Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 24
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ef ég þyrfti að velja milli þess
að fara á fund hjá stærstu
kvikmyndaverunum eða skipta
um bleiu myndi ég frekar velja
bleiurnar.“
Elskulegur faðir minn, afi, bróðir og
mágur,
Elías Júlíusson
Keldulandi 21, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudag-
inn 20. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 29. ágúst kl. 13.00.
Sigríður Drífa Elíasdóttir
Steindór Snær Ólason Kári Vilberg Atlason
Ragnar Elíasson Olga Steingrímsdóttir
Bjarney Runólfsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Afmæli
Í tilefni merkra tímamóta tökum
við á móti gestum í Árbliki
laugardaginn 25. ágúst nk. eftir
kl. 20.00.
Allir velkomnir
Össi frá Gröf og Stína frá Breiða
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingunn S. Jónsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum mánu-
daginn 20. ágúst. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju,
þriðjudaginn 28. ágúst kl. 15.00.
Jóna Gróa Sigurðardóttir Guðmundur Jónsson
Mattína Sigurðardóttir Sigurjón Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Lilja Sigrún Óskarsdóttir
áður til heimilis á Skógtjörn, Álftanesi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, miðvikudaginn 22. ágúst.
Auðbjörg Eggerstdóttir
Sigurður Eggertsson
Klemenz Eggertsson
Erla Stringer
og fjölskyldur.
Viðeyjarhátíð verður hald-
in í annað skiptið í dag og að
þessu sinni verður hundrað
ára afmælis þorpsins í Viðey
minnst með því að skapa
ósvikna þorpsstemningu.
Dagskráin stendur frá tólf
á hádegi til miðnættis en í
þorpinu verður fjölbreyttur
útimarkaður með íslensku
grænmeti, kryddum, sjáv-
arfangi og handverki. Tæki-
færiseldhúsið „Alveg millj-
ón“ selur gestum grillað
góðgæti en Viðeyingafélag-
ið verður með kaffisölu í
Vatnstankinum.
Eitthvað verður um að
vera fyrir alla aldurshópa.
Til dæmis geta börnin
spreytt sig í þrautakóngi.
Þeir sem vilja geta gætt
sér á hátíðarmáltíð í Við-
eyjarstofu milli 18 og 22 en
klukkan níu verður sleg-
ið upp heilmiklu dansiballi
á palli við Viðeyjarstofu.
Þar stígur Þjóðdansafélag
Reykjavíkur dans og Harm-
onikkufélagið Hljómar spil-
ar fyrir dansi.
Hátíðin markar enda-
punktinn á sumardagskrá
Viðeyjar þetta árið en dag-
skrá hátíðarinnar er ókeyp-
is utan ferjutolls.
Viðeyjarhátíð
AFMÆLISBÖRN
Í tilefni 200 ára fæðingarafmælis
Jónasar Hallgrímssonar, opnar í dag
samsýning tuttugu og eins listamanns
í Ketilhúsinu á Akureyri. Sýningin er
hluti af menningarhátíðinni Akureyr-
arvöku sem nú stendur yfir norðan
heiða.
Þórarinn Blöndal myndlistarmaður
átti hugmyndina að sýningunni og er
jafnframt sýningarstjóri. „Ég hef mik-
inn áhuga á lífi og störfum Jónasar og
mér finnst þessi sýning tilvalin leið
til að heiðra minningu þessa merka
skálds,“ segir Þórarinn sem hafði sam-
band við listamennina í byrjun árs.
Birtingarform verkanna hafa sum
hver komið á óvart að sögn Þórar-
ins, enda mörg og fjölbreytt. „Þetta
eru bæði kvæði, sögubrot, skúlptúr-
ar, málverk, myndbönd og innsetning-
ar,“ segir Þórarinn sem segir sýning-
una fyrst og fremst vera til heiðurs
Jónasi.
„Eina skilyrðið var að verkin yrðu
samtal við eða um Jónas, annars fengu
listamennirnir frjálsar hendur og efn-
istök,“ segir Þórarinn sem segir titil
sýningarinnar, „Skyldi ég vera þetta
sjálfur?“ hafa komið upp í samtali við
Megas, sem er einn þeirra listamanna
sem taka þátt í sýningunni.
„Jónas Hallgrímsson safnaði og orti
margar svokallaðar veðurvísur og titill-
inn kemur frá einni slíkri,“ segir Þórar-
inn og vísar í niðurlag tiltekinnar vísu
sem er: „Skjögra ég eins og skorinn
kálfur, skyldi ég vera þetta sjálfur“.
Við opnunina mun Þórarinn Hjart-
arson flytja kvæði Jónasar og dúóið
Aurora Borealis, skipaður þeim Mar-
gréti Hrafnsdóttur, sópransöngkonu
og Ólöfu Sigursveinsdóttur, sellóleik-
ara, flytja tónlist tileinkuð Jónasi.
Að sögn Þórarins er val á sýninga-
staðnum Akureyri engin tilviljun.
„Jónas var sjálfur Norðlendingur,
frá Hrauni í Öxnadal svo okkur Ey-
firðingum finnst við eiga svolítið í
honum,“ segir Þórarinn hlæjandi.
Ásamt sýningunni um Jónas eru að
sögn Þórarins mjög margar mynd-
listasýningar sem opna í Listagilinu
í dag og fjöldinn allur af myndlistar-
fólki í bænum.
„Það er mikið líf og fjör um þess-
ar mundir og jafnvel örlítill vísir að
myndlistarhátíð,“ segir Þórarinn og
bætir við að sýningin standi fram yfir
afhendingu á íslensku Sjónlistaverð-
laununum sem veitt verða á Akureyri
í lok september.
Eftirtaldir listamenn munu taka þátt
í sýningunni: Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir, Arna Valsdóttir, Áslaug Thorlac-
ius, Birgir Snæbjörn Birgisson, Finnur
Arnar, Hanna Hlíf Bjarnadóttir, Helgi
Þórsson, Hlynur Hallsson, Hulda Há-
konardóttir, Ilmur Stefánsdóttir, Jón
Garðar Henrysson, Jón Laxdal, Jón
Sæmundur Auðarson, Jóna Hlíf Hall-
dórsdóttir, Jónas Viðar, Joris Radema-
ker, Megas, Margrét H. Blöndal, Pál-
ína Guðmundsdóttir, Ragnar Kjartans-
son og Þorvaldur Þorsteinsson.
Sýningunni hefur verið vel tekið á
Akureyri og að sögn Þórarins er Ak-
ureyrarbær meðal styrktaraðila. Sýn-
ingin opnar í dag kl.14 í Ketilhúsinu í
Listagilinu og er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13:00 og 17.00. Sýn-
ingunni lýkur helgina 21.-23. sept.
þegar íslensku Sjónlistaverðlaunin
verða veitt á Akureyri.
Stífla sprengd í mótmælaskyni