Fréttablaðið - 25.08.2007, Qupperneq 10
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri
tók fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu Háskólans
í Reykjavík (HR) í gær við rætur Öskjuhlíðar upp af
Nauthólsvík. Dr. Svafa Gröndfeldt, rektor HR, og
Bjarni Ármannsson, formaður háskólaráðs, fluttu
ávörp við skóflustunguna.
Unnið hefur verið að hönnun byggingarinnar frá
því í fyrrahaust af Arkís, Landmótun og Henning
Larsen Architects (DK), auk verkfræðihönnuða frá
Cowi (DK) og VGK-Hönnun.
Áætlað er að húsið verði um þrjátíu og fimm
þúsund fermetrar að stærð og því ein stærsta
bygging höfuðborgarinnar. Gert er ráð fyrir að
fyrsta hluta byggingarframkvæmda verði lokið í
upphafi skólaárs í ágúst 2009. Þá á að vera tilbúin til
notkunar um tuttugu þúsund fermetra aðstaða fyrir
tækni- og verkfræðideild, tölvunarfræðideild og
viðskiptadeild. Stefnt er að því að öll starfsemi
Háskólans í Reykjavík verði svo komin niður að
Öskjuhlíðarrótum haustið 2010.
Jónína Bjartmarz,
þá umhverfisráðherra, staðfesti í
vor úrskurð Skipulagsstofnunar
um legu nýs Gjábakkavegar. Gerði
hún það með því fororði að rann-
sóknir yrðu gerðar á áhrifum nit-
urs á Þingvallavatn.
Pétur M. Jónasson vatnalíffræð-
ingur telur að niturmengun spilli
lífríki vatnsins og segir of seint að
hefja rannsóknir eftir að vegurinn
hefur verið lagður. Vegagerðin
hefur svarað fullyrðingum Péturs
á þann veg að erfitt sé að segja til
um áhrif af útblæstri bíla á vatnið
þar sem litlar sem engar rann-
sóknir séu til staðar.
Pétur segir það rangt og bendir
á að í fimmtán ár hafi Veðurstofa
Íslands rannsakað niturmengun
við Írafoss.
Gjábakkavegur hefur lengi
verið á teikniborðinu og nokkrar
tillögur verið uppi um legu hans.
Pétur hefur tvívegis áður kært
úrskurð Skipulagsstofnunar og
beðið um að möguleikinn á endur-
bótum á núverandi vegi verði tek-
inn til frekari athugunar eða að
leiðin verði höfð sunnan við vatn-
ið; út fyrir vatnasviðið frá Laugar-
vatni að Írafossi og þaðan á Hellis-
heiði. Í maí á þessu ári staðfesti
Jónína Bjartmarz, þáverandi
umhverfisráðherra, hins vegar
úrskurð Skipulagsstofnunar með
því tilliti að rannsóknir yrðu gerð-
ar á áhrifum niturs á vatnið. „Það
verður of seint að byrja rannsókn-
ir eftir að búið er að leggja veg-
inn,“ segir Pétur um þá ákvörðun.
Nituráhrifin
athuguð síðar
Umhverfisráðherra samþykkti nýjan Gjábakkaveg
með því fororði að áhrif niturs á Þingvallavatn verði
rannsökuð. „Of seint,“ segir Pétur M. Jónasson.
Nesbú á Vatns-
leysuströnd hefur í sumar safn-
að nokkrum tonnum af hænsna-
skít á haug á Vogastapa á
Reykjanesi. Magnús Guðjóns-
son, forstöðumaður Heilbrigðis-
eftirlits Suðurnesja, telur að
Nesbú hafi ekki heimild heil-
brigðisyfirvalda til að dreifa
skítnum á þessum stað og ætlar
að skoða málið.
Stefán Már Símonarson, fram-
kvæmdastjóri Nesbús, segir að
fyrirtækið hafi dreift skít þarna
fyrir nokkrum árum, hafi safnað á
haug í sumar og ætli að dreifa
skítnum í haust. Ekki þurfi leyfi
til þess en heilbrigðisyfirvöld hafi
þó verið látin vita á sínum tíma.
Áburðardreifing gjörbreyti gróð-
urfari því gróðurinn sæki í svæðið
eftir dreifinguna.
Nesbú dreifir hænsnaskít
Tilraunir Yves Leterme,
leiðtoga kristilegra demókrata í
flæmska hluta Belgíu, til að mynda
nýja sambandsstjórn fóru út um
þúfur í gær. Hann skilaði stjórnar-
myndunarumboðinu til konungs
eftir að fimm vikna viðræður
borgaralegu flokkanna strönduðu á
ágreiningi um valdmörk milli
landshlutastjórnanna og sambands-
ríkisins.
Búist er við að konungur feli
fulltrúa borgaralegu flokkanna í
frönskumælandi hlutanum að
spreyta sig. Kristilegri demókratar
og Frjálslyndir sigruðu í þingkosn-
ingum sem fram fóru í landinu 10.
júní síðastliðinn.
Umboði skilað
Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Avant, var
kjörinn formaður Skógræktarfé-
lags Íslands á aðalfundi félagsins
fyrr í mánuðinum. Hann tekur við
embættinu af Magnúsi Jóhannes-
syni, ráðuneytisstjóra umhverfis-
ráðuneytisins, formanni til tólf ára.
Aðrar breytingar á stjórn voru
þær að Sigríður Jóhannsdóttir gaf
ekki áfram kost á sér til stjórnar-
setu og komu því inn tveir nýir
stjórnarmenn: Aðalsteinn Sigur-
geirsson, forstöðumaður Rann-
sóknastöðvar skógræktar á
Mógilsá, og Jónína Stefánsdóttir,
sérfræðingur á matvælasviði
Umhverfisstofnunar.
Nýr formaður
Bæjarstjórn Kópavogs
veitti í gær viðurkenningar fyrir
hús, götur og stofnanir sem þykja
vera til fyrirmyndar í umhverfis-
málum.
Með viðurkenningunum vilja
bæjaryfirvöld sýna þeim, sem
skara fram úr í umhverfismál-
um, þakklæti og jafnframt
hvetja til góðrar umgengni og
frágangs á lóðum. Þá hlutu
Lindaskóli, Salaskóli og Snæ-
landsskóli verðlaun í flokknum
athyglisvert framlag til
umhverfismála en allir flagga
Grænfánanum sem er alþjóðleg
viðurkenning fyrir vinnu að
umhverfismálum.
Hvetja til góðr-
ar umgengni
Þrír menn á
þrítugsaldri voru handteknir fyrir
að aka undir áhrifum fíkniefna á
höfuðborgarsvæðinu í gær. Sá
fyrsti var stöðvaður á Breiðholts-
braut í Kópavogi í gærmorgun, en
hann hafði nýverið ekið börnum
sínum í leikskóla. Hann átti mjög
erfitt með að halda bílnum á
veginum.
Annar ökumaður reyndi að
komast undan lögreglu á hlaupum
á Álfhólsvegi í Kópavogi um
hádegisbil en náðist. Sá þriðji var
handsamaður í Breiðholti seinni
partinn í gær.
Þrír teknir fyrir
fíkniefnaakstur