Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 16

Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 16
greinar@frettabladid.is Þessa dagana eru skólar landsins að hefja starfsemi sína og nýr og spennandi heim- ur að opnast þúsundum íslenskra barna. Leikhús landsins eru líka að undirbúa starf- semi sína og það sem þau ætla að bjóða öllum almenningi að njóta í vetur. Í Þjóðleikhúsinu hefst starfsemin þetta árið í Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu 7, með frumsýningum á tveimur nýjum íslenskum leikritum í Kassanum og Kúlunni. Í Kassanum verður frumsýnt nýtt og spennandi verk eftir Bjarna Jónsson, „Óhapp“, en Bjarni hefur þegar getið sér gott orð sem leikritahöfundur sem þorir að takast á við raunveruleika dagsins í dag og framreiða margræðan leikhúsgaldur. Viku síðar verður frumsýnt nýtt leikrit fyrir yngstu áhorfend- urna í Kúlunni, „Gott kvöld“ eftir Áslaugu Jónsdótt- ur. Áslaug sem hefur hingað til kallað sig bókagerð- arkonu er nú orðin leikhúsgerðarkona, þar sem hún semur ekki bara leikritið upp úr samnefndri verðlaunabók sinni, heldur skapar hún verkinu einnig umgjörð. Þjóðleikhúsbyggingin sjálf verður ekki vettvangur leiksýninga fyrr en líður undir lok septembermánaðar og það má segja að það sé að nokkru táknrænt að fyrsta sýningin á Stóra sviðinu er leikrit byggt á Hamskiptum Franz Kafka. Þjóðleikhús- byggingin er hjúpuð verkpöllum þessa dagana og því í einskonar viðgerðaham, en þegar líða tekur á haustið mun hamurinn falla og nýviðgert og glæsilegt húsið blasa við. Vetrardagskráin verður ekki síður glæsileg en húsið sjálft, en ekki færri en fjögur ný íslensk leikrit eru á verkefnaskránni auk eldri íslenskra verka. Á jólum verður sýnd rússnesk klassík en þar fyrir utan er megináherslan á ný og spennandi erlend leikrit. Það fer sem sagt saman nýsköpun og nýtt útlit í Þjóðleikhúsinu í vetur sem kynnir sig þetta árið sem hjarta íslenskrar leiklistar. Ef að líkum lætur mun nýr og spennandi heimur opnast þeim þúsundum Íslendinga sem sækja það heim til að njóta sýninga þess og nema og skynja þar hjartslátt tímans. Höfundur er þjóðleikhússtjóri. Nýir heimar M iðbær Reykjavíkur er mjög til umræðu þessa daga. Annars vegar eru skiptar skoðanir um nið- urrif gamalla húsa við Laugaveg og hins vegar snýst umræðan um skálmöld sem þar stendur um nætur, og jafnvel um daga, ef marka má orð borgarstjórans í Reykjavík. Miðbær höfuðborgar og bragurinn þar skiptir ákaflega miklu máli. Þar er nokkurs konar ásjóna þjóðar. Mörgum þykir sú ásjóna sem við blasir á Laugaveginum, sem er að sönnu lífæð miðbæjarins, ekki fögur og að húsin þar þjóni ekki því hlutverki sem byggingar í miðbæ eiga að gegna. Á móti kemur að í miðbæjum bæja og borgar má, og á að vera hægt, að lesa sögu þeirra, að minnsta kosti að einhverju leyti. Á Íslandi eigum við fá hús frá nítjándu öld og upphafi þeirr- ar tuttugustu. Þess vegna er það menningarleg skylda okkar að varðveita þessi fáu hús og sýna þeim sóma. Í þeim er saga okkar. Miðbærinn verður ekki gæddur lífi með steinsteypu, áli og gleri. Samkeppni við verslunarmiðstöðvar úthverfanna verð- ur ekki unnin með því að reisa í miðbænum litlar eftirlíkingar þeirra. Miklu fremur þarf að skerpa á sérstöðu miðbæjarins og hlúa að þeim krafti sem í honum býr og margir kunna vel að meta. Þess vegna er eftirsótt að eiga heima í miðbænum og nágrenni hans. Þar sækjast margir eftir að vinna og versla. Skálmöldinni sem stendur í miðbæ Reykjavíkur um nætur verður hins vegar að ljúka. Þann brag á ekki með nokkru móti að líða. Ölvun á almannafæri er bönnuð, sömuleiðis óspektir alls konar, svo sem að brjóta flöskur og hafa uppi hávaðasöm ólæti. Það er líka bannað að aka umfram hámarkshraða og leggja bílum sínum á gangstéttum. Við slíkum brotum er sektað. Óspektir í miðbænum eru hins vegar uppspretta umræðu og hneykslunar en að öðru leyti engra viðbragða. Látið er sem þetta sé óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að í miðbænum séu veitingastaðir sem veita vín. Stungið er upp á breyttum opn- unartíma skemmtistaða, að flytja reykingar að nýju inn í hús, að fjarlægja kæliskáp úr áfengisútsölu sem aðeins er opin að deginum (þessu þáttur komst reyndar á framkvæmdastig eins og þekkt er) í stað þess að ganga hreint til verks og beina sjón- um að þeim einstaklingum sem hafa uppi óspektir. Beita má viðurlögum við óspektum, rétt eins og við hraðakstri og stöðu bifreiða á gangstéttum. Þetta hefur verið gert í borgum erlendis og þykir hafa gefist vel. Miðbær Reykjavíkur er allt