópar gengu ólíkar klifurleiðir í gær út frá tjaldbúðum Þjóðverjanna sem fundust á fimmtudag. Síðdegis fann einn leit- arhópurinn slóð tveggja manna austan í Hrútsfjallstindum. Sein- lega gekk að rekja slóðina enda aðstæður erfiðar. Lögreglan rann- sakaði slóðina og bar sporin saman við spor sem fundust við tjaldbúð- irnar daginn áður. Leitað var úr lofti með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-EIR en TF-GNÁ leysti hana af hólmi síð- degis. Hennar fyrsta verk var að sækja slasaðan björgunarsveitar- mann upp á Svínafellsjökul. Þyrlan sótti leitarhópana í gær- kvöld og ferjaði nýjan hóp upp á jökulinn sem dvaldi þar í nótt. Komið hefur verið upp búðum við tjöld Þjóðverjanna og þar verður leitað enn betur í dag. Björgunar- sveitarmenn munu meðal annars síga ofan í sprungur. Aðstæður til leitar eru erfiðar en svæðið þar sem Þjóðverjarnir tjölduðu er við einn sprungnasta hluta jökulsins. Gistu á jöklinum í nótt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.