Fréttablaðið - 25.08.2007, Page 6
Eftir gagngerar endur-
bætur hýsir Gamli barnaskólinn á
Akureyri höfuðstöðvar Saga Capi-
tal Fjárfestingarbanka. Björgvin
G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
klippti síðdegis í gær á borða og
opnaði bankann formlega.
Í tilkynningu kemur fram að
húsið eigi sér rúmlega hundrað ára
sögu. Staðsetning þess þótti glæ-
fraleg og stéttin framan við húsið
var jafnan kölluð gullstéttin. Davíð
Stefánsson skáld bjó þar og Kristj-
án Jóhannsson söngvari fæddist
þar. Um 1980 var svo komið í sögu
hússins að til tals kom að rífa það.
Húsið stóð svo lítið notað þar til
Saga Capital tók það á langtíma-
leigu í fyrra. Síðan hefur verið
ráðist í viðamiklar endurbætur í
samræmi við kröfur húsafriðunar-
nefndar.
Haft er eftir Þorvaldi Lúðvík Sig-
urjónssyni, forstjóra Saga Capital,
að menntun sé einhver besta fjár-
festing sem hægt sé að ráðast í og
því megi orða sem svo að þarna hafi
alltaf verið fjárfestingarbanki.
Í tilefni af opnun bankans og
vígslu hússins býður Saga Capital
alla velkomna að kíkja í heimsókn í
dag laugardag milli klukkan 12 og
16. Sett hefur verið upp ljósmynda-
sýning um sögu hússins og Hörður
Geirsson hjá Minjasafninu á Akur-
eyri mun leiðsegja gestum klukkan
eitt og þrjú.
Um 30 manns starfa hjá Saga
Capital sem er alþjóðlegur fjár-
festingarbanki.
Tveir Hollendingar, nítján ára stúlka og 28
ára karlmaður, voru dæmdir í fjórtán og sextán
mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í
fyrradag fyrir að smygla rúmu kílói af kókaíni til
landsins í byrjun apríl á þessu ári. Til frádráttar
kemur gæsluvarðhald frá 7. apríl.
Efnin fundust á fólkinu við komuna til landsins,
en þau höfðu flogið saman frá Amsterdam. Hvort
um sig hafði falið um hálft kíló af kókaíni innvortis
og innan klæða. Fyrir dómi sögðust þau bæði hafa
flutt efnin gegn greiðslu frá fólki í Hollandi. Þau
sögðust ekki þekkja hvort annað, en hafi verið sagt
að látast vera par til að minnka grunsemdir.
Í dómnum segir óumdeilt að ákærðu væru
eingöngu burðardýr og hafi ekki átt frumkvæði að
flutningunum. Bæði hafi þau einnig játað brot sitt
af hreinskilni. Refsing var því ákvörðuð fjórtán
mánuðir fyrir stúlkuna og sextán fyrir karlmann-
inn. Þau voru látin greiða tvær milljónir í málsvarn-
arlaun og annan sakarkostnað.
Héraðsdómarinn Sveinn Sigurkarlsson kvað upp
dóminn en Daði Kristjánsson, saksóknari hjá
ríkissaksóknara, flutti málið fyrir hönd ríkisins.
Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður varði
stúlkuna en Ásbjörn Jónsson héraðsdómslögmaður
karlmanninn.
Voru eingöngu burðardýr
437 íbúar í nágrenni
við Keilugranda 1 í vesturbæ
Reykjavíkur hafa skrifað undir
undirskriftalista þar sem þeir mót-
mæla byggingu húss sem á að reisa
á reitnum. Íbúarnir gagnrýna að
borgaryfirvöld ætli að breyta aðal-
og deiliskipulagi þannig að eigend-
ur lóðarinnar geti byggt 130 íbúðir
á lóðinni í stað 50 og að heimila að
byggingin verði allt að níu hæðir,“
segir Gunnar Finnsson, talsmaður
íbúanna.
„Í gildandi aðalskipulagi kemur
fram að ekki skuli byggja meira en
fimmtíu íbúðir á þessum reit. Við
mótmælum því ekki að byggt verði á
reitnum en það eina sem við viljum
er að borgaryfirvöld fari eftir þeim
skipulagsreglum sem hún hefur sett
sér sjálf. Við gerum þá lágmarks-
kröfu að kjörnir fulltrúar okkar og
embættismenn fari eftir þessu í
störfum sínum,“ segir Gunnar.
Gunnar segir að íbúar á svæðinu
séu undrandi og reiðir vegna fyrir-
hugaðra skipulagsbreytinga því
byggingin skerði lífsgæði þeirra á
margs konar hátt. „Meðal annars
eykst umferð um svæðið mikið ef
íbúðirnar í því verða svona margar.
Þetta hefur í för með sér skert
umferðaröryggi barna sem eru
mörg á svæðinu,“ segir Gunnar og
bætir því við að skuggavarp verði
einnig meira ef húsið verður
hærra.
Að mati Gunnars eru rök borgar-
yfirvalda fyrir breytingunni lítil.
„Einu rökin eru þau að það sé vin-
sælt að búa á svæðinu. Skipulags-
stofnun hefur meira að segja sagt
að rökstyðja þurfi breytinguna.“
Gunnar telur að borgaryfirvöld séu
að ganga erinda lóðareigandans en
ekki íbúa í nágrenni Keilugranda.
„Það leggur vonda lykt af þessu
máli,“ segir Gunnar.
Undirskriftalistinn hefur verið
sendur til Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, borgarstjóra Reykjavíkur,
skipulagsstjóra borgarinnar og for-
manns Skipulagsráðs, auk bréfs
þar sem framkvæmdinni er mót-
mælt. Frestur til að skila athuga-
semdum við breytinguna á aðal-
skipulaginu rann út í gær.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
maður skipulagsráðs, segir að farið
verði yfir athugasemdirnar frá íbú-
unum. Hún getur ekki tjáð sig um
það á þessu stigi hvort tekið verði
tillit til þeirra og hvort byggingar-
magnið á lóðinni verði minnkað.
Fleiri hundruð mót-
mæla byggingunni
Ráðgert að reisa allt að níu hæða hús við Keilugranda. Íbúðirnar verða 130 í
stað 50 ef breytt aðal- og deiliskipulag verður samþykkt. Íbúarnir telja húsið
skerða lífsgæði sín. Formaður skipulagsráðs segir athugasemdir verða skoðaðar.
Fyllist þú ótta í miðborg Reykja-
víkur?
Á að rífa húsin við Laugaveg 4
og 6?
Rúmlega fjögur
hundruð manns eiga von á
hraðasekt í póstinum á næstu
dögum. Hraðamyndavél lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu var
sett upp við Hringbraut á miðviku-
dag og fimmtudag, og festi brot
422 ökumanna á filmu.
Vöktunin stóð í um nítján
klukkustundir, sem þýðir að eitt
brot var myndað á þriggja mínútna
fresti að meðaltali. Sá sem hraðast
ók var á 131 kílómetra hraða á
klukkustund, en meðalhraði
ökuþóranna var 75 kílómetrar, eftir
því sem segir á fréttavef lögregl-
unnar. Hámarkshraði á Hringbraut
er 60 kílómetrar á klukkustund.
Fjögur hundruð
fá sekt í pósti