öðruvísi en allir miðbæir höfuð- borga í heimi. Í því er fegurð hans og sérstaða fólgin. Braginn í bænum má bæta með því að umgangast húsin þar af virð- ingu. Sömuleiðis ætti borgurum að vera skylt að umgangast hver annan af virðingu. Annað er óviðunandi. Miðbær með sér- stöðu og reisn Andskotinn illsku flár enn hefur snöru snúna snögglega þeim tilbúna sem fara með fals og dár“, orti Hallgrímur Pétursson. Ákveðinn hluti mannkyns virðist lengi hafa þurft á óvini að halda, persónugervingu hins illa sem mætti eigna allt sem færi aflaga í veröldinni. Andskotinn er með ákveðnum greini, hinn eini sanni óvinur sem hægt er að eigna allt illt. Ekki hafa samt allir jafnmikla þörf fyrir Andskotann. Hann er einkum að finna í trúarbrögðum sem ættuð eru frá Vestur-Asíu og hefur misjafnt vægi innan þeirra. Innan kristni er hann sérstaklega mikilvægur á meðan hlutverk hans er mun léttvægara í trúarbrögðum gyðinga og múslima. Þörf kristinna manna fyrir Djöfulinn virðist raunar fara minnkandi, en það er vert að velta því fyrir sér hvers vegna hann hafði lengi svona veigamik- ið hlutverk í hugum kristinna manna. Þar á Biblían einungis litla sök og verður fyrst litið á vitnisburð hennar. Í upphafi Jobsbókar segir frá því „að synir Guðs komu til þess að ganga fyrir Drottin, og kom Satan og meðal þeirra“. Nafnið Satan merkir „ákærandinn“ á hebresku og það er einmitt hlutverk hans í sögu Jobs; hann sakar Job um að elska Guð einungis vegna þess að Guð hafi verið honum góður. Guð hlustar á ákærandann og leggur ýmsar þrautir á Job til að reyna trú hans. Þessi uppruni Fjandans er nokkuð á skjön við það hlutverk sem hann fékk síðar í augum kristinna manna. Þarna er hann hluti af liðssveit Drottins þótt hans starf sé kannski ekki það geðslegasta. Þegar Nýja testamentið var samið eftir daga Krists var Satan nefndur diabolos á grísku, en það merkir „rógberi“. Þetta er ástæða þess að hann er stundum kallaður rækallinn á íslensku, en á 18. öld notaði fólk fremur hina eldri orðmynd, „rægikall“. Á miðöldum er talað um „hinn raga karl“ og greinilega átt við Satan þannig að orðið gæti verið gamalt í íslensku þótt það finnist ekki á bók fyrr en tiltölulega seint. Þetta er grunnhugmyndin á bak við Fjandann. Hann er ákærandi og rógberi, en hvern ákærir hann? Satan beinir óvild sinni ekki að Guði; hann er fyrst og fremst fjandmaður mannkynsins, saksóknari Drottins sem krefst þess að mannfólkið sanni hollustu sína við hann eða hafi verra af. Staða djöfulsins í kristinni trú er hins vegar gerólík því veigalitla hlutverki sem hann hafði við hirð Guðs í Gamla testamentinu. Kristni er að því leyti skyldari fornpersneskum trúarbrögðum þar sem til er guð hins illa og hann er öflugur mótstöðumaður hins góða guðs. Í kristni var Djöfullinn skilgreindur sem fallinn engill og uppreisnarmað- ur gegn Guði. Höggormurinn í Paradís var gerður að holdgerv- ingi hans og Satan var meira segja stundum ruglað saman við filistínska guðinn Beelzebub, eða „flugnahöfðingjann“. Þessi tvíhyggja var frá upphafi hluti af kristnum boðskap, en kristnir rétttrúnað- armenn litu samt aldrei á Pokurinn sem jafnoka guðs. Þeir höfðu sérstakar áhyggjur af því að fólk færi að ofmeta Skrattann og gera hann að fullkominni hliðstæðu Guðs – það fólk var álitið djöfladýrkendur og gat týnt lífinu ef yfirvöld náðu til þess. Villutrúarmenn miðalda trúðu því að Guð hefði átt tvo syni, hinn uppreisnargjarna Satanael og Jesúm Krist. Samkvæmt þeirra kokkabókum var Satan eldri sonurinn og höfðingi þessa heims. Kristur hefði hins vegar vald yfir sálum mannanna sem væru ekki þessa heims. Af þessu leiddi fyrirlitningu á jarðlífinu sem færi fram í skuggadal Satans og væri prísund sálarinnar. Í bók Jesaja (14:12) í Gamla testamentinu er konungur nokkur í Babylon áminntur fyrir dramb og kallaður Lucifer, „ljósberinn“ sem er tilvísun í plánetuna Venus. Fljótlega fundu kristnir menn líkindi með hinni föllnu stjörnu og djöflinum og gerðu Lúsífer að einu af nöfnum skrattans. Þá skipti litlu máli að ljósberinn kemur víða fyrir í Biblíunni og þá oftast sem pláneta en ekki sem Fjandinn. Lúsífer varð mikilvægur hluti af kristinni heimsmynd þrátt fyrir að hann sé ekki í hinni helgu bók nema fyrir þýðingarmistök. Á slíkum grundvelli getur trú mannanna stundum byggt. Rækallinn Þörf kristinna manna fyrir Djöfulinn virðist raunar fara minnkandi, en það er vert að velta því fyrir sér hvers vegna hann hafði lengi svona veigamikið hlutverk í hugum kristinna manna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.