Fréttablaðið - 25.08.2007, Page 23
hvernig svo sem stendur á því.
Sultugerðinni fylgir notaleg til-
hugsun um að vel gangi að safna
forða í búið til vetrarins og ofurlít-
il angurværð yfir því að sumarið
skuli vera á förum.
Í dag var hátíð í bæ. Krummi okkar
kom heim frá Ameríku eftir
þriggja vikna ferðalag. Hann fór
að heimsækja Patrick vin sinn
sem býr í New York-ríki og stund-
ar nám við Cornell-háskólann.
Þeir Patrick og Krummi kynntust
í hitteðfyrra þegar þeir voru
báðir skiptinemar í Brasilíu. Patr-
ick kom í heimsókn til okkar í
fyrravetur og núna langaði
Krumma að endurgjalda honum
heimsóknina.
Ég er ekki í nokkrum vafa um
að stofnanir eins og AFS sem
gangast fyrir nemendaskiptum
milli landa fyrir ungmenni á
menntaskólaaldri vinna gífurlega
gott og mikilvægt starf. Það er
þroskandi fyrir krakka að kynn-
ast ólíkum menningarheimi og
öðrum lifnaðarháttum en hinum
mjúku þægindum hér heima.
Krummi er mjög ánægður með
ferðina til Bandaríkjanna. Það er
gott, því að heimska og glæpir
þeirra sem stjórna því landi leiða
gjarna til þess að fólk ályktar að
þjóðin sé öll geðvillt og vangefin,
sem er mikill misskilningur.
Það er ótrúlegt hvað endirinn á
þessari bók ætlar lengi að ganga
mér úr greipum. Við hvert orð
sem ég skrifa færist endirinn
fjær. Samt skal ég ljúka þessu á
næstu dögum áður en ég geng af
göflunum að sitja hér í einangrun
í kjallaranum.
Andri og Krummi eru að byrja
í skólanum. Þeir eru komnir mis-
langt á menntabrautinni.
Andri ákvað að færa um set og
er byrjaður í Landakoti. Honum
líst mjög vel á sig þar en auðvitað
er það krefjandi og stressandi
verkefni að byrja í nýjum skóla.
Krummi er að byrja síðasta vet-
urinn sinn í Kvennaskólanum.
Ég kíkti á stundatöflurnar
þeirra. Mér sýnist að Andri, sem
er níu ára, muni hafa helmingi
meira að gera en Krummi í
vetur.
Hlutabréfin mín halda
áfram að stíga í verði eftir
hina fyrirsjáanlegu dýfu
sem þau tóku í hinni vik-
unni.
Ekki skil ég hvernig
hægt er að banna fjár-
hættuspil en leyfa hluta-
bréfaviðskipti. Í fótbolta-
getraunum borgar maður
fyrir að fá að spá um
frammistöðu knatt-
spyrnufélaga. Ef maður
reynist sannspár græðir
maður en tapar annars. Í
Kauphöllinni gilda sömu
lögmál. Maður veðjar á
veraldargengi fyrirtækis
með því að kaupa í því hlut. Svo
bíður maður bara og fyrirtækið
og þar með hlutabréfin hækka
eða lækka í verði nákvæmlega
eins og knattspyrnulið ferðast
upp eða niður á stigatöflunni.
Um hlutabréfaviðskipti eru til
óteljandi þykkar bækur því að
sumir vilja meina að getan til að
spá um þróun sem verður í fram-
tíðinni á hlutabréfamarkaði bygg-
ist á þekkingu en ekki heppni.
Þetta getur vel verið rétt en ég
veit ekkert um hlutabréf og er
búinn að græða 30% á árinu. Það
er samt engin
hætta á að ég
verði ríkur af
hlutabréfum.
Til þess kem
ég með of
litla peninga
að spilaborð-
inu og af því
litla útsæði
sem ég á
þarf ég
að taka
peninga
til lífs-
fram-
færis.
Kannski ég reyni að leita upp
Hreiðar í Kaupþingi og biðja hann
að lána mér hundrað milljónir svo
að ég geti gerst fjárhættuspilari
að atvinnu. Alltaf gaman að
breyta til.
Verðdæmi
VW Polo, nýskráður: 18.6.2004
Ekinn 57 þús. km - Verð 990.000 kr.
aðeins16.162 kr. á mán. í 72 mánuði.
Verðdæmi
Skoda Fabia, nýskráður: 28.1.2004
Ekinn 32 þús. km - Verð 950.000 kr.
aðeins15.531 kr. á mán. í 72 mánuði.
Nú býður Bílaþing HEKLU nokkra vel valda bíla með sumar-
og vetrardekkjum á einstökum kjörum. Viðskiptavinir munu
að auki fá glæsilega Hewlett Packard fartölvu.
HP Pavilion dv6331
Örgjörvi: AMD Turion 64 X2 1,8 GHz (dual core)
Vinnsluminni: 2 GB
Skjár: 15,4" WXGA
Harður diskur: 160GB SATA
Geisladrif: Lightscribe dual layer DVD skrifari
Minniskortalesari: 5 í 1
Vefmyndavél og fjarstýring
Skjástýring: Nvidia GeForce Go 7200, allt að 256 MB
Stýrikerfi: Microsoft Windows Vista Home Premium
Glæsilegur hugbúnaðarpakki
2ja ára ábyrgð frá Opnum kerfum
Listaverð: 119.900 kr.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
0
7
-1
2
0
5
Númer eitt í notuðum bílum
100%
lán
Opið mánudaga–föstudaga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16
Laugavegur 174 | Klettháls 11
Sími 590 5040
FRÁ 15.500 kr. Á MÁNUÐI
BÍLL + TÖLVA
Auglýsingasími
– Mest lesið